Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sögð grýla sem hatar homma – Sigríður kennir Samtökunum 78 um verðbólguna

Sögð grýla sem hatar homma – Sigríður kennir Samtökunum 78 um verðbólguna

Á Twitter er fátt annað rætt í dag en gíf­ur­lega van­hugsað tíst Sigríðar Andersen, Sjálf­stæð­is­konu og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. Í gær skrif­aði hún að ein ástæða fyrir verð­bólgu undan farið væri styrk­veit­ing til Sam­tak­anna 78. Tístið má sjá hér fyrir neðan.

Fjöl­margir hafa gagn­rýnt þetta tíst hennar harð­lega og hefur Sigríður svarað sumum. Ein kona skrifar: „þetta er eitt mik­il­væg­asta félag lands­ins og á vel skilið þetta fjár­magn.“ Því svarar Sigríður: „Ég er sam­mál því að frjáls félaga­sam­tök eins og Samtökin78 hafa lagt margt og mik­il­vægt til og gera það von­andi áfram. Það breytir því ekki að í dag eru ekki til pen­ingar fyrir nýjum útgjöldum. (Þetta er þráður um rík­is­fjár­mál.)“

Á öðrum stað gefur Sigríður í skyn að það sé hat­urs­orð­ræða að gagn­rýna hana. Kona nokkur skrifar: „Ef þú ætlar að nota afkomu­kvíða almenn­ings til að safna liði í hinsegin hat­rið þá er alveg lág­marks kurt­eisi við vits­muni pöp­uls­ins að full­yrð­ing­arnar séu nálægt því að vera sannar. Styrk­veit­ingar hins opin­bera til man­rétt­inda­sam­taka valda ekki verð­bólgu, Sigríður.“

Því svarar Sigríður: „Útgjöld sem menn eiga ekki fyrir valda verð­bólgu, líka útgjöld til hinna bestu mála. Er ann­ars ekki bara upp­lagt fyrir alla að vera kurt­eisir og gefa hat­urs­orð­ræðu frí?“

Svo reynir Sigríður að láta sem hún hafi ekki sakað Samtökin 78 um valda verð­bólgu.  Bar­áttu­konan Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir skrifar: „Einmitt, kennum sam­tökum sem hafa barist fyrir sjálf­sögðum rétt­indum fólks í ára­tugi, og veita hinsegin fólk lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu og stuðn­ing – sem ríkið og sveit­ar­fé­lög gera ekki – um verð­bólg­una. Finnst þér svona mál­flutn­ingur þér sæm­andi?“

Þessu svarar Sigríður: „Ég veit ekki til þess að nokkur hafi sakað Samtökin 78 um að hafa valdið verð­bólgu. Þetta tíst varðar rík­is­fjár­mál og pen­inga­mál. Kannski ekki nógu spenn­andi. Sry. Þú hefur ann­ars verið mál­efna­leg og skel­egg í þínu. Geturðu ekki bara verið það líka í umræðu um rík­is­fjár­mál?“

Tugir hafa svo vitnað í fyrstu færslu Sigríðar og bent á að ríkið hafi greitt mikið hærri upp­hæðir í margt annað, svo sem í hana sjálfa. Einn skrifar: „Ástæða verð­bólg­unnar? Hér er ein: 13 til 16 millj­óna árlegt fram­lag + 980 þús við­bót – til for­dóma­fullrar og valda­gráð­ugrar grýlu úti í bæ með hunda­flautu og fals­frétta­blæti.“

Hér fyrir neðan má sjá fleiri dæmi um fólk sem gagn­rýnir Sigríði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina