Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins sýknaður

Fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins sýknaður

Kári Jónasson – sem starf­aði lengi sem frétta­stjóri á frétta­stofu útvarps og var um tíma rit­stjóri Frétta­blaðs­ins – var sýkn­aður vegna ummæla um Ferða­mála­skóla Íslands, eins og fram kemur á RÚV.

Kemur fram að Kára var stefnt vegna ummæla sem hann við­hafði í sjón­varps­þætti um Ferða­mála­skóla Íslands; þá var hann með­stjórn­andi í Félagi leið­sögu­manna.

Lands­réttur stað­festi sýknu­dóm­inn yfir Kára, sem var kærður fyrir meið­yrði gegn Mennta­mið­stöð­inni, sem krafð­ist þess að ummæli sem Kári lét falla í þætt­inum „Ferða­lagið“ á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, sem var á dag­skrá 4. nóv­em­ber árið 2016, væru dæmd dauð og ómerk; auk þess var farið fram á skaða­bætur.

Áður­nefnd Ummæli Kára sneru að Ferða­mála­skóla Íslands – sem Mennta­mið­stöðin rekur; sótti mið­stöðin málið á þeim grund­velli að ummælin hafi mátt skilja og túlka sem að leið­sögu­manna­nám á vegum skól­ans væri ekki kennt sam­kvæmt námskrá mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins:

„Okkur finnst dálítið skrýtið af hverju þessi skóli getur ekki kennt sam­kvæmt námskrá mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins,“ sagði Kári í þætt­inum áður­nefnda.

Á þeim tíma var Kári með­stjórn­andi í Félagi leið­sögu­manna og Mennta­mið­stöðin krafð­ist þess að hann greiddi skaða­bætur upp á tvær og hálfa milljón króna vegna ummæl­anna.

Einnig var þess kraf­ist að Kári greiddi máls­kostnað í hér­aði sem og Lands­rétti.

Auk sýknu­dóms krafð­ist Kári að Mennta­mið­stöðin greiddi máls­kostnað hans á báðum dóm­stigum.

Kemur einnig fram að þátt­ur­inn hafi verið kynntur með þeim hætti að þar yrði rætt um leið­sögu­menn; sér í lagi þá sem hefðu enga menntun til að gegna leið­sögu­mennsku.

Við­mæl­end­urnir í þætt­inum voru tveir. Kári og starf­andi for­maður Félags leið­sögu­manna.

Í kynn­ingu þátt­ar­ins kom fram að við­mæl­end­urnir tveir gagn­rýndu það að ekki væri búið að lög­gilda starfs­heiti leið­sögu­manna.

Ummæli Kára voru svar við spurn­ingu stjórn­and­ans um það hvort Ferða­mála­skóli Íslands hafi hlotið við­ur­kenn­ingu mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Svar Kára í heild sinni var:

„Nei, já, okkur hefur gengið illa að ná sam­bandi við for­ystu­menn þess skóla en það getur verið að það séu margir hæfir og góðir menn sem að kenna þar og allt það, en okkur sárnar það og okkur finnst dálítið skrýtið af hverju getur þessi skóli ekki kennt sam­kvæmt námskrá mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins.“

Úrskurður Lands­réttar var sá að stað­festa sýknu hér­aðs­dóms á grund­velli tján­ing­ar­frelsis; mat dóm­ur­inn það að ummælin hefðu verið hluti af opin­berri umræðu um mennta­mál leið­sögu­manna á árinu 2016. Vegna þess yrði Kára játað nokkuð vítt svig­rúm til tján­ingar, þar sem orð hans beindust að atvinnu­fyr­ir­tæki en ekki ein­stak­lingi, yrði það að þola meiri gagn­rýni.

Einnig að þá væri það yfir vafa hafið að full­yrð­ing Kára um að skól­inn kenndi ekki sam­kvæmt náms­skrá mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins væri sönn.

Engin námskrá var þó í gildi fyrir leið­sögu­nám á þessum tíma; auk þess er Ferða­mála­skóla Íslands í sjálf­vald sett hvort skól­inn leitar opin­berrar stað­fest­ingar á námi sínu, enda sé hann einka­skóli.

Á þaðmá þó benda að svo segir í dómnum að ekki verði annað ráðið af gögnum máls­ins en að aðrir skólar sem mennt­uðu leið­sögu­menn sína á þessum tíma hafi gert rík­ari mennt­un­ar­kröfur við inn­töku í námið.

Varð nið­ur­staðan sú að stað­festa sýknu­dóm­inn úr hér­aði; Lands­réttur dæmdi Mennta­mið­stöð­ina til að greiða tvær millj­ónir króna í máls­kostnað Kára á báðum dóms­stigum máls­ins.

Eins og áður sagði starf­aði Kári lengi við fjöl­miðla. Hann var árið 1973 ráð­inn á Frétta­stofu Útvarps; varð vara­f­rétta­stjóri sjö árum síðar og frétta­stjóri Útvarps á árunum 1987 til 2004, en þá gerð­ist hann rit­stjóri Frétta­blaðs­ins; gegndi því starfi fram á árið 2007 er hann lét af störfum sem blaða- og frétta­maður.

Síðustu ár hefur Kári ein­beitt sér að starfi sem leið­sögu­maður fyrir erlenda ferða­menn hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina