Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslandsvinur þungt haldinn í Moskvu eftir dularfullt höfuðhögg

Íslandsvinur þungt haldinn í Moskvu eftir dularfullt höfuðhögg
Ólymp­íu­skák­mótið árið 1980, Soví­et­ríkin gegn Íslandi. Mynd: Only the Best :-))

Einn besti skák­maður sög­unnar, Anatoly Karpov liggur þungt hald­inn á spít­ala í Moskvu eftir að hafa fengið höf­uð­á­verka eftir fall. Hann hafði rétt áður kallað eftir því að stríð Pútíns yrði stöðvað.

Anatoly er marg­faldur heims­meist­ari í skák

Karpov, sem starfar sem þing­maður hefur und­an­farið kallað eftir því að stríð Pútíns í Úkraínu verði stöðvað. Hann liggur nú í dái á spít­ala í Moskvu-borg með alvar­lega höf­uð­á­verka en fregnir herma að á hann hafi verið ráð­ist við þing­húsið og hann hafi meiðst vegna „óheppi­legs falls“.

Hinn 71 árs Anatoly Karpov var á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar einn allra besti skák­maður heims en hann var marg­faldur heims­meist­ari. Árið 2011 heim­sótti Karpov Ísland þar sem hann var gestur Tafl­fé­lags Reykja­víkur. Telfdi hann meðal ann­ars sýni­skák við Friðrik Ólafsson stór­meist­ara og fjöltefli í Ráðhúsi Reykja­víkur. Þá studdi Ísland Karpov þegar hann bauð sig fram til for­seta FIDA árið 2010.

Eftir að hann lagði hrók­inn í skúff­una, snéri hann sér góð­gerða­málum og stjórn­málum. Er Karpov þekktur sem mik­ill holl­ustu­maður Pútíns en hefur þó kallað eftir því að stríð­inu í Úkraínu hætti „svo frið­sam­legt fólk hætti að deyja.“ Er hann enn einn úr röðum elítu Rúss­lands til að hljóta skjótan dauða eða alvar­leg meiðsl frá því að stríðið byrj­aði.

Sjá einnig: Rúss­neskir ólíg­arkar í útrým­ing­ar­hættu – Yfirferð

Samkvæmt Daily Mail er hann nú á tauga­deild hinnar frægu Skli­fosov­sky stofn­unar þar sem honum er haldið sof­andi vegna alvar­leika meiðsla hans. Talið er að Karpov hafi hlotið meiðslin ein­hvern tíma á laug­ar­dags­nótt. Nákvæm­lega hvenær og hvernig hann slas­að­ist er enn á huldu. Andrey Kovaley, aðal­maður Hreyf­ingu rúss­neskra frum­kvöðla, segir Karpov hafa verið sleg­inn í höf­uðið á leið sinni út af þing­hús­inu í Moskvu. Sagði hann enn­fremur að háls þing­manns­ins hefði brákast og höf­uð­meiðsl eftir að hafa verið bar­inn í haus­inn af óþekktum árás­ar­mönnum en hann fannst með­vit­und­ar­laus.

Tals­maður Skák­sam­bands Rúss­lands, Kirill Zangalis segir fregnir af bar­smíðum séu „gervi­fréttir e. fake news.“ Þá neitar Sofia, dóttir Karpovs, þeim fregnum einnig.

Aðrir hafa sagt hann hafa dottið óheppi­lega og jafn­vel verið drukk­inn þegar slysið varð.

Í við­tali við sjón­varps­stöð í Kazakhstan sagði Karpov að hann von­aði að stríðið myndi hætta fljótt. Bætti hann við: „Þegar allt er á botn­inn er hvolft, þá er það venju­legt fólk sem er fórn­ar­lömbin. Venju­legt fólk berst, stjórn­mála­menn og ofurstar ákveða en venju­legt fólk berst. Borgarar deyja. Ég er ekki einu sinni að tala um her­menn og her­for­ingja. Nei, ég gat aldrei ímyndað mér að Rússar og Úkra­ínu­menn færu í stríð. Ég á marga vini í Úkraínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife