Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022

Minning: Jóhannes Björn Lúðvíksson 1949-2022
Jóhannes Björn Lúð­víks­son Mynd: skak.is

Við vorum átta ára gamlir þegar fundum okkar bar saman í fyrsta sinn. Ég var nýfluttur inn í Vað­nes­hring­inn sem var umvaf­inn af Lauga­vegi, Klapp­ar­stíg, Hverf­is­götu og Smiðju­stíg, en hlaut síðar nafn­gift­ina Sirkus­reit­ur­inn og nefn­ist í dag, Hjarta­torg. Jóhannes Björn var að sýsla hjá dúfna­kofa sem eldri bróðir hans hafði reist í bak­garð­inum. Ég staldr­aði við þegar hann leit upp með glettn­is­svip og spurði: “Hvað heitir mamma þín”? Vin­skapur okkar átti eftir að þroskast og þró­ast og var afar náinn alla tíð. Þarna mynd­að­ist sterkur vina­hópur með auð­ugt ímynd­un­ar­afl, sem hélt uppi öfl­ugu félags­starfi. Við bárum einnig út dag­blöð og seldum “Íslenska fyndni”. Jónína, móðir Jóhann­esar Bjarnar sá það fljótt í hendi sér að best væri að opna húsið við Hverf­is­göt­una, sem varð okkar mið­stöð næstu árin. Stofnað var knatt­spyrnu­fé­lagið “Sam­herjar” sem atti kapp við önnur hverf­is­fé­lög, borð­tennis­klúbbur, “bridge” klúbbur, tafl­klúbbur “smá­meist­ara” og enda­lausir götu­leikir, þar sem hápunkt­ur­inn var að hlaupa Vað­nes­hring­inn undir einni mín­útu. Næsti nágranni okkar var “Billi­ard­stofan” við Klapp­ar­stíg sem var bönnuð innan sextán ára. Okkur lang­aði að prófa snóker­inn og svindl­uðum okkur inn bak­dyra­megin, á neðri hæð. Eig­end­urnir gripu okkur yfir­leitt, en sáu fram á að þarna færu fram­tíð­ar­spil­arar.

Jóhannes Björn var góðum gáfum gæddur, óvenju hug­mynda­ríkur, og hafði sterkar skoð­anir á flestum hlutum. Í stað þess að ganga mennta­skóla­veg­inn lagð­ist hann í bók­lestur, einkum skáld­sagna og ljóða, og naut þess að leiða mig inn í þá ver­öld með sinni ein­stöku frá­sagn­ar­gáfu. Það tók oft á tíðum óra­tíma fyrir mig að kom­ast heim eftir ferða­lag frá eld­húsi, inn í stofu, fram á gang og út á götu. Enda­sprett­ur­inn niður tröpp­urnar tók yfir­leitt lengstan tíma. Húsið hafði margar vist­ar­verur og ýmis­legt átti sér stað sem ekki var ein­falt að útskýra. Jónína, sá fleira en flestir og las stundum fram­tíð fólks í gegnum kaffi­bolla. Gunnar, “Skáldið”, félagi okkar tjáði mér nýlega að konan sem var á kreiki væri fyrr­ver­andi eig­andi húss­ins, sem minnti mig á sög­una um það, þegar tví­burarnir, eldri systur Jóhann­esar Bjarnar voru litlar, sáu þær kon­una og upp­lýstu að hún væri að fela sig á bak við píanóið, sem stóð fast upp við vegg. Ég fór aldrei upp í ris.

Síðar, þegar við stund­uðum nám saman á Suður-Englandi, fengum við mik­inn áhuga á ind­verskri mat­ar­gerð og leit­uðum uppi slíka mat­sölu­staði. Við ákváðum að þroska og þróa okkar bragð­lauka til þess að ráða við auk­inn styrk­leika. Við pönt­uðum sterkasta rétt­inn sem þurfti sól­ar­hrings fyr­ir­vara, en auð­vitað tók nokkra daga að fá eðli­legt bragð­skyn til baka. Á tíma­bili stóð ég í þeirri mein­ingu að ég hefði fengið gat á mag­ann. Okkar vin­skapur varð til þess að ég gat leitað til Jóhann­esar Bjarnar þegar mig vant­aði ljóð við lög sem ég var að semja eða vinna með. Einnig er minnistætt fram­halds­leik­ritið, “Innrásin frá Markab”, sem hann samdi fyrir þætti sem ég vann fyrir Rík­is­út­varpið á sínum tíma. Ég er þakk­látur fyrir að hafa kynnst Róberti, syni Jóhann­esar Bjarnar og Þóru Ásbjörns­dóttur, þegar ég kenndi honum í Foss­vogs­skóla, og hef fylgst vel með honum í gegnum árin. Ekkjunni, Beth Sue Rose, kynnt­ist ég síðar þegar ég dvaldi hjá þeim hjónum í nokkra daga, á heim­ili þeirra í New York, á leið minni til Kali­forniu og Japan.

Jóhannes Björn hafði mik­inn áhuga á mann­tafli og var afar öfl­ugur skák­maður. Hann varð ung­linga­meist­ari Reykja­víkur í skák 16 ára að aldri og tók þátt í alþjóð­legu skák­móti í Hollandi, fyrir Íslands hönd. Það hlaut að koma að því að hann gæfi út bók, og ungur að árum gaf hann út ljóða­bók­ina “Blá­stjörnur”. Síðar rit­aði Jóhannes Björn þá merki­legu bók “Falið vald”, sem má segja að hafi sett ‘hrunið 2008’ í hnot­skurn löngu áður en það átti sér stað. Það kom því ekki á óvart að hann yrði kall­aður heim frá New York sem sam­fé­lags­rýnir hjá sjón­varpi og fjöl­miðlum, til þess að kafa ofan í kjöl­inn og taka ríkan þátt í þeirri umræðu og upp­bygg­ingu, sem átti sér stað í kjöl­far hruns­ins. Blessuð sé minn­ing Jóhann­esar Bjarnar.

Sverrir Guð­jóns­son

HORFNIR DRAUMAR (höf: Sverrir Guð­jóns­son)

haustið fellur að
brátt flæðir vet­ur­inn yfir
blóð­rauðir runnar
á snævi þakktri jörð

ég opna hell­inn til hálfs
horfi til hafs
gegnum hvít rís­landi lauf
sem hvísla í gol­unni

kertið hefur brunnið ofan í kviku
síð­asta and­varp log­ans
fyllir vitin höfgum ilmi
löngu horfinna drauma

Minn­ing­ar­grein þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem nálg­ast má í Bónus og Hagkaup fríkeypis. Þá má einnig lesa blaðið í raf­rænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina