Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fjölskyldurnar sem virðast hamingjusamastar – eru oft flinkastar við að fela leyndarmálin“

„Fjölskyldurnar sem virðast hamingjusamastar – eru oft flinkastar við að fela leyndarmálin“
Jóhanna Magn­ús­dóttir

„Fjöl­skyld­urnar sem líta oft út fyrir að vera ham­ingju­samastar – eru oft þær sem eru flinkastar við að fela leynd­ar­málin og flinkustu leik­ar­arnir. Ég var sjálf í svona „picture perfect“ sam­bandi –  Ein­býl­is­húsið, jepp­inn, bens­inn,  utan­lands­ferðir,  úti­legur – o.s.frv. Mikið var í það lagt að allt liti vel út og oft „bakk­aði“ ég eig­in­mann minn upp í ein­hverju sem ég var ósam­mála.“

Svo hefst pist­ill eftir Jóhönnu Magn­ús­dóttur prest, sem hún birtir á Facebook. Pistill­inn hefur vakið mikla athygli en fjöl­margir virð­ast tengja við frá­sögn hennar. Hún hvetur fólk sem hefur lent upp á kant við upp­komin börn að ræða við þau. Hún segir for­eldra og börn þeirra oft hafa mis­mun­andi sýn á upp­eld­is­árin.

 Hér fyrir neðan má lesa pistil Jóhönnu í heild sinni

Innan um allt þetta „full­komna“ –  urðu trún­að­ar­brestir sem aldrei var unnið úr.   Það var á báða bóga.   Það var of mikil drykkja á heim­il­inu – og í ferða­lögum.   Það komu upp alls konar atvik sem voru  trauma fyrir börnin. –      Þessu hafa börnin okkar þurft að vinna úr.    Það hefur reynst þeim erfitt og full­orð­insár þeirra alls ekki auð­veld.    Það þýðir ekki að við for­eldr­arnir höfum ekki gert fullt rétt – og gert margt gott,  en það sem börn muna er eins og Maya Angelou segir,   kannski muna þau ekki nákvæm­lega hvað þú sagðir,  ekki nákvæm­lega það sem þú gerðir – en þau muna hvernig þú lést þeim líða.   

Það að gera skemmti­lega hluti saman – fá allt hið ver­ald­lega sem hægt er að kaupa – fá að fara í utan­lands­ferðir o.s.frv. – gerir ekki fjöl­skyldu ham­ingju­sama eða heila.     Það er það sem er að ger­ast inni á heim­il­inu í hvers­deg­inum.   Það eru heil­brigð sam­skipti for­eldra sem skipta máli.   Sam­skipti mín og föður barn­anna voru ekki heil­brigð.     Margt gott – margt skemmti­legt,  en margt vont og alls ekki skemmti­legt. 

Mér finnst að börnin okkar þurfi að fá við­ur­kenn­ingu á þessu – og þau fá hana frá mér.   „Validation“  heitir það á ensku.   Þegar þau koma til þín  (sem þau hafa gert við bæði mig og föður sinn)  og rifja upp það sem þeim fannst erfitt –  þá er ekki bara hægt að smætta það eða segja „Já en við gerðum líka svo margt skemmti­legt“ …     Það er alveg satt, en það strokar ekki út það sem var vont. –    

Ef við gerum það – að segja:  „Þetta var nú ekki svona slæmt“  þá erum við að gaslýsa börnin og gera lítið úr þeirra upp­lifun.   –

Ég held þetta sé grund­vall­ar­at­riði fyrir for­eldra að skilja.  Að mæta börnum og þá upp­komnum börnum með skiln­ingi og fara ekki í vörn.  Taka á móti því og ekki fara í sjálfs­rétt­læt­ingu.    Í fram­haldi er svo hægt að vinna úr því – biðj­ast fyr­ir­gefn­ingar og fyr­ir­gefa sjálfum sér í fram­hald­inu fyrir að kunna ekki betur eða gera betur. 

Við sem erum for­eldrar erum líka upp­komin  börn for­eldra sem e.t.v.  sögðu eitt­hvað sær­andi. Mis­not­uðu áfengi o.s.frv. –  en ef engin/n við­ur­kennir að þetta sé rangt – lærum við aldrei af mis­tök­unum. 

Ef að börnin þín eru hætt að tala við þig – eða blokkera.  Ekki segja að það sé bara eitt­hvað að þeim – líttu í eigin barm.  Þau eru af kyn­slóð sem talar um málin. Leitar sér hjálpar og fara jafn­vel í dáleiðslu þar sem allt veltur upp sem gerð­ist sem börn.  Ekki segja að þetta sé vit­leysa og spyrja vini þína hvort þú sért ekki góð mamma/ eða góður pabbi – því að sonur þinn eða dóttir sé nú alveg í rugl­inu.    

Börnin okkar eru að kenna okkur að segja satt og hætta að fela og þykj­ast.   Að lifa innan frá og út.  En ekki í yfir­borðs­mennsk­unni til að allir haldi að allt sé í lagi hjá okkur.   Þannig að almenn­ings­á­lit eða  hvernig hlut­irnir líta út sé mik­il­væg­ara – en hvernig þeir eru í raun og veru. –

Ef upp­komið barnið þitt er reitt út í þig – er það oft­ast ekki vegna þess sem þú endi­lega  gerðir – heldur vegna þess að þú við­ur­kennir ekki að hafa gert neitt á hlut þess. 

Skrifað með tárum – og fyrir fólkið sem þarf á því að halda að áföll þeirra og erf­ið­leikar í upp­vexti fái við­ur­kenn­ingu. 

Skrifað fyrir börnin mín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina