Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svört saga Sjálfstæðisflokksins: „Það var allt frelsið“

Svört saga Sjálfstæðisflokksins: „Það var allt frelsið“

Guðjón Frið­riks­son sagn­fræð­ingur kallar eftir því á Facebook að 100 ára saga Sjálf­stæð­is­flokks­ins verði skrifuð, og það af ein­hverjum sem stendur fyrir utan flokk­inn. Hann fer laus­lega yfir sögu flokks­ins, en hún stang­ast ber­sýni­lega á við það sem flokks­menn halda fram í dag.

„Hvers vegna hefur aldrei verið skrifuð næstum 100 ára saga stærsta flokks þjóð­ar­innar, Sjálf­stæð­is­flokks­ins? Það væri verð­ugt verk­efni fyrir vand­aðan og helst ekki inn­vígðan fræði­mann. Svokölluð sjálf­stæð­is­stefna hefur að mínum dómi nefni­lega alls ekki verið sjálfum sér sam­kvæm eins og gjarnan er látið í veðri vaka af núver­andi for­ystu­mönnum. Frelsi ein­stak­lings­ins hefur að vísu alltaf verið haldið á lofti en í reynd hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn löngum verið kerf­is­flokkur og fyr­ir­greiðslu­flokkur. Á árum áður þurfti maður helst að vera flokks­maður til að fá fyr­ir­greiðslu. Það var allt frelsið,“ segir Guðjón.

Hann segir að flokk­inn hafa lengst af verið rík­is­bú­skap­ar­flokkur. Báknið sem þeim er tíð­rætt um, kom flest frá þeim sjálfum. „Á kreppu­ár­unum og stríðs­ár­unum  voru jafn­að­ar­menn og sós­í­alistar í sókn. Til þess að missa ekki fylgi tók Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn upp mörg hestu stefnu­mál þeirra, svo sem almanna­trygg­ingar og önnur vel­ferð­ar­mál. Í Reykja­vík stofn­uðu þeir meira að segja bæj­ar­út­gerð og ráku stórt opin­bert mjólk­urbú á Korp­úlf­stöðum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var í raun orð­inn miðju­flokkur, ekki hægri flokkur og sann­kall­aður rík­is­bú­skap­ar­flokkur. Aldrei var minnst á skatta­lækk­anir. Þegar létt var nokkuð af rík­is­hömlum á við­reisn­ar­ár­unum var það ekki síst fyrir frum­kvæði Alþýðu­flokks­ins (Gylfa Þ),“ segir Guðjón.

Svo hafi flokk­ur­inn orðið að hálf­gerðum sér­trú­ar­söfn­uði. „Allt breytt­ist svo eftir 1980. Unga kyn­slóðin í flokknum dáð­ist að Margréti Thatcher í Bret­landi og Ronald Reagan í Banda­ríkj­unum.  Skatta­lækk­anir, einka­væð­ing og afnám reglu­verks urðu trú­arat­riði. Það fór eins og það fór. Mikil skulda­söfnun og söfnun auðs á fárra hendur og loks hrun. Með Davíð Oddssyni varð stefna Thatchers og Reagans að trú­arat­riði í Sjálf­stæð­is­flokknum og hefur eig­in­lega verið það síðan. Áður fyrr var flokk­ur­inn frekar alþjóð­lega sinn­aður á köflum en nú er ein­angr­un­ar­hyggjan alls ráð­andi. Eða hvað? Það þarf að skrifa sögu flokks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina