Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússneskir ólígarkar í útrýmingarhættu – Yfirferð

Rússneskir ólígarkar í útrýmingarhættu – Yfirferð
Látnir ólig­arkar

Í gær lést Ravil Maganov, stjórn­ar­maður í næst stærsta olíu­fram­leið­anda Rúss­lands og stærsta einka­rekna olíu­fyr­ir­tæk­inu Lukoil, eftir að hafa dottið út um glugga á sjúkra­húsi í Moskvu. Er Maganov sjö­undi rúss­neski ólig­ar­k­inn sem deyr á dul­ar­fullan hátt síðan inn­rás Putins inn í Úkraínu hófst. Hér fyrir neðan má sjá yfir­ferð um and­látin.

Leonid Shulman

Fyrsta dul­ar­fulla and­látið átti sér reyndar stað nokkrum vikum áður en stríðið í Úkraínu hófst. Þann 30. jan­úar fannst hinn sex­tugi Leonid Shulman, for­stjóri Gazprom olíu­ris­ans, lát­inn á bað­her­bergi í kofa sínum í Len­ingrad-hér­aði. Hafði hann sár á úln­liðum og við hlið hans fann lög­reglan bréf. Taldi lög­reglan að um sjálfs­morð væri að ræða af þeim sökum. Shulman var í veik­inda­leyfi þegar hann lést.

Alexander Tyulyakov

Daginn eftir að Rússland réð­ist inn í Úkraínu, þann 25. febr­úar, fannst einn af yfir­mönnum Gazprom, Alex­ander Tyu­lya­kov, lát­inn í kofa nærri St. Pét­urs­borg, sam­kvæmt rúss­neska frétta­blað­inu Gazeta.

Fannst Tyu­lya­kov hang­andi í bíl­skúr kof­ans og fann lög­reglan bréf við hlið líks­ins og því töldu rann­sak­endur að um sjálfs­morð væri að ræða.

Starfs­maður rann­sókn­ar­nefndar Len­ingrad-hér­aðs sem vann við rann­sókn á and­lát­inu sagði frétta­blað­inu Novaya Gazeta, að sér­fræð­ingar í rétt­ar­lækn­ingum voru að störfum á vett­vangi þegar starfs­menn örygg­is­þjón­ustu Gazprom komu og girtu af vett­vang glæps­ins og héldu lög­reglu­mönnum fyrir utan húsið. Hinn 61 árs gamli Tyu­lya­kov hafði unnið hjá Gazprom í tæp 10 ár er hann lést.

Mikhail Watford

Úkraínsk-rúss­neski auð­jöf­ur­inn Mikhail Watford fannst lát­inn á heim­ili sínu í Surrey í Bret­landi, 28. febr­úar.

Watford, sem breytti nafni sínu en áður hét hann Tol­stos­heya, fædd­ist 1955 í Úkraínu á tímum Soví­et­ríkj­anna og hafði getið sér gott orð í olíu og gas brans­anum. Fannst hinn 66 ára Watford hang­andi í kaðli í bíl­skúr heim­il­is­ins en það var garð­yrkju­maður hans sem fann líkið. Sagði lög­reglan í Surrey að ekki væri litið á and­látið sem grun­sam­legt, sam­kvæmt BBC. Watford bjó í hús­inu ásamt eist­nesku eig­in­konu sinni, Jane og þremur börnum þeirra.

Vasily Melnikov

Þann 24. mars, lést millj­arð­ar­mær­ing­ur­inn Vasily Melnikov í glæsi­hýsi sínu í Nizhny Novgorod, sjöttu stærstu borg Rúss­lands.

Samkvæmt rann­sókn­ar­lög­reglu sem ræddi við blaðið Kommer­sant, fannst Melnikov, sem vann fyrir lyfja­fyr­ir­tækið MedStom, lát­inn ásamt konu sinni Galinu og tveimur sonum. Voru þau öll með stungu­sár á lík­am­anum og fund­ust morð­vopnin á vett­vangi.

Kommer­sant full­yrti að rann­sak­endur álykt­uðu sem svo að Melnikov hafi myrt konu sína og börnin sín, 10 ára og fjög­urra ára, áður en hann drap sjálfan sig. Nágrannar og ætt­ingjar þeirra efast stór­lega um þá kenn­ingu. Samkvæmt hinum úkra­ínska frétta­miðl­inum Glavred, hafði fyr­ir­tæki Melnikov tapað gríð­ar­legum fjár­hæðum á ref­is­að­gerðum Vest­ur­veld­anna vegna stríðs­ins í Úkraínu.

Önnur kenn­ing hljóðar svo, sam­kvæmt Glavred, að Melnikov hafi lent í úti­stöðu við fyrrum við­skipta­fé­laga með þessum afleið­ingum. En sam­kvæmt Kommer­sant fann lög­reglan ekk­ert sem benti til þess að utan­að­kom­andi aðili hafi komið að morð­unum, engin merki hafi verið um slags­mál eða utan­að­kom­andi truflun á vett­vangi.

Börnin fund­ust í her­bergjum sínum, kona hans í svefn­her­berg­inu en Melnikov á bað­her­berg­inu með skorna slagæð.

Vladislav Avaev

Þann 18. apríl fannst fyrrum vara­for­seti Gazprombank, Vla­d­is­lav Avaev, lát­inn í rán­dýru glæsi­í­búð sinni í Uni­versitet­sky Prospekt-hverfi Moskvu, ásamt eig­in­konu sinni og dóttur.

Það var ætt­ingi fjöl­skyld­unnar sem fann líkin eftir að hafa reynt án árang­urs að ná sam­bandi við þau í nokkra daga.

Íbúðin var læst innan frá og fannst skamm­s­byssa í hendi Avaev en af þeim sökum telja rann­sak­endur að millj­arða­mær­ing­ur­inn hafi myrt konu sína og 13 ára dóttur áður en hann framdi sjálfs­víg.

Einka­bank­inn Gazprombank er þriðji stærsti banki Rúss­lands.

Sergey Protosenya

Aðeins degi eftir að Avaev og fjöl­skylda fannst látin, fannst lík Sergey Protos­enya en hann var áður einn af aðal for­stjórum orkuris­ans rúss­neska, Novatek. Fannst hann ásamt konu sinni og dóttur þann 19. apríl í glæsi­villu sem hann leigði á Spáni en þar var fjöl­skyldan í páska­fríi.

Hinn 55 ára millj­arða­mær­ingur fannst hengdur í garði vill­unnar í Lloret de Mar en það var lög­reglan í Kata­lóníu sem fann fjöl­skyld­una. Eig­in­kona Protos­enya og dóttir fund­ust í rúmum sínum en þeim hafði verið ráð­inn bani með egg­vopni.

Samkvæmt frétta­miðl­unum Telecinco og El Punt Avui, fund­ust exi og hnífur við hlið Protos­enya. Lög­reglan rann­sakar nú tvær kenn­ingar, að sögn Telecinco. Sú fyrri hljóðar upp á tvö­falt morð og sjálfs­víg Protos­enya og hin seinni gerir ráð fyrir að fjöl­skyldan hafi öll verið myrt og glæpa­vett­vang­ur­inn svo breytt þannig að það liti út eins og heim­il­is­fað­ir­inn hafi myrt mæðgurnar og síðan hengt sig.

Ravil Maganov

Sígar­ettur drepa.

Fjöldi rúss­neskra fjöl­miðla sögðu frá and­láti hins 67 ára stjórn­ar­manns olíu­ris­ans Lukoil, Ravil Maganov í gær. Lést hann eftir að hafa dottið út um glugga á sjúkra­húsi en hann ku hafa verið að fá sér sígar­ettu er hann af klaufa­skap sínum féll út um glugg­ann þó sumir segja hann hafa stokkið út af fúsum og frjálsum vilja.

Heim­ildir: Newsweek.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife