Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna með eldræðu á Facebook: „Gera á ríkissáttasemjara að einræðisherra vinnumarkaðarins“

Sólveig Anna með eldræðu á Facebook: „Gera á ríkissáttasemjara að einræðisherra vinnumarkaðarins“
Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

Sólveig Anna Jóns­dóttir skrif­aði eldræðu á Facebook-vegg sinn þar sem hún fer yfir stöð­una og lýsir henni eins og hún sér hana. Segir hún að gera eigi rík­is­sátta­semj­ara að ein­ræð­is­herra.

Verka­lýðs­leið­tog­inn Sólveig Anna Jóns­dóttir fer mik­inn í nýlegri færslu á Facebook en má með sanni segja kalla hana eldræðu. Þar segir hún frá því að hún hafi hlýtt á mál­flutn­ing í tveimur dóms­málum, ann­ars vegar í svoköll­uðu inn­setn­ing­ar­máli rík­is­sátta­semj­ara gegn Eflingu og hins v egar í máli Samtaka atvinnu­lífs­ins gegn Eflingu. Segir Sólveig Anna það hafa verið bæði áhuga­vert og lær­dóms­ríkt. Að hennar mati á nú að gera rík­is­sátta­semj­ara að ein­ræð­is­herra vinnu­mark­að­ar­ins „de facto“.

„Í gær hlýddi ég á mál­flutn­ing í tveimur dóms­málum, ann­ars­vegar í svoköll­uðu inn­setn­ing­ar­máli rík­is­sátta­semj­ara gegn Eflingu og hins­vegar í máli SA gegn Eflingu. Var það bæði áhuga­vert og lær­dóms­ríkt. Hin raun­veru­lega og óum­deil­an­lega staða sem upp er komin lýst­ist upp með eins skýrum hætti og hægt er að hugsa sér:

Sett hefur verið af stað til­raun af hálfu SA og rík­is­sátta­semj­ara um að gera for­mönnum verka­lýðs­fé­laga og samn­inga­nefndum ófært að sinna sínu grund­vall­ar­hlut­verki sem er að leiða kjara­samn­inga­gerð til lykta. Gera á rík­is­sátta­semj­ara de facto að ein­ræð­is­herra vinnu­mark­að­ar­ins, þess bæran að svipta for­ystu verka­lýðs­fé­lags og samn­inga­nefnd lýð­ræð­is­legu umboði með­lima félag­anna ef að hann svo lystir. Gera á geð­þótta­mat eins emb­ætt­is­manns æðra rétti verka­fólks til að semja um laun fyrir unna vinnu, æðra stjórn­ar­skrár-vörðum rétti til að leggja niður störf til að þrýsta á um ásætt­an­leg kjör. Æðra grund­vall­ar­mann­rétt­indum okkar sem frjálsra borg­ara í lýð­ræð­is­ríki. Breyta á miðl­un­ar­til­lögu í óum­ræð­an­legt og óhnekkj­an­legt vald­boð frá stjórn­valdi sem standa á utan við eðli­lega stjórn­sýslu í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, ó-áskor­an­legt og ósnert­an­legt. Setja á upp kerfi þar sem að um leið og for­manni verka­lýðs­fé­lags er afhent til­búin og und­ir­rituð miðl­un­ar­til­laga rík­is­sátta­semj­ara, án nokk­urs sam­tals eða þess að ráðg­ast sé á nokkrum tíma­punkti um þá fyr­ir­ætlan hins háa herra, missir for­maður þau völd sem að honum hafa verið falin af félögum sínum og er sam­stundis kom­inn undir frið­ar­skyldu vegna þess að í heimi valda­stétt­ar­innar á nú miðl­un­ar­tillga eins emb­ætt­is­manns að hafa nákvæm­lega sama laga­lega gildi og kjara­samn­ingur und­ir­rit­aður af for­manni verka­lýðs­fé­lags og samn­inga­nefnd.“

Í miðri færsl­unni segir Sólveig Anna að „í ljósi þess hve sturlað ástandi er“ birti hún ljós­mynd til að hressa sjálfa sig og von­andi aðra við. Lýsir hún mynd­inni á eft­ir­far­andi hátt: „Hér má sjá Eflingar-félaga sem starfa hjá Sam­skipum, Olíu­dreif­ingu og Skelj­ungi ásamt alræmdri og umdeildri for­ystu Efingar gera það sem Halldór Benjamín fram­kvæmda­stjóri kallar að „telja og velja“ en það þýðir að vera kunn­áttu­sam­leg og útsjón­ar­söm.“

Efl­ing­ar­fólk.

„Aðdá­un­ar­verðir eig­in­leikar hjá efna­hags­legri og póli­tískri valda­stétt en óbæri­lega sví­virði­legir ef að þeir birt­ast hjá verka og lág­launa­fólk og til­efni til mik­illa perlu-kreist­inga og ilm­salta-inn­önd­unnar. Við eigum bara að lufs­ast um, ófær um að hugsa og þar af leið­andi ófær um að vinna. Aðeins fær um að slíta okkur út við enda­lausa vinnu, aðeins fær um und­ir­gefni og ó-sjálfs­virð­ingu. Og guð hjálpi okkur ef að við dirfumst að eign­ast svo­kall­aða „for­ystu“; þá erum við sam­stundis sek um glæpi sem sið­menntað og fágað mennta­fólk ger­ist aldrei sekt um, líkt og per­sónu­dýrkun og eitt­hvað sem kall­ast stig­veld­is­stjórnun. „Guð minn góður, ég næ ekki and­anum, seg­iði þern­unni að koma með ilm­söltin strax!““

Þá segir verka­lýðs­for­ing­inn skel­eggi að „Ástæður tryll­ings­ins hjá fólk­inu efst í for­rétt­inda­turn­inum og þeim sem óþreyt­andi eru í príl­inu til að kom­ast þangað og ganga í eina sæng með auð­vald­inu eru þessar: Eflingar-félagar kunna ekki aðeins að telja og velja, þeir þekkja líka mátt sam­stöð­unnar. Þeir vita einnig að þeir eru algjör­lega ómissandi í allri verð­mæta­fram­leiðslu þjóð­fé­lags­ins. Þeir vita að ástæða þess að verka­fólk fyrri alda öðl­að­ist á end­anum, eftir að hafa fært stór­kost­legar fórnir, þau mann­rétt­indi að mega semja sjálf um laun fyrir unna vinnu, að geta lagt niður störf til að vinna að fram­gangi sinna mik­il­vægu krafna, er að vinna vinnu­aflsins er grund­vall­ar­at­riði allra grund­vall­ar­at­riða kap­ít­al­ískrar verð­mæta­sköp­unnar.“

Segir hún að sú stað­reynd ali af sér það sem kalla megi sterka samn­ings­stöðu. „Og af þeirri vit­neskju fæð­ist dirfskan, eld­móð­ur­inn og bar­átt­u­gleðin. Þetta hatar yfir­stéttin meira en nokkuð annað og hefur alltaf gert.“

Lokaorð Sól­veigar minnir helst á frægar ræður úr epískum kvik­myndum, slíkur er eld­móð­ur­inn. „Við munum ekki láta ofríki, ein­ræð­istil­burði og and-lýð­ræð­is­lega óra marg­milljón-króna fólks­ins stoppa okkur. Það mun aldrei ger­ast. Þrátt fyrir að það sé erfitt að horfast í augu við klikk­aða for­herð­ing­una. Eflingar-fólk þekkir erf­ið­leika. Þeir hafa mótað okkur og við­horf okkar til til­ver­unnar. Við vitum að ekk­ert kemur til okkar ókeypis eða án erf­iðis. Ekki neitt. Og þess­vegna munum við ekki gef­ast upp í bar­áttu okkar fyrir efna­hags­legu rétt­læti.

Sjáumst í bar­átt­unni.Áfram Efling, alla leið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina