Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ofbeldi og íslenskt samfélag: „Þolendur ofbeldis bera ör á líkama og sál alla ævi“

Ofbeldi og íslenskt samfélag: „Þolendur ofbeldis bera ör á líkama og sál alla ævi“
Elín Jós­eps­dóttir.

Elín Jós­eps­dóttir skrifar grein sem er birt í til­efni 16 daga átaks gegn kyn­bundnu ofbeldi, og hefst á þessum orðum:

„Við lifum á tímum sem mörg vilja kalla tíma útskúf­unar- eða slauf­un­ar­menn­ingar. Við lifum á tímum þar sem við erum að læra að kalla hlut­ina réttum nöfnum og það sem áður var talað um í hálfum hljóðum sem fjöl­skyldu­harm­leik er nú ein­fald­lega talað um sem ofbeldi.“

Elín bætir því við að „í dag trúum við þolendum og hjálpum þeim, auk þess sem við drögum ger­endur til ábyrgðar. En mörgum þykir þó of langt gengið að útskúfa ger­endum úr sam­fé­lag­inu og eru fljót að bjóða þá vel­komna aftur eftir nokk­urra mán­aða hlé. Það sem ger­endur þurfa að þola vegna gjörða sinna þykir nægi­lega slæmt til þess að sam­fé­lagið fyr­ir­gefi þeim, burt­séð frá því hvort ger­endur hafi tekið ábyrgð eða dregið ein­hvern lær­dóm af því að þolendur þeirra opna sig.“

Hún bendir á að „það kemur vissu­lega fyrir að ger­endur þurfi að þola ýmis­legt vegna gjörða sinna, til dæmis að fólk sendi þeim ljót skila­boð eða tali um gjörðir þeirra opin­ber­lega. Þeir þurfa að þola að missa vinn­una eða fá ekki vinnu í sínum bransa. Sumir þurfa jafn­vel að þola það að fjöl­skylda og vinir snúi við þeim baki.

Þolendur þurfa að þola var­an­legan skaða af völdum ofbeldis. Margir þolendur ofbeldis hafa örkuml­ast vegna bar­smíða og glíma oft við þung­lyndi, kvíða og áfallastreitu árum saman eftir ofbeldi. Þau þurfa að þola það að bera ör á lík­ama og sál alla ævi. Þolendur ofbeldis þurfa oft að þola það að yfir­gefa heim­ili sín. Heilu fjöl­skyld­urnar eru sendar með lög­reglu­fylgd í Kvenna­at­hvarfið þar sem þau þurfa að dvelja jafn­vel mán­uðum saman, á meðan ger­andi fær að sitja eftir heima. Þau þurfa að líta yfir öxl sína á leið í vinnu og skóla á meðan ger­andi hring­sólar þar í kring og sendir þeim jafn­vel skila­boð um það á meðan.“

Hún færir í tal að „þolendur þurfa að þola það ítrekað að koma augliti til auglitis við ger­endur sína. Konur og börn þurfa oft að mæta körlum sem hafa beitt þau and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi og sitja undir ógn­andi hegðun og hót­unum í rétt­ar­sal, í umgengni, í for­eldra­við­tölum og ýmsum öðrum aðstæðum. Margir þolendur þurfa að þola fátækt. Þolendur þora oft ekki í vinnu af ótta við ger­endur og missa þannig vinn­una.“

Elín bendir á að „ger­endur hafa einnig oft stjórn á fjár­málum þolenda sinna, auk þess sem þeir geta komið í veg fyrir það að þau fái fjár­hags­að­stoð með því að neita að sam­þykkja skilnað. Þolendur hafa þurft að þola það að vera útskúfað úr sam­fé­lagi sínu. Margir þolendur finna fyrir óbeinum for­dómum í umhverfi sínu eftir að hafa opin­berað ofbeldi, en öðrum er bók­staf­lega bolað burt með und­ir­skrifta­listum eða beinum hót­unum frá nærum­hverfi sínu.

Við sem sam­fé­lag þurfum að kom­ast að því hvernig við ætlum að taka á ofbeldi og hvernig við viljum aðstoða þolendur og ger­endur í ofbeld­is­málum. En við megum ekki gleyma því hver eru hinir raun­veru­legu þolendur. Við megum ekki gleyma því hver hin útskúf­uðu eru í raun og veru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina