Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lokuðu á Dóru leikstjóra eftir spurningar um fjármálin: „Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil“

Lokuðu á Dóru leikstjóra eftir spurningar um fjármálin: „Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil“
Dóra Jóhanns­dóttir Mynd: RÚV

Leik­stjóri Ára­mótaskaups­ins 2022, Dóra Jóhanns­dóttir átti í mestu erf­ið­leikum með að vinna að Skaupinu vegna sam­skipta­örð­ug­leika við fram­leið­anda og aðstoð­ar­leik­stjóra, þá Eið Birg­is­son og Hjört Grét­ars­son en þeir hættu skyndi­lega að tala við hana.

Heim­ildin sagði frá erf­ið­leikum við gerð Ára­mótaskaups­ins í frétt í gær. Þar er vitnað í skýrslu sem Dóra Jóhanns­dóttir leik­stjóri þess sendi á Rík­is­sjón­varpið þann 17. des­em­ber en þar kvartar hún meðal ann­ars yfir afar erf­iðum sam­skiptum við fram­leið­endur og aðstoð­ar­leik­stjóra Skaups­ins.

Selfoss-pressan

Samkvæmt skýrsl­unni, sem Mannlíf hefur einnig undir höndum, var mikil pressa á að taka atriði fyrir Skaupið upp á Selfossi. Ásamt Sig­ur­jóni Kjart­ans­syni er eig­andi að fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu S800, fyr­ir­tækið Sigtún sem byggði og á Nýja mið­bæ­inn á Selfossi. Aðal­eig­andi Sigtúns er útgerð­ar­mað­ur­inn Kristján Vil­helms­son í Samherja, einn auð­ug­asti maður Íslands. Í skýrslu Dóru kemur fram að pressan á að taka upp atriði á Selfossi hafi verið mjög mikil frá fyrst degi en hún óskaði síend­ur­tekið eftir því að þangað yrði ekki farið til að spara töku­tíma.

„Pressan að fara á Selfoss var mjög mikil frá fyrsta degi. Ekkert var hlustað á síend­ur­teknar óskir leik­stjóra um að fara ekki þangað í tökur og finna frekar aðrar lausnir á spít­ala­rými til að missa ekki dýr­mætan töku­tíma í ferða­lög. Af ein­ungis 8 töku­dögum eru 2-3 tímar í óþarfa ferða­lög mjög dýr. Það væri hægt að taka upp 1-2 sketsja á þeim tíma eða gefa sér betri tíma í hina,“ skrifar Dóra í skýrsl­unni.

Er Sigurjón Kjart­ans­son, einn fram­leið­enda, var inntur eftir því í nóv­em­ber hvort ein­hver útisena hafi verið tekin upp á Selfossi neit­aði hann því. Síðar kom þó í ljós að eitt atriði sem hann lék sjálfur í, hafi verið tekið upp utandyra á Selfossi en þar sést í Ölf­usár­brúna. Sagði Sigurjón í sam­tali við Heim­ild­ina að honum hefði yfir­sést að nefna það atriði í nóv­em­ber: „Þetta er smá bútur sem til­heyrir öðrum skets og það sést ekk­ert að þetta sé á Selfossi.“

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps hafði ekk­ert út á vilja fram­leið­enda til að taka Skaupið upp að hluta til á Selfossi er Heim­ildin spurði hann: „Nei, þarna á í hlut fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem stað­sett er á Selfossi. Rétt eins og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem stað­sett eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa til­hneig­ingu til að fram­leiða sitt efni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá þarf ekki að koma á óvart að það vilji fram­leiða sitt efni á Selfossi. Annars fór ekki fram neitt sam­tal sér­stak­lega um hvar Skaupið yrði tekið upp. Það er eitt af því sem við rýnum við loka­yf­ir­ferð, hvort sem er Skaups­ins eða ann­ars efnis sem fram­leitt er fyrir okkur, hvort eitt­hvað sé óvenju­legt við val á töku­stöðum.“

Klippt á samskiptin

Í skýrsl­unni segir Dóra að er henni hafi orðið ljóst eftir að frétt Stund­ar­innar kom út um eign­ar­haldið, að eig­endur Nýja-mið­bæj­ar­ins á Selfossi væru eig­endur S800 fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins ásamt Sig­ur­jóni, hafi hún áttað sig á „Selfoss-press­unni“. Hafi hún í kjöl­farið rætt við á því frá Eið Birg­is­son, með­fram­leið­anda og óskað eftir skýr­ingum á því, vöruinn­setn­ingum og hvers vegna hún hefði ekki fengið að sjá fjár­hags­á­ætlun Skaups­ins, sem venjan sé en hún hafði ítrekað beðið um það.

Sagðist hún hafa upp­lifað sem svo að Eiður hafi brugð­ist við með því að fara í mikla vörn er hún óskaði eftir skýr­ing­unum og hafa talað við hana af „miklum dóna­skap.“ Segir hún að Sigurjón hafi verið við­staddur sam­talið en ekki hafa gripið inn í en beðið hana afsök­unar eftir sam­talið.

Eftir sam­talið við Eið klipptu bæði hann og aðstoð­ar­leik­stjóri Skaups­ins, Hjörtur Grét­ars­son á sam­skiptin við Dóru og varð Sigurjón ein­hvers konar milli­liður eða sendi­boði milli þeirra. Í skýrsl­unni segir: „Fram­leið­andi og aðstoð­ar­leik­stjóri hætta sam­skiptum við leik­stjóra þrátt fyrir að tökur á loka­lagi og pikkup tökur væru eftir, eftir að Stundin birti fréttir um eign­ar­hald S800 og tökur á Selfossi og leik­stjóri fór að spyrja fram­leiðsl­una um budget, spons í mynd og press­una á að fara til Selfoss.“ Segir Dóra í skýrsl­unni að Sigurjón hafi útskýrt fyrir henni að menn­irnir hefðu hætt sam­skiptum við hana því þeim hafi þótt svo erfitt að vinna með henni en full­yrt er í skýrsl­unni að það hafi aldrei borið á góma áður og að Sigurjón hafi ekki sagst hafa upp­lifað það sjálfur. Þar til þetta kom upp hafi hún ein­ungis fengið hrós frá þeim og öðrum í starfs­lið­inu. „Hún var aldrei ein í sam­skiptum við þá, hvorki í síma né per­sónu og því eru vitni úr crew-inu að öllum þeirra sam­skiptum sem geta lík­lega ekki stað­fest sögu þeirra,“ segir í skýrsl­unni.

Af þessum sökum sagði Dóra að álagið á hana og aðra starfs­menn hafi orðið mjög mikið: „Gríð­ar­legt álag varð á leik­stjóra og aðra þegar Eiður og Hjörtur hætta skyndi­lega sam­skiptum en halda samt áfram að vinna að fram­leiðsl­unni og flækti það og trufl­aði mjög og gerði vinn­una mjög erf­iða og bjó til mikla óþarfa streitu og óör­yggi í þeim tökum sem þá voru eftir: loka­lag með mörgum flytj­endum sem var mjög flókið að skipu­leggja og pikköpp tökur þar sem henni var sagt að vera ein­ungis að vera í sam­skiptum við Sigurjón sem var erlendis og svar­aði skila­boðum seint og svar­aði aldrei sím­tölum.“

Dóra segir enn­fremur að hún upp­lifi að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðli­lega gagn­vart henni: „Leik­stjóri upp­lifir að fram­leiðslan hafi hagað sér mjög óeðli­lega gagn­vart henni og hafi ætlað að koma sér undan að þurfa að svara óþægi­legum spurn­ingum hennar með því að mála hana upp sem erf­iða í sam­skiptum á sein­ustu metrum verk­efn­is­ins. Ekkert hafði verið minnst á erfið sam­skipti áður en leik­stjóri hafði beðið um sam­töl um hvað gæti betur farið og alltaf fengið jákvæð við­brögð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina