Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gylfi Þór er til staðar fyrir aðra: „Fólk er ekki að koma hingað til að leggjast upp á kerfið“

Gylfi Þór er til staðar fyrir aðra: „Fólk er ekki að koma hingað til að leggjast upp á kerfið“
Gylfi Þór Þor­steins­son

„Staðan í hús­næð­is­málum er þung en alls ekki ómögu­leg. Fólk á flótta dvelur í skamm­tíma­hús­næði í allt að átta vikur og það er það hús­næði sem við erum að vinna í að fjölga. Tölu­verður fjöldi fólks ætti að öllu óbreyttu að vera á útleið úr þessum skamm­tíma­rýmum og annað hvort út á leigu­markað á eigin vegum eða til sveit­ar­fé­lag­anna en samn­ingar standa yfir við sveit­ar­fé­lögin.

Bæði þarf að fjölga þeim sveit­ar­fé­lögum sem eru í sam­ræmdri mót­töku og eins að end­ur­semja við þau sem fyrir eru en þessir samn­ingar liggja allir á borð­inu og unnið er að kappi að klára und­ir­ritun,“ segir Gylfi Þór Þor­steins­son, aðgerða­stjóri teym­is um mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu, en í frétt RÚV í morgun kom fram að ríkið skoði að taka á leigu 10 hús sem gætu hýst allt að 600 flótta­menn.

„Ríflega helm­ingur þeirra sem koma hingað til lands í leit að vernd eru frá Úkraínu eða um 1900 af þeim 3.300 sem hafa komið hingað til á árinu. Næst mesti fjöld­inn er frá Venes­ú­ela, eða um 700, og um 160 hafa komið frá Palesínu. Þess má geta að um 80% þeirra sem koma frá Venes­ú­ela eru komin í vinnu tveimur til þremur árum frá komu sinni hingað til lands. Það er þá fólk sem greiðir sína skatta og skyldur hér á landi. Það er geysi­lega hátt hlut­fall og sýnir okkur að fólk er ekki að koma til að leggj­ast upp á kerfið eins og stundum hefur verið látið í veðri vaka.“

Er Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðal ann­ars að bæta við sál­fræð­ingum í mót­töku­mið­stöð­inni okkar í Domus.

Yfir 100 milljónir á flótta

Gylfi Þór hittir margt af þessu fólki.

„Almennt séð er ástand þess ágætt. Hins vegar er því ekki að leyna að nú þegar stríðið í Úkraínu áger­ist og dregst á lang­inn þá er að koma hingað fólk sem upp­lifað hefur hörm­ungar á eigin skinni og í því sjón­ar­miði er Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðal ann­ars að bæta við sál­fræð­ingum í mót­töku­mið­stöð­inni okkar í Domus ásamt öðrum aðgerðum sem við erum að grípa til.

Það er í þessu eins og öðrum störfum sem snúa að fólki að við­bragðið þarf að vera lif­andi og taka breyt­ingum miðað við aðstæður hverju sinni og við því erum við að bregð­ast.“

Flótta­mönnum og hæl­is­leit­endum sem hingað koma hefur fjölgað mikið. Hversu mörgum að mati Gylfa Þórs getum við og ættum við að taka á móti?

„Á Íslandi er næga vinnu að fá og sífellt hamrað á því að hér vanti vinnu­afl. Fólkið sem hingað kemur í leit að vernd vill að langstærstum hluta aðlag­ast sam­fé­lag­inu, fá vinnu, setja börn í skóla og taka þátt í upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins. Í dag eru yfir 100 millj­ónir á flótta í heim­inum og það er sið­ferð­is­leg skylda okkar að taka á móti fólki. Við skulum heldur ekki gleyma því að við erum aðilar að alþjóða­sam­fé­lag­inu og lögum sem gilda um að aðstoða fólk í neyð.“

Þetta eru ekki fal­legar sögur.

Hvað er það versta sem Gylfi Þór hefur upp­lifað varð­andi þetta starf?

„Í þeim störfum sem ég velst í þá slær mig fátt út af lag­inu svo ég á erfitt með að meta hvað sé það versta. Hins vegar er oft erfitt að heyra sögur fólks og það sem það hefur upp­lifað í sínu heima­landi eða á flótt­anum. Þetta eru ekki fal­legar sögur og eitt­hvað sem gæti hent okkur öll. Íslend­ingar hafa verið á flótta líka og við skulum ekki gleyma sög­unni.

Þriðj­ungur þjóð­ar­innar flúði héðan til Brasilíu og Kanada og morm­ónar flúðu líka land vegna ofsókna í sinn garð. Við gætum horft á það að fólk flýi héðan ef til Kötlu­goss kæmi og svo mætti lengi telja. Vonandi þurfum við þó aldrei að flýja vegna stríðs­á­taka.“

Starfsmaður á skóflu

Gagn­rýn­is­raddir hafa verið uppi um þennan mikla fjölda sem hingað leitar og að breyta þurfi útlend­inga­lög­unum og hefur frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum frá árinu 2016 verið lagt fram í fimmta sinn.

Hver er skoðun Gylfa Þórs á því?

„Per­sónu­lega hef ég ekki kynnt mér nýtt frum­varp dóms­mála­ráð­herra, enda er ég bara starfs­maður á skóflu. Mitt hlut­verk er að passa upp á að gripið sé til þeirra aðgerða sem hægt er varð­andi mót­töku þeirra sem hingað koma. Ég læt aðra um póli­tík­ina.“

Ég held að fólk telji að þessi hópur sé stærri en hann raun­veru­lega er.

Hvað með að sumir komi hingað á fölskum for­sendum og mis­noti kerfið? Hvað þarf að gera í því að mati Gylfa Þórs?

„Eftir því sem ég best veit er það nú í ágætis horfi. Ef fólk kemur hingað á fölskum for­sendum eða er að mis­nota kerfið þá eru stofn­anir eins og meðal ann­ars lög­regla sem hafa úrræði til að grípa til. Ég held að fólk telji að þessi hópur sé stærri en hann raun­veru­lega er.“

Á útkíkkinu

Gylfi Þór var í Covid-far­aldr­inum umsjón­ar­maður sótt­varn­ar­húsa í Reykja­vík. Hann þótti þá líka standa eins og klettur við hlið þeirra sem á aðstoð þurftu að halda. Hvað stendur upp úr hvað þann tíma varðar?

„Covid-tím­inn kenndi manni ýmis­legt, ekki síst hvað þjóðin var til­búin að leggja á sig og í raun standa saman þegar á reyndi. Auðvitað var fólk þreytt þegar Covid virt­ist engan enda ætla að taka, og er enn að láta á sér kræla, en sem betur fer er sjúk­dóm­ur­inn ekki að leggj­ast eins þungt á fólk og hann gerði.

En þetta slíp­aði líka til við­brögð og bjó til ný sem við munum alltaf geta litið til og nýtt okkur ef á þarf að halda. Það var ýmis­legt sem gerð­ist á þessum tíma sem mun koma fólki á óvart; sem betur fer var margt af því fest á filmu og verður í heim­ild­ar­mynd sem ég veit að sýnd verður á RÚV snemma á næsta ári.

Ég held að þar séu hlutir sem eiga eftir að koma mörgun á óvart, bæði hversu mikil vinna var unnin bak við tjöldin af hópi fólks og ekki síst hvað margir áttu um sárt að binda. Það gleym­ist oft finnst mér í dag í umræð­unni hversu margir lét­ust og eins hinir sem enn eru að glíma við eft­ir­köst.“

Upplifað erf­ið­leika og sorgir eins og margir.

Gylfi Þór er til staðar fyrir aðra.

„Ég er svo heppin að ég hef fengið að upp­lifa ýmis­legt í mínu lífi sem ég hef getað tekið með mér í þágu ann­arra og upp­lifað erf­ið­leika og sorgir eins og margir. Ég hef alltaf litið á það sem lær­dóm og reynt að byggja eitt­hvað gott úr því.

Það er auð­veld­ara að sjá myrkvið þegar eitt­hvað bjátar á en að sjá ljósið. Ljósið er samt það eina sem vísar okkur veg­inn; það er alltaf ljóstýra ein­hvers staðar á leið­inni. Maður þarf bara að fylgja henni.

Und­an­farin ár hef ég valist í þetta hlut­verk og er alltaf ráð­inn tíma­bundið í þrjá til sex mán­uði svo ég þarf alltaf að vera á útkík­k­inu eftir hugs­an­legu starfi. Nú er ég ráð­inn í þetta til ára­móta. Hvað tekur við að því loknu veit ég ekki; kannski er vilji og þörf á mér lengur eða kannski þarf ég að leita á önnur mið. Það hlýtur að koma í ljós. Það reynir aðeins á að vita ekki hver borgar mér laun inn í fram­tíð­ina en er á meðan er.“

Ég var stöðugt að fá aðra til að moka fyrir mig vegna anna.

Hvað gerir svo Gylfi Þór þegar vinn­unni sleppir? Hver eru áhuga­málin?

„Ég var í hesta­mennsku en hef þurft að gefa hana á bát­inn; ég var ekki auð­veldur leigj­andi í hest­hús­inu þar sem ég var stöðugt að fá aðra til að moka fyrir mig vegna anna. Hest­arnir voru þar af leið­andi ekki hreyfðir eins oft og ég vildi og þá var betra að koma þeim fyrir hjá öðrum sem gátu sinnt þeim. Ég reyni þó að nýta þann tíma sem gefst í eitt­hvað skemmti­legt og hef sett stefn­una á að fara á skíði í vetur; eitt­hvað sem ég hef ekki gert síðan ég var ung­lingur en í hug­anum er ég ennþá ung­lingur svo ég er viss um að ég hef engu gleymt hvað varðar það sport.

Svo hef ég gaman að því að ferð­ast um landið og erlendis. Ég náði að fara í fimm daga til York á Englandi á árinu sem var mjög skemmti­legt og borgin frá­bær. Ég ferð­að­ist aðra fimm daga inn­an­lands og þá var fríið upp­talið. Ég næ kannski að ferð­ast meira á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina