Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Marinó kemur Herði Torfassyni til varnar: „Hans góði orðstír mun ekki deyja“

Marinó kemur Herði Torfassyni til varnar: „Hans góði orðstír mun ekki deyja“

Marinó G. Njálsson hafnar því alfarið að Bús­á­hald­ar­bylt­ingin hafi verið til einskis líkt og Bragi Hall­dórs­son hefur haldið fram. DV fjall­aði um færslu Braga fyrr í dag en líkt og fyrr segir telur hann að bylt­ingin hafi verið til einskis. Marinó bendir á að þökk sé henni hafi Davíð Oddsson verið rekin úr starfi og að rík­is­stjórn Geirs H. Haarde hafi farið frá völdum tveimur árum fyrr en hefði þurft.

Pistill Marinós í heild sinni:

Í færslu á Facebook er því haldið fram að Bús­á­halda­bylt­ingin hafi verið til einskis og þætti Harðar Torfa­sonar í henni sé ekki gert nægi­lega hátt undir höfði.  Fjallað er um þessa færslu á dv.is.

Bús­á­halda­bylt­ingin skil­aði kannski ekki öllu því sem fólk von­að­ist til, en hún var ekki til einskis.  Bús­á­halda­bylt­ingin varð til þess að rík­is­stjórn Geirs H. Haarde fór frá völdum tveimur árum fyrr en hefði þurft.  Bús­á­halda­bylt­ingin varð til þess að Davíð Oddsson var rek­inn úr starfi seðla­banka­stjóra.  Bús­á­halda­bylt­ingin varð til þess að Stjórn­laga­ráð skrif­aði drög að nýrri stjórn­ar­skrá, þó fjór­flokk­ur­inn komi enn í veg fyrir að þjóðin fái hana.  Bús­á­halda­bylt­ingin varð til þess að spill­ing fyr­ir­hrunsár­anna var rann­sökuð.  Bús­á­halda­bylt­ingin varð upp­hafið að sið­bót, sem ekki sér fyrir end­ann á, þó hún mætti ganga hraðar og vera meiri.  Bús­á­halda­bylt­ingin hratt af stað við­horfs­breyt­ingu hjá stórum hluta­þjóð­ar­innar, þó svo að ákveð­inn hluti hafi for­herst í sinni skoðun.

Nei, Bús­á­halda­bylt­ingin varð ekki til einskis, en hún hefði mátt leiða til meira afger­andi breyt­inga og við verðum að passa okkur á því að gefa ekki eftir með kröfur okkar til breyt­inga og sið­bótar.

Höfundur færsl­unnar, sem ég vís­aði til, telur Hörður Torfason ekki njóta þeirrar virð­ingar og við­ur­kenn­ingar sem hann á skilið vegna hans fram­lags til Bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar.  Ég vona inni­lega, að Hörður hafi ekki farið af stað með úti­fund­ina til að öðl­ast virð­ingu og við­ur­kenn­ingu, heldur vegna þess að honum mis­bauð órétt­lætið.  Hann þurfti a.m.k. ekki frek­ari virð­ingar eða við­ur­kenn­ingar hjá mér.  Hann hafði fyrir löngu áunnið sér hana með óeig­in­gjarnri bar­áttu sinni fyrir sjálf­sögðum rétt­indum sam­kyn­hneigðra.  Hans þáttur í Bús­á­halda­bylt­ing­unni er kom­inn á spjöld sög­unnar.  Hans góði orðstír mun ekki deyja.

Margir tóku þátt í Bús­á­halda­bylt­ing­unni og fóru fyrir hinum ýmsum her­sveitum hennar.  Því miður var ekki þátta­taka allra af sömu óeig­in­girni og Harðar.  Það var kannski þess vegna sem vatn­aði undan henni.  Fólkið sem var þarna vegna bylt­ingar almúg­ans gafst upp á fólk­inu sem var þarna til að ota sínu tota.  Talaði við mann um dag­inn, sem var mjög ötull í bar­átt­unni, en gafst upp, þegar egóið varð ofan á.  Fyrir kosn­ing­arnar árið 2013 náði þessi sjálf­hverfa hámarki, þegar umbóta­öflin gengu hvert af öðru dauðu með því að hafna sam­vinnu.

Að þessu leyti át bylt­ingin börnin sín, en hún skildi eftir kart­öflur víða í sam­fé­lag­inu, sem sést í óþoli stórra hópa fyrir fúsk­inu í Íslands­banka­söl­unni, við­skipta­háttum Samherja í Namibíu, auð­söfn­un­inni hjá kvóta­greifum, órétt­læt­inu sem tekju­lágir búa við og svona mætti lengi telja.  Allt eru þetta mál­efni sem hefðu ekki farið hátt fyrir 20-30 árum.

Bús­á­halda­bylt­ingin var ekki til einskis og góður orðstír Harðar Torfa­sonar mun lifa á spjöldum sög­unnar.

—

Ég tók á ýmsan hátt þátt í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.  Það var með skrifum á Mogga-blogg­inu, þátt­töku í starfi Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, mætti á fundi hjá Herði (var einu sinni ræðu­maður), hef veitt erlendum fjöl­miðlum fleiri við­töl en tölu verður á komið (það síð­asta var núna í sumar) og skrifað ótelj­andi pistla með ábend­ingum um það sem betur má fara, kröfu um rétt­læti, sann­girni og jöfnuð.  Hjá mér er bar­áttan enn í gangi og hún mun ekki hætta meðan breyt­inga er þörf, enda holar drop­inn stein­inn.  Auðvitað hefði ég viljað að breyt­ing­arnar hefðu verið meiri og gengi hraðar, en ég ætla heldur ekki að van­meta þær sem hafa orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina