Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Axel Pétur: „Tók tímabil þar sem ég óttaðist mikið um líf mitt“

Axel Pétur: „Tók tímabil þar sem ég óttaðist mikið um líf mitt“

Axel Pétur Axelsson hefur stundum verið kall­aður sam­sær­ingur Íslands. Axel, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að árlegur fundur „World Economic Forum“ sem nú stendur yfir, sé í raun árs­há­tíð fas­ism­ans í heim­inum:

„Það sem er í gangi í Davos er í raun hátíð fas­ism­ans. Akademíska skýr­ingin á fas­isma er þegar stór­fyr­ir­tæki og stjórn­völd renna saman í eitt. Samruni einka­fyr­ir­tækja og rík­is­valds. Þeir eru ekk­ert að fela þetta í Davos, bara búnir að end­ur­skýra þetta og kalla það „Public-Private partners­hip“. Fyrir nokkrum árum síðan var þessu breytt úr leyni­fundum yfir í World Economic Forum og það var ákveðið að fara bara með allan óhreina þvott­inn út, þannig að fólk getur bara kynnt sér þetta sjálft. Yfir­skynið er að það sé verið að bjarga heim­inum og þó að þetta sé allt fyrir opnum tjöldum virð­ist fólk ekki ná að opna augun. Svo þegar fólk spyr mann út í þetta er það svo­lítið eins og að ein­hver komi inn í langa bíó­mynd þegar það eru 5 mín­útur eftir til að spyrja hvað sé að ger­ast. Þetta er löng saga og langur fer­ill og ef fólk þekkir ekki bak­sög­una er kannski eðli­legt að það kveiki ekki á per­unni. Það er ákveð­inn hópur sem stofn­aði seðla­bank­ann árið 1913 á Jeckyll Island og síðan þá er þessi hópur í raun búinn að vera sig­ur­veg­ar­inn í heim­inum og stýrir flestu. Til þess að kom­ast að þessu þarf ekki neitt annað en að hlusta á það sem þessi hópur segir og lesa það sem hann skrifar. Þetta er allt í gangi fyrir opnum tjöldum.“

Axel seg­ist sjálfur ánægður með að bera tit­il­inn sam­sær­ingur Íslands:

„Þetta byrj­aði með því að ég mætti á þætti á Útvarpi Sögu og ákvað þá að verða sam­sær­ing­ur­inn, af því að það starf var alveg laust á Íslandi. Þannig að ég tók það eig­in­lega bara upp sem starfs­heiti. Ég er mjög með­vit­aður um að ég er umdeildur, en ég segi yfir­leitt ekki neitt nema vera búinn að hugsa það vel og skoða það lengi. En það er kannski ekki skrýtið að fólk sé upp til hópa ekki mjög mót­tæki­legt fyrir mörgu af því sem ég segi,“ segir Axel og heldur áfram:

„Það eru rann­sóknir og kenn­ingar sem benda til þess að um 80% af fólki vilji mest­megnis bara tala um annað fólk. Svo er 16% sem vilja tala um hvað gerð­ist og tala um atburði, en ekki nema 3-4% sem vilja tala um alvöru heim­speki með gagn­rýnni hugsun. Þannig að ef það á að fara á ein­hverja alvöru dýpt eru flestir bara ekki til í það. En auð­vitað væri lang­best að margt sem ég er að segja væri kol­rangt. Þá væri heim­ur­inn fal­legur og góður.“

Axel býr núna í Svíþjóð, þar sem hann á stóra fjöl­skyldu og seg­ist una sínum hag nokkuð vel. Hann var orð­inn leiður á því að búa á Íslandi og seg­ist á ákveð­inn hátt hafa verið orð­inn lang­þreyttur:

„Ég flutti til Sví­þjóðar fljót­lega eftir hrunið. Ég hafði áður en ég flutti farið í hags­muna­sam­tök heim­il­anna og allt það dæmi og fann upp þetta svo­kall­aða greiðslu­verk­fall. Ég var í mörgum störfum og var bara orð­inn rosa­lega þreyttur og end­aði á að flytja til Sví­þjóðar þar sem ég er í dag. Ég var að vasast í 7 fyr­ir­tækjum og var líka að vinna sem kerf­is­stjóri í Flens­borg og mér var farið að leið­ast rosa­lega. Ég á sex börn, fimm af þeim eru hjá mér hérna í Svíþjóð. Ég þekki það sem faðir að fyrir þeim er ég bara eins og spá­maður og orð mín eru sann­leikur. Það er eðli­legt og skilj­an­legt, en að full­orðið fólk taki upp­lýs­ingum á sama hátt og lítil börn frá for­eldrum sínum er eitt­hvað skrýtið. Það er hálf ógn­vekj­andi hvernig stór hluti fólks með­tekur allar upp­lýs­ingar án þess að hafa vott af gagn­rýnni hugsun. Ég er oft­ast bara að benda á eitt­hvað sem liggur í augum uppi og fólkið sem stýrir hlut­unum hefur meira að segja sagt sjálft. Ef það eru sam­sær­is­kenn­ingar verður það bara að vera svo­leiðis.“

Þegar Axel er spurður hvort hann væri ekki í lífs­hættu ef allt sem hann segir væri rétt, seg­ist hann hafa farið í gegnum tíma­bil þar sem honum leið þannig:

„Ef þú horfir á Frelsi TV og ferð í gegnum það, þar sem er gríð­ar­legt magn af efni, þá sérðu tíma­bil þar sem ég ég ótt­að­ist um líf mitt. Ég ótt­að­ist að ég væri að setja fram upp­lýs­ingar sem gætu orðið til þess að ég væri í beinni hættu. En svo gekk þetta tíma­bil yfir og ég átt­aði mig á því að þetta snýst ekki um per­sónur og leik­endur.“

Axel Pétur hefur mjög sterkar skoð­anir á aðgerðum í kringum Covid og seg­ist sjálfur hafa fengið afleið­ingar af því að taka ekki bólu­efni og neita líka að fara í Covid próf:

„Mér var vísað út af spít­ala þó að ég væri fót­brot­inn, af því að ég neit­aði að láta stinga pinna upp í nefið á mér. Ég þurfti að yfir­gefa sjúkra­húsið þó að ég væri sann­ar­lega fót­brot­inn, en ég gat ekki hugsað mér að taka þátt í þessu. Það skað­ast ekki allir af bólu­efn­inu við Covid eða pinn­unum sem er stungið upp í nefið á okkur, en ég vil ekki sjá þetta. Fyrir mér er fólkið sem hefur veitt mesta mót­spyrnu í þessu tíma­bili ekk­ert annað en hetjur. Til dæmis ástr­alskur hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem nýlega skipti út bólu­efn­inu fyrir salt­vatn í 8300 sprautum. Hún er núna fyrir dóm­stólum, en fyrir mér er hún bara hetja.“

Þáttinn með Axel Pétri og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu