Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Axel: „Verktakar stjórna framboði og eftirspurn á húsnæðismarkaðnum“

Axel: „Verktakar stjórna framboði og eftirspurn á húsnæðismarkaðnum“

Axel Jón Ellen­ar­son skrifar athygl­is­verðan pitil um stöð­una á leigu­mark­að­inum á Íslandi á Facebook-síðu sinni.

Hann segir að „á hús­næð­is­leigu­mark­aði þar sem leigu­fé­lög og allir leigusalar mega hækka leigu eins og þeim sýn­ist; í verð­bólgu þegar Seðla­bank­inn hækkar stýri­vexti er verið að gefa fjár­mags­eig­endum tæki­færi til að hækka allt sem svo almenn­ingur greiðir fyrir.

Boltinn rúllar af stað.

Afborg­anir hús­næð­is­lána hækka, mat­vöru­verð hækkar, allt hækkar og kaup­máttur rýrnar.“

Bætir við:

„Þessi svo­kall­aði frjálsi mark­aður sem ýmsir „trúa“ á er án reglu­verks og slíkt er óskapn­aður sem almenn­ingur þarf að greiða fyrir – en ekki fjár­magns­eig­endur né fyr­ir­tækin.

Seðla­banka­stjóri sagði í útvarps­við­tali í vik­unni að í gegnum kjara­samn­inga SGS væri fólk að fá mikla pen­inga strax. Það var mjög ein­kenni­legt að heyra vegna þess að kjara­samn­ing­arnir skapa ekki raun­veru­lega kaup­mátt­ar­aukn­ingu heldur fara þær kjara­bætur beint í að greiða fyrir það sem Seðla­bank­inn hefur skapað fyrir reglu­lausan „frjálsan markað.““

Axel nefnir að „allar launa­hækk­anir renna í vasa fjár­magns­eig­enda. Þegar honum var bent á þetta í útvarps­við­tal­inu var aug­ljóst að hann hafði ekki reiknað með spurn­ing­unni og svar­aði: „ … jújú, en margir eiga pen­inga til að eyða, við skulum bara orða það þannig.“

Ekki veit ég hvaða fólk það er sem hann á við meðal launa­fólks. Fólk nær vart endum saman milli mán­aða og sá vandi vex. Svo sagði hann: „Íslend­ingar eru ekki vanir því að það sé eitt­hvað verið að segja þeim fyrir verkum. Og það alveg sama þó þessi þjóð hafi svo margoft hlaupið framúr sér, hvernig hún hefur eytt pen­ingum umfram efni og lent í alls­konar ves­eni þess vegna þá er það alveg sama. Fólk ætlar ekk­ert … sem­sagt fólk tekur þessu ekki vel,“ og átti Ásgeir við að fólk taki þessum orðum hans ekki vel þegar hann sakar þjóð­ina um að hafa ollið banka­hrun­inu 2008, ekki bönk­unum, ekki stefnu stjórn­valda og enn síður Seðla­bank­anum sem lán­aði millj­arða í fallna banka sem töp­uð­ust.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Svo blaðr­aði hann svo­lítið um þjóð­ina sem gagn­rýnir aðgerðir hans og stjórn­valda á sam­fé­lags­miðlum. Þessum litla háværa minni­hluta sem hangir á Facebook. Maðurinn á svörtu­loftum, sem er að því er virð­ist í vinnu fyrir fjár­magns­eig­endur, telur að hækk­anir á fast­eigna­mark­aði hætti!“

Axel segir að „það er ótrú­legt skiln­ings­leysi þar sem fast­eigna­mark­að­ur­inn lýtur reglu­lausum frjálsum mark­aði. Verk­takar stjórna fram­boði og eft­ir­spurn á hús­næð­is­mark­aðnum og þekkt er að þeir bíða með að selja íbúðir til að þrýsta verð­inu upp með auk­inni eft­ir­spurn.

Bygg­inga­verk­takar kunna á frjálsan markað. Þeir okra á hús­næði og almenn­ingur á engra kosta völ en að taka hærri lán og borga hærri afborg­anir af lánum sínum. Ekkert leigu­þak er og ekk­ert reglu­verk er á húnsæð­is­mark­aði. Verk­tak­arnir mega leika sér eins og þeim sýn­ist með fram­boð og eft­ir­spurn. Þeir sjá um þetta.“

Hann bendir á að „þegar stýr­vextir hækka, hækkar allt annað, vextir og verð­lag. Reglu­laus frjáls mark­aður tekur enga ábyrgð, eðli hans er að græða pen­inga. Ef um hann gilti reglu­verk yrði hann að taka ábyrgð­ina sem frels­inu fylgir og velta ekki launa­hækk­unum út í verð­lagið.

Um þetta sagði Ásgeir Jónsson: „Við verðum að átta okkur á því að efn­hags­lífið er ekki ein­hver vél. Við vitum aldrei hvað ger­ist. Þó við búum til líkön og spár, við vitum aldrei nákvæm­lega hvað ger­ist sko. … íslenska þjóðin verður að átta sig á því að við búum í heimi sem er mjög óstöð­ugur.“

Svo end­aði hann á því að segja að launa­fólk geti ekki farið fram á launa­hækk­anir og um leið lægri stýri­vexti: „Fólk verður að átta sig á að þetta gengur ekki saman.“

Seðla­banka­stjóri spyr sjálfan sig hvort hafi komið á undan hænan eða eggið; hvort ákvarð­anir hans um að hækka stýri­vexti hafi valdið almennum hækk­unum og kaup­mátt­arrýrnun eða hvort auk­inn kaup­máttur á reglu­lausum frjálsum mark­aði hafi leitt til stýri­vaxta­hækk­ana og kaup­mátt­arrýrn­unar? Þessari spurn­ingu sinni getur hann ekki svarað því hann veit ekki hvað ger­ist næst, því efna­hags­lífið er ekki vél.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina