Gísli Marteinn Baldursson þáttastjórnandi Vikunnar, sem sýndur er í Ríkissjónvarpinu, hefur leitað á náðir fylgjenda sinna á Twitter. Hann óskar eftir mjög fyndnum bröndurum sem hann gæti farið með í dagskráliðnum „Fréttir Vikunnar“ í sjónvarpsþætti sínum. Ekki er vitað hvort kappinn knái sé lamaður af ritstíflu en hann auglýsir tækifæri fyrir alla að semja gott grín. Brandarana má senda á hann í persónulegum skilaboðum.
Virðist tístið hans Gísla Marteins fara smá á ská í einhverja notendur samfélagsmiðilsins. Vignir Rafn bendir á að eitt sinn hafi RÚV greitt meðlimum Spaugstofunnar fyrir að gantast af ráðamönnum og þjóðinni en nú sé þróunin sú að leitað sé á náðir almennings að koma með einn úr kaffistofunni.
Færslur Gísla Marteins og Vignis Rafns má sjá hér að neðan:































Athugasemdir