Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tvö glæný lög með Miomantis: „Ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu“

Tvö glæný lög með Miomantis: „Ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu“
Bjarmi Frið­geirs­son, Davíð Máni Jóhann­es­son, Zophonías Tumi Guð­munds­son Mynd: Aðsend

Hljóm­sveitin Miom­antis hefur nú gefið út tvö ný lög sem verða á vænt­an­legri LP plötu bands­ins. Mannlíf ræddi við Davíð Mána Jóhann­es­son gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar.

Davíð Máni Jóhann­es­son, Zophonías Tumi Guð­munds­son, Bjarmi Frið­geirs­son

Þerapía

Fyrra lagið heitir Rats Encaged og er af vænt­an­legri LP plötu Miomanis sem áætlað er að komi út árið 2023. Er um að ræða smá­skífu. Lagið er samið, tekið upp, mixað, masterað og spilað af Miom­antis en verk­efnið er styrkt af upp­töku­sjóði STEF.

„Ég man örlítið eftir hvernig þetta var samið. Ég samdi aðal riffið og fannst það nett. Samdi svo fleiri riff sem væru svipuð en með mjög subtle breyt­ingum í lokin á riff­inu. Og bridge part sem var clean gítar. Fannst þetta svalt og hafði mér verið sagt að fara nú að bæta við söng og texta í lögin okkar. Svo ég sett­ist við tölv­una mína. Opnaði WORD. Og lét hug­ann flæða,“ sagði Davíð Máni í sam­tali við Mannlíf. Hélt hann svo áfram: „Lagið kemur frá reiðum stað og fjallar um þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­anir. Og já það er kannski ekki beint fyrir krakka að hlusta á en þetta er umfjöll­un­ar­efni sem skiptir máli fyrir mig, enda hef ég marg oft verið á svona stað. Fundist ég vera fastur í búri. Svona eins og rotta. En umfjöll­un­ar­efni um svona finnst mér oft vanta í íslenska tón­list sem er vana­lega „happy go lucky.“ sem er ekki slæmt. En fólk þarf líka að heyra að raun­veru­leik­inn er ekki bara dans á rósum.„

Davíð sagði að í upp­töku­ferl­inu hafi hann not­ast við þrjá mis­mun­andi gít­ara „og var tekið upp slatta af rásum.“ Davíð hélt áfram að útskýra ferlið: „Og einnig layeruðum við alls­konar hljóð­færi sem við fundum á upp­töku­svæð­inu í bridge kafl­anum sem ég tal­aði um hér áður. Finnst mér þetta eitt sterkasta lagið okkar. Einnig höfum við verið að test runna þetta lag á tón­leikum. Og tekur fólk vel í það. Ég er ánægður með riffin, og Bjarmi og Tumi höfðu líka slatta af tíma til að semja sína parta sem gerir lagið dínamískt og þétt.“

Seinna lagið þyngra

Seinna lagið segir Davíð vera þyngra og dimmara.

„Seinna lagið, Rotting Roses Turned To Grey er dimmara lag. En það kom til með þegar ég tók upp gít­ar­inn á köldum, skýj­uðum þoku­degi. Gítarinn var stilltur öðru­vísi en vana­lega. Og byrj­aði ég að semja. Lagið er í raun mjög opið. A moll, G og F og E. Þetta leyfði Bjarma og Tuma að semja sína parta í lag­inu og gera það þétt og dínamískt og soltið meira creative á bass­anum og trommum, og að sjálf­sögðu gaf það færi á góðar söng melod­íur og texta.“

En um hvað er text­inn?
„Textinn er svona tal­aður í mynd­lík­ingu og er í raun um þung­lyndi eins og fyrra lagið, nema þarna er sviðs­myndin öðru­vísi á þann hátt að þarna er mann­eskjan á botn­inum. Erfitt að kom­ast upp aftur. Og ég hef verið á þeim stað líka. En ég horfi á þetta sem eins­konar þerapíu. Ef ég sem um erf­iðar til­finn­ingar losa ég um og hef pláss til að vera ánægður í hvers­dags­leik­anum. Ég er ánægður með bæði lögin og finnst þau bestu sem við höfum sett út, enda munu fleiri hlusta eflaust fyrst það er texti. Ég er eng­inn mennt­aður, né góður söngv­ari, en ég vil syngja mína texta sjálfur, það er þannig sem ég virka. En er ég ánægður með útkom­una.“

Finnur til ábyrgðar gagn­vart hlust­endum sínum

Eins og fram kom hér að ofan verða bæði þessi lög á væn­an­legri LP plötu á næsta ári. En er ein­hvert heild­ar­hug­mynd eða konsept á plöt­unni eða er hvert lag með sína stöku sögu?

„Mörg lögin eru um svona erfið mál. Við erum með eitt lag um stríð og hörm­ungar þess og sjálfselsk­una í því sem póli­tíkin hefur, auð­vitað á svona ekki að ger­ast og þarf að vekja athygli á því. Annað lagið er um fíkn í eit­ur­lyf eða alkohól og er ég sjálfur edrú fík­ill þannig það kom til eftir erf­iðan dag þar sem ég var fastur í löngun. En svo eru fleiri lög. Þetta ætti að gefa í skyn hverju má búast við og hlakka ég mikið til. Hvernig ég horfi á það eins og ég sagði með hvernig þetta er þerapí fyrir mig þá held ég að svona textar geti verið þerapí fyrir aðra að vita að þeir eru ekki einir í svona bar­áttu. Og finnst mér, sem tón­list­ar­maður, þá hef ég ákveðin mál­stað til að koma svona erf­iðum hlutum á fram­færi og finnst mér það vera pínu mín ábyrgð,“ sagði Davíð við blaða­mann Mannlífs.

Er eitt­hvað að lokum sem þú vilt segja Davíð?

„Við viljum þakka MBS kollek­tí­vinu fyrir sinn kær­leika og umburð­ar­lyndi og lán á hljóð­nemum oo fleiru. Einnig mælum við að leggja þeim hjálp­ar­hönd þar sem þeir lentu í vatns­tjóni nú á dög­unum vegna óveð­urs en það er hægt að gera

hér

.:Einnig viljum við þakka Hinrik starfs­manni Ung­menna­húss­ins Rósen­borg fyrir að veita okkur aðgang, skiln­ing og hjálp.“Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar eru þeir Davíð Máni Jóhann­es­son: Söngur/GítarZophonías Tumi Guð­munds­son: Bassi­Bjarmi Frið­geirs­son: Trommur

Hægt er að hlusta á lögin tvö á Spotify með því að ýta á eft­ir­far­andi hlekki:

Rats Encaged

Rotting Roses Turned To Grey

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu