Nýverið æfði áhöfnin á varðskipinu Þór með áhöfnum Brimils, varðskips færeysku landhelgisgæslunnar og Vædderen, varðskips danska sjóhersins. Fór æfingin fram við strendur Færeyja. Fyrr í mánuðinum var Landhelgisgæslunni formlega boðið til æfingarinnar.

Línu skotið á milli skipa
Mynd: Lhg.is
Fram kemur á heimasíðu Gæslunnar að æfingin hafi hafist á reykköfunaræfingum þar sem leitar var að þremur týndum skipverjum. Var þeim öllum bjargað af áhöfn Þórs og þeim komið til læknateymis Vædderen til aðhlynningar.

Hásetar að æfingu lokinni.
Mynd: lhg.is
Eftir reykköfunaræfinguna fór fram dráttaræfing þar sem Vædderen dró varðskipið Þór. Að lokinni æfingu fór fram viðrun þar sem æfingin var skoðuð en hún þótti takast einstaklega vel.

Vel heppnuð æfing
Mynd: lhg.is

Vædderen tekur Þór í tog.
Mynd: lhg.is































Athugasemdir