Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytandi vikunnar, Ingibjörg Ágústsdóttir: „Allar glufur nýttar til að græða sem mest á neytendum“

Neytandi vikunnar, Ingibjörg Ágústsdóttir: „Allar glufur nýttar til að græða sem mest á neytendum“

Neytandi vik­unna heitir Ingi­björg Ágústs­dóttir og er  52 ára, gift og á tvö börn á ung­lings­aldri. Hún er fædd og upp­alin í einni afskekkt­ustu og feg­urstu sveit lands­ins, Árnes­hreppi á Ströndum, en hef síðan búið á mörgum stöðum, m.a. á Akranesi, Akureyri, í Skotlandi og Belgíu. Hún býr núna í Reykja­vík ásamt fjöl­skyldu sinni og starfar sem dós­ent í ensku við Háskóla Íslands þar sem hún kennir breskar bók­menntir.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Nei mér finnst álagn­ing ekki sann­gjörn og mat­vöru­verð á Íslandi er bara rosa­lega hátt. Stóru mat­vöru­versl­an­irnar ættu að borga minna í arð, lækka laun topp­anna (sem eru með alltof há laun) og draga úr álagn­ingu, sýna alvöru sam­fé­lags­á­byrgð og láta við­skipta­vini njóta þess sem hægt er að spara. Svo virð­ist aldrei vera hægt að lækka nokkurn hlut í verði þó svo að for­sendur gefi til­efni til þess, og allar glufur nýttar til að græða sem mest á neyt­endum. Svo ég nefni dæmi um okur þá finnst mér verð á mjólk­ur­vörum, sér­stak­lega ostum og þannig vörum, vera alveg út úr kú (pun intended). Það er ekki í lagi að þurfa að borga næstum 800 krónur fyrir dós af rjóma­osti. Það er nátt­úr­lega engin raun­veru­leg sam­keppni í gangi milli fram­leið­enda mjólk­ur­vara og MS ein­okar mark­að­inn. En þegar kemur almennt að mat­vöru þá geri ég stundum verð­sam­an­burð milli Krón­unnar og Bónus (ég versla oft­ast í Krónunni) og þar er kannski í mesta lagi ein króna sem munar. Það er ekki mark­tækur verð­munur og alls ekki til marks um neina alvöru sam­keppni. Ég er þó alltaf í mesta sjokk­inu yfir mat­vöru­verði hér þegar ég ferð­ast erlendis og bregð mér í mat­vöru­verslun þar.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef gert það með því að versla kjöt beint frá býli, lengi sótti ég það og vann sjálf (gerði gúllas og hakk og fleira) en hef ekki lengur aðstöðu til þess. Núna kaupi ég lamba­kjöt og ærkjöt af bónda í sveit­inni minni, kjötið þaðan er lang­best – og fylli fryst­inn á haustin. Að auki reyni ég að kaupa þær mat­vörur sem ég nota mikið á til­boði þegar þannig er í boði. Ég kaupi tómata í dós og kókos­mjólk í dós alltaf í Costco því þar fær maður margar dósir í pakkn­ingu sem er miklu ódýr­ara en að kaupa eina og eina í Krónunni/Bónus. Ég nota þessa vöru mjög mikið í mat­ar­gerð svo það borgar sig fyrir mig. Eins hefur það gef­ist vel að gera mat­seðla og skipu­leggja fyr­ir­fram hvað á að vera í mat­inn fyrir vik­una – vanda­málið er bara að ég er ekk­ert alltaf mjög góð í að skipu­leggja mig svo að það detta oft margar vikur niður og það þýðir fleiri ferðir í búð­ina! Annars fékk ég mjög gott mat­seðla­skipu­lag í Excel skjali inn á Facebook grúpp­unni Sparn­aðar tips sem Vilborg Dav­íðs­dóttir rit­höf­undur var svo indæl að deila með okkur hinum, mæli með því að skoða það. Mér finnst líka gott að panta 2-3 rétti frá Eldum rétt við og við, það gerir skipu­lagið auð­veld­ara þá vik­una og sparar mér jafn­vel ein­hvern pen­ing (eða að minnsta kosti minnkar mat­ars­sóun) því maður fær bara nákvæm­lega þau inni­halds­efni sem þarf í rétt­ina frá þeim.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Við hjónin eyðum hell­ings tíma í að þvo plast – við end­ur­nýtum plast­poka aftur og aftur sem dæmi. Ekkert mjög skemmti­legt en nauð­syn­legt að mínu mati. Við flokkum ruslið, erum með sér­stakar tunnur fyrir plast, pappír, gler og dósir. Mér finnst mik­il­vægt að reyna að leggja sitt af mörkum fyrir umhverfið.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Bækur eru minn Akki­les­ar­hæll (kaupi aldrei nóg af þeim), og þeð er erfitt að stand­ast það að kauða góðan kaffi latté bolla á hverfis­kaffi­hús­inu.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já hún gerir það. Eins og ég sagði, þá flokkum við ruslið heima fyrir og við setjum föt og annað nýti­legt dót sem við notum ekki lengur í nytjagám. Við ætlum lika að skipta yfir í raf­magns­bíl sem fyrst – fyrir umhverfið en líka til að þurfa ekki að eyða svona miklum pen­ing í bensín.

Hér að neðan deilir hún upp­skrift með les­endum:

Þessi gúllas­súpa er rosa­lega góð en þetta er upp­skrift sem ég þró­aði sjálf þegar ég átti fullt af ærgúllasi í frysti og þurfti að finna fjöl­breytt­ari leiðir til að elda það.

600 gr ærgúllas
1 ds nið­ur­soðnir tómatar, hakk­aðir
1 ds kókos­mjólk
500-600 ml sjóð­andi vatn
1 msk Oscar græn­met­is­kraftur
½-1 msk Oscar lamba­kraftur
4 gul­rætur, skornar í bita
1 laukur, saxaður smátt
4 hvít­lauks­rif, söxuð smátt
1-2 senti­metra bútur ferskt engi­fer, saxað smátt
1-2 tsk arab­ískt kjúklinga­krydd, eða eftir smekk
1-2 tsk Madras karrí, eða eftir smekk
Salt
Svartur pipar
Smávegis chilli explos­ion flögur (frá Santa Maria)
1-2 dl rjómi

Laukur, hvít­laukur og engi­fer mýkt í olíu í potti. Gúllasið svo steikt með þar til brúnað. Tómatar, kókos­mjólk og sjóð­andi vatn sett út í pott­inn, ásamt kryddi. Láta þetta malla í góðan tíma og svo er gul­rótum bætt út í þegar 20-30 mín eru eftir af eld­un­ar­tím­anum. Gúllasið þarf að sjóða amk 1 klukku­stund til að vera mjúkt, og helst lengur en það. Rjómanum bætt út í súp­una í lokin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina