Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valdimar varaði þingheim ítrekað við sjókvíeldinu árið 2019 – Fékk ekki eitt svar til baka

Valdimar varaði þingheim ítrekað við sjókvíeldinu árið 2019 – Fékk ekki eitt svar til baka

Valdimar Ingi Gunn­ars­son sendi þing­heimi beiðni um opin­bera rann­sókn vegna alvar­legra van­kanta á vinnu­brögðum er snéru að fisk­eldi, árið 2019. Ekki einn þing­maður svar­aði.

Fyrir viku birti rík­is­end­ur­skoð­andi kol­svarta skýrslu um sjó­kví­eldi hér á landi en þar kom meðal ann­ars fram að stjórn­sýslan og eft­ir­lit hafi verið  „veik­burða og brota­kennd og vart í stakk búin til að takast á við aukin umsvif grein­ar­innar á síð­ustu árum. Breyt­ingum á lögum um fisk­eldi sem var ætlað að stuðla að vexti og við­gangi grein­ar­innar í sátt við bæði sam­fé­lag og umhverfi var ekki fylgt eftir með því að styrkja stjórn­sýslu og eft­ir­lit þeirra stofn­ana sem mæðir mest á.“

Hver þing­mað­ur­inn á fætur öðrum kom í kjöl­far opin­ber­unar skýrsl­unar, fram og tal­aði um hversu svört skýrslan hafi verið og að hér þurfi að gera betur. En nú er komið á dag­inn að þetta átti ekki að koma neinum á óvart því Valdimar Ingi Gunn­ars­son sem vinnur við það sem heitir Sam­fé­lags­verk­efni gegn spill­ingu, sendi beiðni um opin­bera rann­sókn á mál­inu til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar en hann sendi afrit af beiðn­inni á alla þing­menn Alþingis. Ekki eitt svar fékkst við beiðn­inni, þrátt fyrir nokkrar ítrek­anir.

Mannlíf er með bréf í hönd­unum sem Valdimar Ingi skrif­aði og sendi á Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í morgun. Þar fer Valdimar yfir málið og ítrekar enn og aftur þá beiðni sína um opin­bera og óháða rann­sókn á fisk­eldi við landið.

Bréfið má lesa í heild hér fyrir neðan:

Katrín Jak­obs­dóttir 

For­sæt­is­ráð­herra 

Alþingi 

101 Reykja­vík 

Kópa­vogur, 13. febr­úar 2023 

Þann 20. maí 2019 sendi und­ir­rit­aður tölvu­póst með beiðni um opin­bera rann­sókn til  stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis og allir alþing­is­menn fengu afrit. Þar var  óskað eftir að gerð væri opin­bera rann­sókn vegna alvar­legra ann­marka á vinnu­brögðum  starfs­hóps sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um stefnu­mótun í fisk­eldi. Það var  síðan í fjór­gang, þ.e. 15. ágúst, 11. sept­em­ber, 24. sept­em­ber og 8. októ­ber 2019 send  ítrekun til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar en á þessum tíma var Helga Vala  Helga­dóttir for­maður. Það var einnig aug­lýst í blöðum haustið 2019 og óskað eftir  við­brögðum. Beiðnin var síðan ítrekuð við stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þann 26.  mars 2021 en þá var Jón Þór Ólafsson for­maður nefnd­ar­innar. Þrátt fyrir allar þessar  til­raunir hafa engin við­brögð eða svör feng­ist. Greini­legt að flestir hafa ekki áttað sig á  alvar­leika máls­ins, frekar en að þeir hafi viljað hylma yfir verkn­að­inn. Það er einnig ljóst  að hags­muna­að­ilar höfðu grafið um sig í kerf­inu, rekið mik­inn áróður um mik­il­vægi  þessa fyrir atvinnu­líf á við­kom­andi svæðum.  

Und­ir­rit­aður gerði alvar­legar athuga­semdir við vinnu­brögð áður­nefnds starfs­hóps  sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og telur að þau sam­ræm­ist ekki á nokkurn hátt  góðum stjórn­sýslu­háttum og kunni í ákveðnum til­vikum að fara gegn ákvæðum  stjórn­sýslu­laga. Það sem engin við­brögð voru við minni beiðni um opin­bera rann­sókn var farið af stað með verk­efnið „Sam­fé­lags­verk­efni gegn spill­ingu“ í byrjun árs­ins 2022  til að vinna að fram­gangi. Í þessu sam­hengi hefur m.a. verið birt rann­sókna­skýrslan „Stefnu­mótun í fisk­eldi: Umræðan, til­lög­urnar og staðan“ en þessi skýrsla og fleiri gögn  sem und­ir­rit­aður hefur tekið saman ætti að geta nýst við umbeðna rann­sókn.  

Vegna þeirra alvar­legu ann­marka á þeim gögnum sem breyt­ingar á lögum um fisk­eldi á  árinu 2019 byggði á, telur und­ir­rit­aður að for­sæt­is­ráð­herra og stjórn­skip­unar- og  eft­ir­lits­nefnd Alþingis beri að taka málið upp og rann­saka og eftir atvikum að skipa óháða rann­sókn­ar­að­ila til að yfir­fara þau vinnu­brögð sem hafa verið við­höfð. 

Virð­ing­ar­fyllst, 

_____________________________ 

Valdimar Ingi Gunn­ars­son, 

Sjáv­ar­út­vegs­þjón­ustan ehf. 

Afrit: 

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og Alþing­is­menn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina