Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sverrir fer á Meistaramótið í snóker á afmælisdaginn sinn – Vinnur að heimildarmynd um klaustursöng

Sverrir fer á Meistaramótið í snóker á afmælisdaginn sinn – Vinnur að heimildarmynd um klaustursöng
Sverrir Guð­jóns­son og Elín Edda Árna­dóttir Portrett með leyfi: Brian FitzGibbon Mynd: Brian FitzGibbon

Afmæl­is­barn dags­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúnstner­inn Sverrir Guð­jóns­son en hann er 73 ára í dag.

Snemma komu söng­hæfi­leikar Sverris fram en hann var aðeins sjö ára gam­all er hann söng á söng­skemmtun við und­ir­leik föður síns, Guðjóns Matth­í­as­sonar á æsku­stöðvum sínum á Hellisandi en tólf ára gam­all söng hann inn á tvær litlar plötur. Sverrir nam söng á Íslandi sem og á Bret­landseyjum og síðan þá hefur hann sungið inn á mýmargar plötur, bæði undir eigin nafni og ann­arra, sem ein­söngv­ari. Þá er Sverrir einn af stofn­endum Voces Thules en á sínum yngri árum söng hann í hljóm­sveitum á borð við Pónik og þjóð­lagatríó­inu Þremil. Þá var hann vin­sæll bak­radda­söngv­ari í söng­keppni sjón­var­spins á níunda ára­tugnum.

Sverrir er giftur Elínu Eddu Árna­dóttur leik­mynda- og bún­inga­höf­und og eiga þau tvo syni, þá Daða og Ívar Örn.

Mannlíf hafði sam­band við afmæl­is­barnið og spurði hann hvort og þá hvernig hann ætl­aði að fagna deg­inum og ekki stóð á svörum.

„Flaug til London í morg­unsárið. Ferðin átti sér langan aðdrag­anda í tengslum við hið alþjóð­lega Meist­ara­mót í snóker sem fer fram í hinni forn­frægu „Alex­andra Palace“ í norð­ur­hluta Lund­úna­borgar. Við Hugi Guð­munds­son tón­skáld erum miklir aðdá­endur snókers­ins, og spilum þegar tæki­færi gefst, en hann býr í Kaup­manna­höfn. Hugi tók af skarið síð­ast­liðið sumar og pant­aði miða og bauð mér á mótið, en miðar selj­ast upp með löngum fyr­ir­fara. Ég fékk ekki mik­inn svefn fyrir flugið, því hinn mikli meist­ari snókers­ins, Ronnie O’Sullivan, fór á kostum á meist­ara­mót­inu og er nú kom­inn í und­an­úr­slit, sem von­andi verður leik­ur­inn sem við Hugi berjum augum. Við Elín Edda ákváðum að grípa tæki­færið og fljúga á afmæl­is­dag­inn minn og dvelja í nokkra daga í grennd við gömlu Hammersmith brúna, þar sem við bjuggum um nokkra ára skeið, ásamt strák­unum okkar. Hin fræga lista­manna­krá “The Dove” er þar á næstu grösum. Við Elín Edda ákváðum að taka leigu­bíl út á flug­völl og þegar ég nefndi Alex­andra Palace, þá lá við að hinn geð­þekki bíl­stjóri Birgir, þyrfti að stöðva bíl­inn. Hann hróp­aði upp yfir sig, „ertu virki­lega að mæta á meist­ara­mótið í “Allí Pall픓. Ég hafði lent á, að öllum lík­indum, eina bíl­stjór­anum sem er for­fall­inn snóker­að­dá­andi, fékk ungur ‘bakt­er­í­una’ og hefði getað orðið atvinnu­maður, var kom­inn með sinn einka­klúbb á tíma­bili, því ekki vant­aði hæfi­leik­ana.“

En hvað kemur til að Sverri hafi áhuga á snóker?

„Ég féll snemma fyrir snókernum. Við æsku­fé­lag­arnir bjuggum á Hjarta­torg­inu/Sirkus­reitnum/Vað­nes­hringnum og hófum fer­il­inn með því að svindla okkur inn bak­dyra­megin, enda undir lög­aldri. Stundum fórum við inn um glugg­ann á neðri hæð “Billans á Klapp­ar­stíg”, en vorum venju­lega gripnir af eig­endum stað­ar­ins, sem átt­uðu sig á að þarna væru fram­tíð­ar­spil­arar. Við æsku­vin­irnir höfum nú stofnað snókerklúbb og hitt­umst einu sinni í viku á “Billi­j­ard­stof­unni“ í Skeif­unni, sem er í raun “gamli bill­inn“, til þess að halda okkur í þjálfun, og í horf­inu. 

En hvað er svo framundan hjá Sverri?

„Hvað verk­efni varðar, þá er ég að vinna með líbanska/franska kvik­mynda­gerð­ar­mann­inum Jacques Debs og Marie Arnaud, heim­ilda­mynd sem nefn­ist “Chant of the Origines” og teng­ist Gregor söng klaustr­anna í gegnum ald­irnar. Brúin yfir til Íslands er hand­rit Þor­láks­tíða, ritað ca. 1400, sem teng­ist eina dýr­lingi Íslend­inga, Þorláki Þór­halls­syni, sem var biskup í Skál­holti á 12.öld og dvald­ist í París á fimm ára tíma­bili. Ég fékk sím­tal rétt í þessu, sem stað­festir að Stöð 3 í Frakk­landi hefur stað­fest sína aðkomu að fram­leiðslu mynd­ar­innar.

Einnig er verið að leggja loka­hönd á 50 mín tón­leika­mynd­band frá flutn­ingi á nýju verki “Aether“ eftir Hauk Gröndal, sem við í “Frels­is­sveit Íslands” fluttum á Jazzhátíð Reykja­víkur 2022, í Hörpu, ásamt hinum magn­aða finnska pían­ist Kari Ikonen. Verk Hauks, “Four Elements” flutti sveitin á Jazzhátíðinni 2020 og var tón­leika­myndin sýnd hjá Rík­is­sjón­varp­inu, unnin af Brian FitzGibbon.

Við Elín Edda stefnum á að skoða leik­hús og menn­ing­ar­líf þess­arar ynd­is­legu borgar, áður en við höldum yfir til Parísar, undir Erma­sundið, til þess að njóta góðra vina funda.“

Portrett með leyfi: Brian FitzGibbon

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu