Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Snorri Ásmundsson Krónískur óþekktarangi

Snorri Ásmundsson Krónískur óþekktarangi
Snorri Ásmunds­son

Snorri Ásmunds­son mynd­list­ar­maður hefur til­kynnt fram­boð sitt til for­manns í Sjálf­stæð­is­flokknum. Hann seg­ist bjóða sig fram fyrir hönd kvenna.

„Já, ég fip­að­ist aðeins við þessa til­hugsun að þarna sé mið­aldra hvítur karl­maður, Guð­laugur, að bjóða sig fram gegn öðrum slíkum, Bjarna, í flokki sem gefur sig út fyrir að hafa pláss fyrir alla og í langri sögu flokks­ins hefur kona aldrei verið for­maður. Þarna eru fram­bæri­legar konur sem allar eru undir hælnum hjá yfir­boð­ara sínum og myndu lík­leg­ast aldrei bjóða honum byrg­inn auk þess sem óskrif­aðar reglur og hefðir fylgja þátt­töku í stjórn­mála­starfi innan flokks­ins. Ég vildi því pressa á kon­urnar að bjóða sig fram og gaf það í skyn að ég skyldi bjóða mig fram sjálfur sem kona ef engin önnur kona byði sig fram.“

Ég held ég sé nokkuð góð blanda af konu og karli þegar ég orða þetta svona.

Snorri hefur sagst vera vel tengdur kon­unni í sér og elska og virða konur meira en karla. Hann segir að sér þyki líka vænt um karl­mennsk­una en að hún sé samt eitt­hvað vand­ræða­leg í sam­hengi hlut­anna í dag. „Ég á marga góða vini og í flestum þessum vin­áttum er mikil og djúp virð­ing og djúpur skiln­ingur. Konur eru oftar dýpri, opn­ari og varn­ar­laus­ari og ég tengi betur við þær og á oftar í dýpri og meira gef­andi sam­skiptum við þær. Karlmenn eru meira frum­stæð­ari en eru oft meiri verk­menn. Ég held ég sé nokkuð góð blanda af konu og karli þegar ég orða þetta svona.“

Kattaframboðið og VHS

Snorri hefur staðið fyrir ýmsum sam­fé­lags­gjörn­ingum. Hann bauð sig til dæmis fram til for­manns flokks­ins árið 2009 og stofn­aði Katta­fram­boðið á Akureyri fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fyrr á þessu ári.

Ég bauð mig þess vegna fram til að bjóða honum og flokknum byrg­inn.

„Sama var á ten­ingnum þegar ég bauð mig fram til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins 2009. Það er að segja að mér var ofboðið. Mér ofbauð á þeim tíma að þáver­andi for­maður, Geir H. Haarde, ætl­aði að sitja áfram án mót­fram­boðs þrátt fyrir að vera upp­vís af ömur­legum aðgerðum eða aðgerða­leysi sem áttu sér stað í hrun­inu. Ég bauð mig þess vegna fram til að bjóða honum og flokknum byrg­inn. Svo reyndar dró hann sig í hlé og ég stóð uppi sem fram­bjóð­andi á móti Bjarna Ben og Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni. Framboð mitt var mjög óvel­komið innan flokks­ins nema að Áslaug Frið­riks­dóttir, sem þá var for­maður sjálf­stæð­iskvenna­fé­lags­ins Hvatar, bauð mér að halda fram­boðs­ræðu í Valhöll sem ég gerði.“

Hvað vill Snorri segja um Katta­fram­boðið?

„Það kom líka til vegna þess að mér ofbauð sú ákvörðun bæj­ar­stjórnar að banna lausa­göngu katta í sjálfum katta­bænum Akureyri svo ég sló til og stofn­aði til Katta­fram­boðs­ins og litlu mun­aði að við næðum kett­inum Reykja­vík inn í bæj­ar­stjórn.“

Fram­boðið náði ekki manni inn en það voru tvö önnur fram­boð með lak­ari kosn­ingu en við.

Síðan var það Vinstri hægri snú 2002.

„Vinstri hægri snú kom til vegna þess að enn einu sinni bauð ég Sjálf­stæð­is­flokknum byrg­inn með því að til­kynna Birni Bjarna­syni, mið­aldra hvítum karl­manni, að ég hygð­ist bjóða mig fram á móti honum í leið­toga­próf­kjöri flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2002. Leið­toga­próf­kjör­inu var slaufað eftir að allir mót­fram­bjóð­endur Björns nema ég hættu við fram­boð og véku fyrir Birni sem átti að vera ein­róma leið­togi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Þeir sem sé tóku ekki mark á mínu fram­boði og ég brást við með því að stofna nýjan stjórn­mála­flokk sem fékk nafnið Vinstri hægri snú eða VHS. Fram­boðið náði ekki manni inn en það voru tvö önnur fram­boð með lak­ari kosn­ingu en við.“

„Pabbi, ekki vera for­seti, vertu bara lista­maður.“

Svo horfði Snorri til Bessa­staða.

„Ári seinna til­kynnti ég fram­boð mitt til for­seta Íslands fyrstur manna til að bjóða Ólafi Ragnari byrg­inn. Það var ári fyrir for­seta­kosn­ingar sem ég kom fram í Kast­ljós­inu og til­kynnti fram­boð mitt. Þetta ár kom ég víða fram sem for­seta­fram­bjóð­and­inn. Ég var dug­legur að kynna fram­boðið en eftir að for­tíð mín sem virkur alkó­hólisti var rifjuð upp í DV með fyr­ir­sögn­inni „Dæmdur dóp­sali vill á Bessa­staði“ fór að vera ansi heitt undir mér og ég orð­inn bæði leiður og þreyttur og dró fram­boðið til baka eftir að elsku­lega og fal­lega dóttir mín, þá fimm ára gömul, sagði við mig: „Pabbi, ekki vera for­seti, vertu bara lista­maður.“

Elskar frelsið

Það var ekki skrifað í skýin að Snorri Ásmunds­son yrði for­seti Íslands og tæki þátt sem slíkur í hátíð­ar­höld­unum á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn. Hann setti þó sinn svip á hátíð­ar­höldin í hitti­fyrra þegar hann hélt sína eigin fjall­konu­ræðu af svölum í Póst­hús­stræti. Hann lauk ekki ræð­unni þar sem lög­reglan skarst í leik­inn.

Þá kom þessi hug­mynd til mín að verða fyrsta karl­kyns fjall­konan.

„Ég er nú ekk­ert sér­lega hrif­inn af hefðum og þessi upp­á­koma að fjall­konan héldi ræðu 17. júní fannst mér alltaf hjá­kát­leg og þótti hún frekar draga konur niður á eitt­hvað hall­æris­legt plan heldur en að þetta væri eitt­hvað henni til sóma. Svona eins og að feðra­veldið segði sem svo „æi, leyfum kon­unum aðeins að finna fyrir að þær séu ekki ósýni­legar“. Vinur minn á fal­lega íbúð með svölum sem snýr út á Aust­ur­völl og bauð mér að vera með gjörn­ing á svöl­unum og þá kom þessi hug­mynd til mín að verða fyrsta karl­kyns fjall­konan og halda ræðu á hátíð­ar­höld­unum en lög­reglan rudd­ist inn í íbúð­ina og á sval­irnar og stöðv­aði upp­á­kom­una.“

Snorra þykir vera gaman að ögra og stuða fólk.

„Ég hef þessa óskilj­an­legu þörf til að stuða fólk en þeir sem hafa lesið í stjörnu­kortið mitt skilja það 100%. Ég er krónískur óþekkt­ar­angi og get aldrei hagað mér almenni­lega mjög lengi. Ég þarf alltaf að brjóta upp mynstur og það hefð­bundna. Ég þekki ekki að búa í þæg­ind­ara­mma og ef ég upp­lifi mig í slíkum ramma þarf ég að brjót­ast úr honum. Ég elska frelsið og er ótta­laus að öllu og það á svo sann­ar­lega við um álit náung­ans. Ég er sjálf­stæður og frjáls jarð­ar­búi sem vill helst ekki lúta neinum reglum né vera hluti af hópum. Ég er lítil hóp­sál. Ég þarf ekki hald­reipi því ég lifi í traustinu á að vera á mínum far­vegi; sem sé bless­aður.“

Master Hilarion

Snorri var með gjörn­ing í Hrís­eyj­ar­kirkju fyrir nokkrum árum og fór í leyf­is­leysi í messu­skrúða og ekki voru allir sáttir.

„Trú­ar­brögð eru belli­brögð og ég á erfitt með öll trú­ar­brögð en reyni að bera virð­ingu fyrir trú­ar­lífi fólks. Mér var boðið að taka þátt í lista­há­tíð í Hrísey og ég sagð­ist vera til í að taka þátt ef ég fengi að halda „performance“ í kirkj­unni sem end­aði með þess­ari skemmti­legu upp­á­komu. Ég fékk kirkj­una og var mér sagt að ég yrði þá að skila henni í sama ástandi og ég fékk hana og ég ákvað að halda messu með mínu sniði full­viss um að Kristur gæfi mér sína blessun sem hann auð­vitað gerði.“

Á meðal gjörn­inga má líka nefna hug­leiðslu­stund í Egils­höll sem var aug­lýst þannig að dýr­ling­ur­inn Hilaríon myndi lík­amn­ast í Snorra.

„Master Hilarion er meist­ari úr anda­heimum sem fær minn lík­ama stundum lán­aðan til að leiða fólk inn í fimmtu, sjöttu og sjö­undu vídd­ina. Master Hilarion hefur vísað mér veg­inn og bjargað mér úr bruna, tekið á móti mér í alheims­vit­und­inni og sent mig til að hjálpa fólki að skilja til­ver­una.“

Hvar fær Snorri allar þessar hug­myndir?

„Þær koma til mín því að ég er leik­glaður, frjáls og opinn. Hug­myndir svífa yfir okkur öllum. Við þurfum bara að teygja okkur í þær og nóta þær.“

Vil helst ekki vera flokk­aður sem grínisti.

Húmorinn berst í tal.

„Ég hef húmor fyrir líf­inu og fólk­inu í til­ver­unni. Mér finnst grín þó eitt­hvað ódýrt og vil helst ekki vera flokk­aður sem grínisti því þótt ég noti oft húmor í fram­setn­ingu er alltaf grafal­var­legur und­ir­tónn í öllu sem ég geri.“

Listamaður lífsins

Snorri hefur starfað sem mynd­list­ar­maður í um 30 ár. Hvað vill hann segja um áhersl­urnar?

„Ég var barn þegar list­rænir hæfi­leikar mínir komu fram þótt ég hafi í raun ekki sætt mig við það fyrr en ég var til­bú­inn að gera samn­ing­inn við lista­gyðj­una og helga líf mitt til­veru lista­manns­ins. Hún er ekki praktísk en hún er skemmti­leg. Áherslur mínar eru að bregð­ast við því sem lífið er að segja mér og spegla og þess vegna er ég oft kall­aður lista­maður lífs­ins.“

Hann hefur ýmis­legt gert á ferl­inum og dvaldi í Svíþjóð fyrir nokkrum miss­erum, nánar til­tekið í skógi í Nösse­mark.

„Þegar Covidið kom, bauðst mér að passa hús og tvo ketti lengst inn í sænskum skógi í sann­köll­uðu nátt­úru­baði með reglu­legum heim­sóknum frá elgum og bömbum sem eru ævin­týra­legar skepnur. Þessi dvöl breytti mér til fram­búðar. Ég sakna oft skóg­ar­ins.“

Í vor opnar síðan yfir­lits­sýn­ing Snorra í Lista­safni Reykja­nes­bæjar.

Snorri er nýkom­inn til Vín­ar­borgar frá París þar sem hann sýndi með ekki ómerk­ari mönnum en Man Ray og Keith Haring svo ein­hverjir séu nefndir. Hann opnar svo einka­sýn­ingu í Vín­ar­borg 25. nóv­em­ber næst­kom­andi. Í vor opnar síðan yfir­lits­sýn­ing Snorra í Lista­safni Reykja­nes­bæjar sem verður yfir­lit yfir gjörn­inga og mál­verk.

Lífið hefur ekki alltaf verið dans á rósum eða í skóg­ar­botni og um tíma slóst Snorri við Bakkus. Það er reyndar langt síðan. Brenni­vín, e-töflur og amfetamín.

„Ég fór fyrst í áfeng­is­með­ferð tví­tugur að aldri og þurfti nokkrar með­ferðir áður en ég varð loks­ins ham­ingju­samur, glaður og frjáls edrú alkó­hólisti í bata sem ég hef verið í bráðum 22 ár.“

Hann var settur í stein­inn á þessum tíma. Gæslu­varð­hald.

„Ég var dæmdur í tveggja vikna gæslu­varð­hald á meðan rann­sókn fíkni­efna­máls fór fram.“

Ég er ein­hleypur og frjáls en er að verða til­bún­ari að hitta mína heittelsk­uðu.

Hvernig er Snorri þegar vinn­unni og ögrun­inni sleppir? Hvað með fjöl­skyldu­líf, áhuga­mál og lísfs­stíl?

„Ég er ein­hleypur og frjáls en er að verða til­bún­ari að hitta mína heittelsk­uðu hver sem hún nú er og hvaðan sem hún kemur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina