Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vilhjálmur Árnason: „Sumir koma hingað fyrir tilstuðlan skipulagðra glæpahópa“

Vilhjálmur Árnason: „Sumir koma hingað fyrir tilstuðlan skipulagðra glæpahópa“
Vil­hjálmur Árnason Mynd: Haakon Broder Lund

„Ég hef lengi haft mik­inn áhuga á félags­störfum og stjórn­málum sem má segja að séu kannski mín aðal­á­huga­mál. Sam­skipti við fólk sem vill láta gott af sér leiða. Nú hef ég aukin tæki­færi til að hafa áhrif á hvernig innra starfið í mínum stjórn­mála­flokki þró­ast og get fylgt eftir mínum skoð­unum um það hvernig við aukum veg flokks­ins okkar til auk­ins fylgis og eft­ir­fylgni við okkar hug­sjónir. Það hefur frá fyrsta degi verið mitt upp­á­halds­hlut­verk í stjórn­málum að fara og hitta fólk á sínum heima­velli og nú hef ég enn frekara til­efni til þess,“ segir Vil­hjálmur Árnason, nýkjör­inn rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Á hvað vill hann leggja áherslu?

„Ég vil leggja áherslu á aukna virkni hins almenna flokks­fé­laga með auknum sam­skiptum á milli fólks­ins í flokknum, auknu upp­lýs­inga­flæði frá kjörnum full­trúum til gras­rót­ar­innar og að skila­boðin frá gras­rót­inni kom­ist skýrt til kjörnu full­trú­anna og for­yst­unnar. Sem sagt að hinn almenni flokks­maður fái frelsi til athafna í flokks­starf­inu og að verð­leikar hvers og eins nýt­ist fyrir hug­sjón­ina sem við sam­ein­umst um.“

Mótframboð Guðlaugs Þórs

Hvað vill Vil­hjálmur segja um mót­fram­boð Guðlaugs Þórs í for­mann­inn?

„Ég fagna fram­boði Guðlaugs Þórs. Það skiptir okkur sjálf­stæð­is­menn miklu máli að fá val um for­ystu flokks­ins og að for­ystan sæki umboð sitt til lands­fundar. Grunn­gildin okkar virkj­ast með fram­boði eins og þessu og þá verður allt miklu skemmti­legra. Margir sjálf­stæð­is­menn fögn­uði þessu fram­boði burt­séð frá því hvorn þeir studdu því að sjálf­stæð­is­mönnum gafst raun­veru­legt tæki­færi til að ræða mál­efni flokks­ins og grunn­gildin.“

Það að tapa kosn­ingu um emb­ætti í Sjálf­stæð­is­flokknum þýðir ekki neitt.

Hvað þýðir þetta fyrir Guðlaug Þór að lúta í lægra haldi fyrir sitj­andi for­manni og hvað þýðir þetta svo fyrir Bjarna Bene­dikts­son að hafa fengið þessa kosn­ingu?

„Það að tapa kosn­ingu um emb­ætti í Sjálf­stæð­is­flokknum þýðir ekki neitt. Við höfum haft það fyrir meg­in­reglu hjá okkur að við­hafa lýð­ræði um emb­ætti og hlut­verk. Má þar nefna próf­kjörin og þann vilja sem ég nefndi áðan að for­ystan sæki sér umboð til lands­fundar. Þar af leið­andi er gert ráð fyrir því að fólk nái ekki settum mark­miðum í kosn­ingum. Ég tel það sterkara fyrir Bjarna að koma með skýrt umboð út af lands­fund­inum en um leið skýr skila­boð frá gras­rót­inni hvar við getum gert betur. Bjarni, Guð­laugur og flokk­ur­inn allur í heild sinni kom sterk­ari út úr þessum lands­fundi. Annað snýst svo bara um traust á milli fólks hvernig því gengur að vinna saman og ég treysti þeim báðum til að vinna að því að svo verði.“

Gekk ungur í Sjálfstæðisflokkinn

Vil­hálmur er spurður hvers vegna hann hafi upp­haf­lega gengið til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem er með skýra stefnu og hug­sjón þar sem ein­stak­ling­ur­inn er í fyr­ir­rúmi; frelsi ein­stak­lings­ins til athafna en um leið að hver og einn verður líka að bera ábyrgð á sjálfum sér. Ég bara trúi ekki á að ein­hver annar geti vitað betur en ég sjálfur hvernig mínum málum er best fyrir komið. Ég trúi því ekki heldur að ég sem stjórn­mála­maður geti vitað best hvernig hlut­irnir eru leystir heldur vill ég að sá sem kemur með bestu lausn­ina og er til í að leggja eitt­hvað á sig fái fram­gang en að allir búi við jöfn tæki­færi. Ég hef velt fyrir mér við viss atvik innan flokks­ins hvort ég ætti að fara annað en hug­sjónin er það sem gildir. Ég er sjálf­stæð­is­maður og því er ég í Sjálf­stæð­is­flokknum og mun berj­ast fyrir því að hug­sjón fólks­ins í flokknum fái aukna áheyrn.“

Ég fór í mitt fyrsta próf­kjör 2009 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi.

Vil­hjálmur byrj­aði ungur að vinna í kringum kosn­ingar með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Ég varð svo í fram­hald­inu kjör­inn for­maður Víkings, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Skaga­firði, tók þátt í kosn­inga­stjórn fyrir alþingis- og sveita­stjórna­kosn­ingar og sat neð­ar­lega á fram­boðs­listum til Alþingis í Norð­vestur-kjör­dæmi. Þegar ég flutt­ist svo til Grinda­víkur tók ég við sem for­maður Freyju, félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Grinda­vík. Ég fór í mitt fyrsta próf­kjör 2009 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Suð­ur­kjör­dæmi og varð þá vara­þing­maður eftir þær alþing­is­kosn­ingar. Ég var svo í 2. sæti í próf­kjöri fyrir bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Grinda­vík 2010 og var þá vara­bæj­ar­full­trúi eitt kjör­tíma­bil. Árið 2013 hafn­aði ég í 4. sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og var í kjöl­farið kjör­inn inn á Alþingi er við náðum fjórum þing­mönnum inn í þeim alþing­is­kosn­ingum.  Árið 2016 varð ég í 3. sæti og árið 2021 í 2. sæti og hef verið vara­for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan 2019.“

Virk hlustun

Hver eru helstu bar­áttu­mál Vil­hjálms?

„Helstu bar­áttu­mál mín hafa frá fyrsta degi verið upp­bygg­ing grunn­inn­viða og grunn­þjón­ust­unnar. Fólkið og sam­fé­lögin sjá svo um rest, það er verð­mæta­sköp­un­ina með upp­bygg­ingu atvinnu­tæki­fær­anna. Þar af leið­andi hefur áhersla mín verið á að ryðja hindr­unum úr vegi fólks með lausnum og athöfnum.“

Starf alþing­is­manns felst fyrst og fremst í því að vera með virka hlustun.

Hann er spurður hverju honum finn­ist þér þú helst hafa komið til leiðar í störfum sínum á Alþingi.

„Ég hef aðstoðað fjöld­ann allan af fólki í sínum áskor­unum og koma verk­efnum áfram sem bæta okkar sam­fé­lag. Starf alþing­is­manns felst fyrst og fremst í því að vera með virka hlustun eftir því sem betur má fara og aðstoða fólk í að fá lausn sinna mála í kerf­inu. Þetta er allt gert með hug­sjón­ina að leið­ar­ljósi.“

Treystir Útlendingastofnun og lögreglunni

Fréttir um hæl­is­leit­endur eru áber­andi þessa dag­ana og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram nýtt frum­varp um útlend­inga­lög. Hver er skoðun Vil­hjálms á þessu öllu?

„Mín skoðun er skýr og er algjör­lega eftir grunn­gildum okkar flokks. Við eigum að treysta á fjöl­breyti­leik­ann og taka vel á móti því fólki sem vill koma og nýta sína starfs­krafta hér á landi, bera ábyrgð á sjálfu sér og taka fullan þátt í okkar sam­fé­lagi. Við eigum að hafa hér vernd­ar­kerfi fyrir þá sem eru í neyð og þurfa skjól vegna þess að líf þeirra og limir eru í hættu og þau velja að koma til okkar í leit að öryggi. Við verðum svo að hafa skýrar reglur og skil­virka fram­kvæmd til að skilja á milli hverjir koma hingað til lands og til­heyra vernd­ar­kerf­inu og hverjir ekki. Þeir sem fá ekki vernd eiga að fá skjót svör svo þau geti snúið aftur þangað sem þau komu án þess að hafa þurft að bíða hér í marga mán­uði. Aðal­at­riði er að þetta séu skýrar reglur og fram­kvæmdin skil­virk. Það er best fyrir alla. Fólk verður að hafa í huga að þetta er flók­inn mála­flokkur sem er ekki hægt að alhæfa um og erfitt að upp­lýsa um aðstæður hvers og eins. Flótta­maður er ekki það sama og flótta­maður og hæl­is­leit­andi ekki það sama og hæl­is­leit­andi. Ég treysti því sem Útlend­inga­stofnun og lög­reglan eru að gera í þessum efnum. Þetta snýst líka um sam­spil lög­gjafar og fram­kvæmdar og því eru lögin bara einn hluti af heild­ar­mynd­inni.“

Með skýrri lög­gjöf og skil­virkri fram­kvæmd er hægt að draga úr slíkum komum sem setja álag á vel­ferð­ar­kerfið okkar.

Hvað með til­hæfu­lausar umsóknir, hæl­is­leit­endur sem villa á sér heim­ildir, mis­nota vel­ferð­ar­kerfið og efna­hags­flótta­menn?

„Eins og ég sagði áðan þá hefur þessi mála­flokkur margar birt­inga­myndir og því ekki hægt að alhæfa um þetta. Sumir koma hingað fyrir til­stuðlan skipu­lagðra glæpa­hópa. Það skiptir miklu máli að lög­gjöfin okkar sé ekki með glufu fyrir slíka hópa að starfa hér; um leið höfum við þá skyldur gagn­vart því fólki sem hingað er komið á vegum glæpa­gengja. Að frelsa þau undan slíkum hópum og það er risa­verk­efni. Það er eðli­legt að til okkar leiti þeir sem eru að leita sér að betra lífi og eru því með til­hæfu­lausar umsóknir eða efna­hags­flótta­menn en með skýrri lög­gjöf og skil­virkri fram­kvæmd er hægt að draga úr slíkum komum sem setja álag á vel­ferð­ar­kerfið okkar. Um leið þurfum við að taka umræð­una hvort við viljum aðstoða slíkt fólk að koma til okkar á eigin vegum til að vinna og standa á eigin fótum.“

Vil­hjálmur segir að aðal­at­riðið sé að það er ekki gott fyrir neinn, hvorki sam­fé­lagið okkar né þá sem hingað koma, ef fólk er bara sett afskipt í búsetu hingað og þangað. „Þau eru komin inn í annan menn­ing­ar­heim, annað tungu­mál og án alls tengsla­nets. Því skiptir miklu máli að þeir sem þurfa ekki nauð­syn­lega að vera inni í vel­ferð­ar­kerf­inu fari fljótt þangað sem þau eiga að vera sam­kvæmt aðstæðum og að þeir við­kæmu hópar sem hér eru séu á stað þar sem hægt er að veita þeim allan þann nauð­syn­lega stuðn­ing sem þau þurfa: Félags­þjón­usta, heil­brigð­is­þjón­usta, skóla­þjón­usta, hús­næði, fæði og annar stuðn­ingur. Það er erfitt að sinna því á afskekktum stöðum, dreift um allt land og í sam­fé­lögum sem ekki eru undir það búin.“

Hefur ekkert um það að segja

Talið berst að heim­il­is­lausum Íslend­ingum og fólki á besta aldri sem er með fötlun sem fá kannski ekki inni nema á elli­heim­ilum.

„Þar komum við aftur að hug­sjón­inni. Fyrsta úrræði er alltaf að hjálpa fólki, til dæmis heim­il­is­lausum, til sjálfs­hálpar og gera þeim kleift að standa á eigin fótum. Við höfum fullt af öfl­ugu fólki og fyr­ir­tækjum sem eru með lausnir og hafa hvata til að gera það á hag­kvæman hátt. En við erum svo föst í opin­beru kerf­unum að allt verður dýr­ara og bara rík­is­lausnir í boði. Þá ger­ist þetta að allir verða settir í sama kass­ann þó hann henti ekki. Það er galið að við ræðum þjón­ustu fyrir fólk með mis­mun­andi sér­þarfir alltaf í pen­ingum fyrir steypu til bygg­ingar búsetu­úr­ræða. Í stað þess að skil­greina hver rétt­indi þeirra sem þurfa á félags- og heil­brigð­is­þjón­ustu eru og ein­stak­lingar fái þá þjón­ustu í sam­ræmi við sitt heilsu­far, sína fötlun og sínar þarfir og leyfum fólki að hafa meira að segja um sína búsetu hagi. Í dag eru rík­is­reglur um það hvernig hjúkr­un­ar­heim­ili á að líta út. Fólk hefur ekk­ert um það að segja hvernig húsa­kostur þess er eftir að þau koma inn á stofnun.“

Þurfum að skoða regluverkið

Hvað vill Vil­hjámlur gera til fram­tíðar í vel­ferð­ar­málum?

„Frelsi til úrræða eða að fólk með lausnir fái frelsi og tæki­færi til að bjóða upp á sínar lausnir því þannig þró­umst við áfram. Við verðum líka að þora að gera stórar kerf­is­breyt­ingar til að kerfin henti not­end­unum betur og fjár­magnið nýt­ist betur fyrir þau. Grunn­for­sendan fyrir öfl­ugu vel­ferð­ar­kerfi er alltaf enn öfl­ugri verð­mæta­sköpun sem kemur hvergi ann­ars staðar en úr sterkara og fjöl­breytt­ara atvinnu­lífi.“

Með auknu alþjóð­legu sam­starfi getum við náð langt í að upp­ræta þessa starf­semi hér á landi.

Vil­hjálmur var lög­reglu­maður á sínum tíma. Hvað þarf að gera varð­andi harð­ari und­ir­heima og skipu­lagða glæp­a­starf­semi?

„Það þarf að efla sam­starf lög­gæslu­stofn­anna sem og ann­arra stofn­anna við rann­sókn á slíkri starf­semi og setja aukið fjár­magn í að manna slíkar rann­sóknir svo önnur verk­efni lög­reglu dragi ekki úr vinn­unni gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Við þurfum líka að skoða reglu­verkið okkar í sam­ræmi við nágranna­þjóðir okkar til að auka traust og sam­starf á milli land­anna því þessi starf­semi spyr ekki um landa­mæri. Með auknu alþjóð­legu sam­starfi getum við náð langt í að upp­ræta þessa starf­semi hér á landi.“

Hver er draum­ur­inn hvað varðar stjórn­málin? Er það for­mað­ur­inn? Ráð­herrannn?

„Draum­ur­inn í stjórn­málum er alltaf að geta haft áhrif til góðs fyrir sam­fé­lagið. Hvernig þeim mark­miðum er náð skiptir ekki öllu fyrir mig, bara að sam­fé­lagið verði betra og ég trúi því að mín hug­sjón og flokks­ins míns geri gagn þar. Sem ráð­herra hefur maður vissu­lega meiri áhrif og er það eitt­hvað sem ég horfi til að fá að nota mína krafta í einn dag­inn fyrir hug­sjón­ina. Ég hef ekki stefnt að því hingað til að verða for­maður flokks­ins.“

Vil­hjálmur er spurður hvernig hann myndi lýsa sér sem stjórn­mála­manni.

„Ég er frjáls­lyndur íhalds­maður sem trúi á það góða í fólki.“

Fjallgöngur og útilegur

Nýr rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að það fyrsta sem hann geri þegar heim er komið að vinnu­degi loknum sé að fara úr vinnu­föt­unum og knúsa fjöl­skyld­una. „Ég nýt mín best með fjöl­skyld­unni og nýti tím­ann utan vinnu sem mest með henni. Ég er mik­ill áhuga­maður um íþróttir og þar helst körfu­bolta. Ég næ að sinna því í gegnum syni mína helst núna og svo hef ég mjög gaman af hvers konar úti­vist og nýti hvert tæki­færi til að fara með fjöl­skyldu og vinum hvort sem það er í fjall­göngur, úti­legu eða hvað sem er úti í nátt­úr­unni.“

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað Vilhjálm?

„Mín fyrsta stóra og erf­iða lífs­reynsla var þegar ég missti ömmu mína unga í bílslysi en það hefur alltaf hjálpað mér hvað við eigum stóra og sam­heldna fjöl­skyldu sem tókst á við það verk­efni saman og gerum enn. Ég hef svo búið að því við önnur áföll innan fjöl­skyld­unnar. Það er kannski klisja en samt sem áður þá er fjöl­skyldan það mik­il­væg­asta sem maður á í líf­inu. Það sem hefur kannski mótað mig hvað mest eru 10 ára störf innan lög­regl­unnar. Þar sá maður allar teg­undir lífs­ins, slæmar og góðar, og var mis­erfitt að takast á við það. Það hefur ekk­ert hjálpað mér jafn­mikið við þing­störfin eins og reynslan úr lög­regl­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina