Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn segir þá ætla að hrúga flóttamönnum í myglað hús: „Löglegt en algjörlega siðlaust“

Björn segir þá ætla að hrúga flóttamönnum í myglað hús: „Löglegt en algjörlega siðlaust“
Björn Birg­is­son.

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn Björn Birg­is­son úr Grinda­vík segir að áform um að hýsa flótta­menn í hús­inu sem stendur við Vík­ur­braut 58 í Grinda­vík séu með öllu sið­laus. Björn segir þetta slóttuga leið til að nýta hús­næði sem sé ekki mönnum bjóð­andi. Húsið sé graut­myglað og því hafi eng­inn hót­el­rekstur verið leyfður þar. Til að hýsa flótta­menn þurfi þó enga vottun frá heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Björns í heild sinni.

Löglegt en sið­laust?

Get mér þess til að eig­endur húss­ins við Vík­ur­braut 58, áður félags­heim­ilið Festi og síð­ast hótel undir nöfn­unum GEO hótel og Volcano hótel, hafi boðið aðgerða­hópi Gylfa Þórs að nýta hús­næðið til að vista þar flótta­menn.

Sé það rétt er það nokkuð slóttug leið til að kom­ast hjá hindr­unum sem aug­ljós­lega eru í leið­inni.

Myglunni í hús­inu ann­ars vegar.

Heil­brigð­is­eft­ir­liti Suð­ur­nesja hins vegar.

Þar sem heil­brigð­is­eft­ir­litið lok­aði hús­inu vegna myglu gæti maður haldið að eng­inn færi þar inn nema að und­an­geng­inni úttekt þess sem lok­aði.

Svo er ekki.

Heil­brigð­is­eft­ir­litið hefur afskipti af leyf­is­skyldri starf­semi, eins og hót­el­rekstri, en hús­næði fyrir mót­töku flótta­manna kallar ekki á slík afskipti.

Þarna er gat í kerf­inu, gat sem hugs­an­lega er verið að nýta til að koma hús­inu í gagnið og hala inn ein­hverja pen­inga fyrir eig­endur húss­ins sem er víst hópur fjár­festa í Reykja­vík.

Húsnæði fyrir flótta­menn er ekki leyf­is­skylt – þar er gatið í lög­unum!

Unnið hefur verið að ýmsum end­ur­bótum og þrifum á hús­næð­inu, en hvort það hættir að vera heilsu­spill­andi kemur vita­skuld ekki í ljós fyrr en eftir fag­lega úttekt heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins.

Ef marka má ferli máls­ins hingað til virð­ist stefnt að því að kom­ast fram­hjá þeirri úttekt.

Í hnot­skurn má segja þetta svona:

**********

Aðgerða­hópur á vegum félags­mála­ráð­herra Vinstri Grænna, Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, er með plön um að fylla öll her­bergi hús­næðis, sem dæmt hefur verið óhæft vegna myglu, af flótta­mönnum í leit að öryggi og betra lífi.

Þetta hljómar afleit­lega.

**********

Samkvæmt mínum heim­ildum eru engar líkur á að Grinda­vík­ur­bær komi að neinum samn­ingum við ríkið varð­andi það sem er að ger­ast.

Hvernig eiga bæj­ar­full­trúar að sam­þykkja fyrir sitt leyti að hrúga flótta­fólki inn í hús­næði sem dæmt hefur verið óhæft vegna myglu, án þess að það hafi fengið end­ur­nýjað heil­brigð­is­vott­orð frá réttum aðilum?

**********

Það skrýtna er að það er hægt að fylla húsið af fólki án þess að semja um það við bæinn og án þess að Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­nesja leggi blessun sína yfir hús­næðið.

Það er gat í lög­gjöf­inni sem lög­lærðir menn hafa komið auga á, gat sem hugs­an­lega er hægt að nýta sér til tekna undir því yfir­skyni að verið sé að hjálpa flótta­fólki.

Hvað sagði Vil­mundur heit­inn svo oft?

Löglegt en algjör­lega sið­laust

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina