Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tveir fundust látnir í bíl við Slippinn

Tveir fundust látnir í bíl við Slippinn
Menn­irnir fund­ust látnir í bíl við Dan­í­els­slipp. Mynd: YouTube-skjáskot

Þann 1. mars árið 1985 fund­ust félag­arnir Einar Agn­ars­son og Sturla Lambert Steins­son látnir í bif­reið í Dan­í­els­slipp í Reykja­vík. Hafði segl­dúkur verið breiddur yfir bif­reið­ina en nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi með því að tengja slöngu við púströr bif­reið­ar­innar og sett hana inn í bíl­inn í gegnum hlið­ar­rúðu. Þeir hafi sem sagt lát­ist af koltví­sýr­ingseitrun.

Sturla Steins­son

Bróðir Einars, Ragnar Agn­ars­son hefur alla tíð frá and­láti bróður síns verið afar skept­ískur á opin­beru dán­ar­or­sök­ina og telur þá hafa verið myrta.

Einar Agn­ars­son

DV fjall­aði um málið árið 2007 en þar er talað við Ragnar.

Einar Agn­ars­son og Sturla Lambert Steins­son fund­ust látnir í bif­reið í Dan­í­els­slipp í Reykja­vík 1. mars 1985. Segl­dúkur hafði verið breiddur yfir bif­reið­ina. Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi og dán­ar­or­sökin væri koltví­sýr­ingseitrun. Bróðir Einars Ragnar Agn­ars­son er ósáttur með mála­lokin og segir þá hafa verið myrta.

Einar Agn­ars­son og Sturla Lambert Steins­son fund­ust látnir í bif­reið í Dan­í­els­slipp árið 1985. Rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins rann­sak­aði málið og úrskurð­aði að þeir hefðu framið sjálfs­víg. Ragnar Agn­ars­son, bróðir Einars, segir þá ekki hafa fallið fyrir eigin hendi.

Strax og Ragnar Agn­ars­son, bróðir Einars, skoð­aði föt þeirra látnu fyllt­ist hann grun um að ekki væri allt með felldu. Það var að morgni 1. mars 1985 sem þeir Einar og Sturla fund­ust látnir í bílnum í Dan­í­els­slipp.

Búið var að breiða gráan segl­dúk yfir bíl­inn. Ragnar segir úti­lokað að þeir hafi gert það sjálfir. Ragnar er sann­færður um að ein­hver óþekktur maður hafi gert það og átt þátt í dauða tví­menn­ing­anna. Það er fleira sem Ragnar efast um í rann­sókn lög­regl­unnar.

Einar átti erf­iða æsku, ólst upp á Kumb­ara­vogi og síðar Breiðu­vík. Þar sætti hann hrika­legum mis­þyrm­ingum. Elvar Jak­obs­son segir í við­tali, hér á opn­unni, frá hluta þeirra mis­þyrm­inga sem Einar sætti. Einnig að hann hafi hugs­an­lega þurft að þola nauðgun af hálfu manns þegar hann var á Kumb­ara­vogi.

Und­ar­legur dán­ar­tími

„Ég hitti leigu­bíl­stjóra eftir að mér var sagt að Einar og Sturla hefðu tekið líf sitt. Hann var undr­andi yfir þeirri full­yrð­ingu og sagð­ist hafa verið með fimm öðrum bíl­stjórum við Kaffi­vagn­inn seint hina afdrifa­ríku nótt, það er aðfara­nótt 1. mars 1985. Öllum bíl­stjór­unum bar saman um að ekk­ert virt­ist ama að þeim Einari og Sturlu,“ segir Ragnar. Leigu­bíl­stjór­inn er nú lát­inn. Samkvæmt rann­sókn máls­ins lét­ust Einar og Sturla um mið­nætti, sem stang­ast algjör­lega á við fram­burð vitna, að sögn Ragnars.

Hann segir þá ekki hafa haft sjálfs­víg í huga þegar þeir hittu bíl­stjór­ana um nótt­ina.

Dul­ar­fullt blóð

Að sögn Ragnars fékk hann föt þeirra eftir rann­sókn­ina. Hann segir að grunur hans hafi vaknað fyrir alvöru þegar hann skoð­aði fötin.

„Ég sturt­aði föt­unum úr pok­anum, föt Einars lykt­uðu af bens­íni en voru ann­ars tand­ur­hrein. Aftur á móti voru föt Sturlu blóðug, rifin og moldug líkt og hann hefði lent í átökum. Af þeim var ekki bens­ín­lykt,“ segir Ragnar. Hann segir það greini­legt að þeir hafi ekki látið lífið saman eða á sama hátt.

Ragnar hitti almennan lög­reglu­þjón sem hafði komið á vett­vang dag­inn sem þeir látnu fund­ust. Hann sagði Ragnari að aðkoman í Dan­í­els­slipp hefði verið und­ar­leg. Helst vegna þess að búið var að breiða gráan segl­dúk yfir bíl­inn.

Krufn­ing­ar­skýrslan

„Þá fór ég til rann­sóknar­lög­regl­unnar í Kópavogi og var harð­á­kveð­inn í að fá skýr svör um dauða bróður míns,“ segir Ragnar alvar­legur í bragði. Hann seg­ist hafa hitt lög­reglu­mann og eftir nokk­urt þóf á hann að hafa sagt við Ragnar að málið væri ekki jafn ein­falt og það liti út fyrir að vera. Ragnar sagði honum það sem hann vissi um dúk­inn og blóðið og spurði hvernig það hafi kom­ist í föt Sturlu.

„Þá las hann upp úr krufn­ing­ar­skýrsl­unni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig til­komið að lungna­pípur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði,“ segir Ragnar og bætir við: „Sturla var myrtur.“

Róandi lyf

Þegar Ragnar vildi fá að vita um dán­ar­or­sök bróður síns neit­aði lög­reglu­mað­ur­inn að segja meira. Hann skýrði það með þeim rökum að Ragnar væri of nátengdur Einari. Aftur á móti sýndi hann Ragnari lyfja­glas með róandi lyfi. Ragnar full­yrðir að það efni hafi ekki geta orðið þeim að bana, enda báðir vanir ýmsum efnum sökum óreglu. Að sögn Ragnars lyktaði sam­ræð­unum þannig að málið væri til rann­sóknar og yrði áfram. „Endanleg dán­ar­or­sök var sú að þeir hafi lát­ist vegna koltví­sýr­ingseitr­unar,“ segir Ragnar um lok rann­sókn­ar­innar. Hann efast enn um að nið­ur­stöður lög­reglu­rann­sókn­ar­innar séu þær réttu.

Engar upp­lýs­ingar

„Þetta var áfall fyrir mig,“ segir Ragnar um örlög bróður síns og Sturlu. Hann, ásamt systur sinni, hefur reynt að kom­ast til botns í mál­inu. Í tutt­ugu ár hefur málið legið eins og mara á þeim og Ragnar vill fá svör.

Kompáss fjall­aði einnig um málið í des­em­ber 2008 en má sjá umfjöll­un­ina hér.

Mannlíf mun birta um helg­ina hlað­varps­við­tal Hildar Maríu Sæv­ars­dóttur við bróður Einars en þar munu koma fram nýjar upp­lýs­ingar um hin dul­ar­fullu and­lát, sem aldrei hafa áður komið fram á sjón­ar­sviðið.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist upp­runa­lega hjá Mannlífi þann 28. júlí 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina