Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragga nagli biður Katrínu Jak að kafa djúpt eftir samkenndinni: „Skammist ykkar!!!“

Ragga nagli biður Katrínu Jak að kafa djúpt eftir samkenndinni: „Skammist ykkar!!!“
Ragga Nagli Mynd: Aðsend

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, klínískur heilsusál­fræð­ingur, segir for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann VG, með­höndla mann­fólk eins og hveitisekki.

Ráðherra sýni af sér for­dæma­lausa van­virð­ingu og harð­neskju þegar kemur að brott­vísun flótta­fólks hér á landi.

Ragn­hildur, sem flestir þekkja betur undir nafn­inu Ragga nagli, er virk að tjá sig á sam­fé­lags­miðlum um mál­efni líð­andi stundar. Að þessu sinni eru það brott­vís­anir flótta­fólks frá Íslandi sem eru henni hug­leikið.

Ragga ritar færslu um málið á Facebook:

„Kæra íslenska rík­is­stjórn.

Ég skrifa til þín sem íbúi á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Póst­númer 2200. Þar sem flestir inn­flytj­endur per fer­kíló­metra búa í Danmörku. Síðustu þrettán ár hef ég búið í fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag­inu hér. Í næstu götu er moska. Allt í kringum mig búa múslímskir inn­flytj­endur. Konur með slæður. Menn í kirtlum. Börn með svarta lokka. Hör­unds­dökkt fólk. Fólk sem kom hingað í leit að betra lífi og skjóli fyrir hörm­ungum heima­lands síns.

Ég ætla að lýsa upp­lifun minni af þessu fólki sem þú vilt meina aðgöngu inn í hin helgu vé íslenskrar land­helgi. Konan sem hljóp á eftir mér með 10 danskar krónur sem ég hafði gleymt í sjálf­sala. Múslima­dreng­ur­inn sem dingl­aði hjá mér með húf­una sem ég hafði misst úti á götu. Hópurinn af erlendu drengj­unum sem hjálp­uðu okkur að flytja búslóð­ina. Græn­met­is­sal­inn sem er flótta­maður frá Íran og gefur mér afslátt af því ég brosi svo fal­lega. Kebabsal­inn sem hefur oftar en ekki sagt okkur að koma bara seinna með greiðslu ef kortið hefur verið með vesen, eða vantað örfáar krónum. Slæðu­klædda nágranna­kona mín sem lán­aði okkur þvotta­vél­ina sína eitt sinn þegar við fluttum inn í nýja íbúð, og skítugar spjar­irnar hrönn­uð­ust upp.

Upp­á­halds mat­ur­inn minn er tyrk­neskur, pers­neskur, sómalskur, sýr­lenskur.

Ef Danmörk hefði sent alla út á guð og gadd­inn á níunda ára­tugnum, væri ekki dúndr­andi partý hjá bragð­lauk­unum hjá okkur í Dana­veldi.

Á meðan þú með­höndlar fatl­aðan mann eins og hveitisekk. Með for­dæma­lausri van­virð­ingu og harð­neskju, og sendir til að sofa á hörðum tré­bekk í almenn­ings­garði í Grikk­landi þá hitti ég reglu­lega íraskan félaga minn í rækt­inni í Kaup­manna­höfn sem fær enn martraðir tutt­ugu árum eftir að hafa verið pynt­aður af Saddams mönnum.

Á meðan þú lést lög­reglu sitja fyrir ungum náms­fúsum stúlkum af írönsku bergi svo þær myndu ekki óhreinka gang­stéttar Reykja­víkur og taka pláss í fram­halds­skóla, þá eru atvinnu­aug­lýs­ingar sem fylla heilu doðrant­ana í leit að fólki til starfa.

Þessi þjóð telur aðeins þrjú­hund­ruð og eitt­hvað þús­und hræður en tekur á móti einni og hálfri miljón ferða­manna á ári. Okkur vantar fleiri vinn­andi hendur á dekk. Á meðan þú skellir í lok lok og læs fyrir okkar bág­stödd­ustu bræðrum og systrum í leit að skjóli og vernd fyrir ofsóknum, kúgun, oki og jafn­vel dauða, þá er smjattað á snittum í Laug­ar­dalnum og þessar aðfarir mærðar í ræðum.

Kæra rík­is­stjórn. Það sem mínir hör­unds­dökku nágrannar hafa kennt mér er vina­legt við­mót á skala sem ég hef aldrei mætt hjá okkur bleiknefj­uðu. Ég hef til­einkað mér algjört for­dóma­leysi þeirra. Að óháð upp­runa þá eigum við öll að hjálpa hver öðru og deila gildum okkar sem mann­eskjur. Ég hef lært að virða aðra útfrá gjörðum og per­sónu­leika, en ekki upp­runa, landi eða trú sem þeir kjósa sér.

Ef þú hefðir fengir að ráða í Danmörku á níunda ára­tugnum hefði ég aldrei kynnst þessu fólki. Það hefði ekki fengið að stíga fæti á danska grund eða verið vísað úr landi, eins og stór­hættu­legir náms­menn og fatl­aðir ein­stak­lingar.

Það er þyngra en tárum taki sú úti­lok­un­ar­stefna í inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda málum sem bæði þessi lönd hafa hins­vegar tekið upp. Tvö lönd sem tróna á toppi lífs­gæða á allri jarð­ar­kringl­unni. Tvö lönd sem skora hæst í lífs­gæðum. Tvö lönd sem hafa auð­lindir og auð­magn, nægi­legt pláss og bol­magn til að taka á móti miklu fleiri bág­stöddum sem vita ekki hvort, hvaðan eða hvenær næsta mál­tíð kemur. Á meðan við for­rétt­indapés­arnir kvörtum yfir að upp­á­halds hummus­inn sé ekki til i mat­vöru­búð­inni.

Biðjum til Allah, Guðs, Búdda eða Þórs að þið snúið af villu ykkar vegar og grafið djúpt í iður sál­ar­innar eftir sam­kennd, sam­hyggð og samúð með þeim sem allra minnst mega sín.

Skammist ykkar!!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina