Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hetjudáð á Snæfellsnesi – Bjargaði eins og hálfs árs gömlu barni úr sprungu: „Hágrét allan tímann”

Hetjudáð á Snæfellsnesi – Bjargaði eins og hálfs árs gömlu barni úr sprungu: „Hágrét allan tímann”
Skjáskot frá Snæ­fells­nesi

Í bak­sýn­is­spegli kvölds­ins er rifjað upp fræki­legt afrek tré­smíða­nema þegar hann bjarg­aði eins og hálfs árs gömlu barni úr sprungu. DV fjall­aði um málið þann 26.júlí árið 1985 en þar var meðal ann­ars rætt við Sigurð Guðnason, 24 ára gamla tré­smíða­nem­ann, sem kom barn­inu til bjargar:

„Ég rétt náði með vísi­fingri í aðra hönd drengs­ins en gat kroppað áfram þar til ég náði taki á hend­inni allri,” sagði Sigurður í sam­tali við DV en litli dreng­ur­inn slapp ómeiddur:

„Sprungan var mjög þröng, svona um 30 sentí­metrar og mjókk­aði niður,” sagði hann.

Sigurður var á þessum tíma í björg­un­ar­sveit­inni á Hellu og svo vel vildi til að hann sá um sig­deild­ina þar ásamt tveimur öðrum: 

„Ég setti reipi strax um mittið og gerði tvær til­raunir til að troða mér niður en það gekk ekki. Loks ákvað ég að fara með höf­uðið á undan og það dugði.”

Samkvæmt frétt DV var móð­irin á staðnum, sem aðstoð­aði Sigurð:

„Móðir drengs­ins stóð á sprungu­brún og hélt um reipið ásamt annarri konu og manni er var á ferða­lagi þarna um. Faðir drengs­ins og verk­stjóri í Lór­an­stöð­inni voru á meðan að útbúa áhald til að krækja í dreng­inn en ekki var reiknað með að neinn kæm­ist niður að honum.‘‘

Björg­unin gekk vel fyrir sig, en Sigurður þurfti að draga djúpt and­ann til þess að kom­ast niður í sprung­una:

„Síðasti spöl­ur­inn að drengnum var svo þröngur að ég varð að draga and­ann djúpt og mjaka mér áfram.”

Niðri beið dreng­ur­inn með höf­uðið upp og bergið þétt­ings­fast að brjósti sér: 

„Dreng­ur­inn hágrét allan tím­ann, hann róað­ist samt örlítið er ég spjall­aði við hann, sagði honum að vera rólegum, þetta myndi allt bjarg­ast.”

Er Sigurður náði taki i hönd drengs­ins kippti hann vel í, svo fastur var dreng­ur­inn: 

„Hann losn­aði og ég náði í báðar hend­urnar. Við vorum síðan dregnir upp.”

Móðir drengs­ins, Sólrún Jóns­dóttir, sagði í sam­tali við DV að þau hafi setið og notið veð­ur­blíð­unnar þegar hún, og faðir drengs­ins sáu hann skyndi­lega detta niður:

,,Við vorum alveg granda­laus, höfðum ekki hug­mynd um sprung­una,” sagði hún en atvikið átti sér stað á Önd­verð­ar­nesi við Snæ­fells­nes.

Faðir drengs­ins reyndi sjálfur að fara ofan í sprung­una en fór og leit­aði hjálpar þegar það gekk ekki. Litli dreng­ur­inn komst ómeiddur upp úr sprung­unni og var orð­inn hress og kátur þegar DV ræddi við móð­ur­ina:

„Einu meiðsl hans voru smá skrámur í and­liti,” sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina