Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Júlía er hagsýn og heilsusamleg – Frystir alla afganga

Júlía er hagsýn og heilsusamleg – Frystir alla afganga

Neytandi vik­unnar er Júlía Magn­ús­dóttir. Júlía er heilsu­m­ark­þjálfi, nær­ingar og lífs­stíls-ráð­gjafi, rit­höf­undur, heilsu­kokkur og stofn­andi Lifðu til fulls heilsu­m­ark­þjálfun. Fyrir 10 árum stofn­aði hún Lifðu til Fulls og hefur síðan hjálpað þús­undum kvenna að losna við syk­ur­púk­ann, fyll­ast orku, létt­ast og líða vel í eigin lík­ama með breyttum lífs­stíl og bragð­góðum mat.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni eftir fremsta megni að versla einu sinni í viku fyrir heim­ilið. Það gengur hins vegar ekki alltaf upp því eins og við vitum að þá er oft bara ekki allt til í búð­inni þegar maður fer og svo kemur líka fyrir að manni vantar eitt­hvað ferskt heima í miðri viku.

Svo reyni ég að hafa við­mið­unar upp­hæð sem ég versla inn fyrir í mán­uð­inum. En ég hef fundið fyrir því að það er ansi auð­velt að leyfa mat­ar­reikn­ingum að hækka ört ef maður fylgist ekki með. Ég er núna að nota app sem heitir Budget til að halda utan um mat­ar­kostn­að­inn og leyfir það mér að fylgj­ast með hversu mikið ég hef eytt og hvað ég á mikið eftir, sem mér finnst hjálpa mér.

Ég kaupi egg beint frá bónda í stærra magni, sem bæði eru ferskari afurð og hag­kvæmur kostur enda notum við mikið af eggjum á heim­il­inu.

Ég kaupi síðan baunir í poka sem ég legg í bleyti og sýð sjálf, það er mun ódýr­ara en að kaupa soðnar baunir í dós. Jú það tekur um það bil 90 mín að sjóða baunir en ég geri það einu sinni á nokkra mán­aða fresti  (ég sýð yfir­leitt tvær sortir í senn) og fæ um 8 til10 skammta frá 500 króna poka sem ég frysti í stað þess að kaupa einn skammt í dós af líf­rænum soðnum baunum á 300 til 500 krónur. Að sjóða baunir sjálf fer líka miklu betur í melt­ing­una.

Annað sem ég geri er að “meal preppa” og ákveða sirka hvað verður í mat­inn út vik­una. En ef maður á góðan mat heima sem er ann­að­hvort til­búin eða tekur enga stund að vippa saman getur það fyr­ir­byggt að maður endi á skyndi­bita í miðri viku því maður er of latur að elda. Fyrir áhuga­sama má sækja mat­ar­skipu­lag mitt hér. (https://lifdutilfulls.lpages.co/matarskipulag/ )

Svo finnst mér mjög snið­ugt að frysta afgangs pott­rétti, súpur, brauð, kínóa, því bæði er þægi­legt að grípa þegar maður nennir ekki að elda eða er knappur á tíma og svo getur það minnkað mat­ar­sóun.

Millimál getað verið dýr þannig ég und­irbý einu sinni í mán­uði eitt­hvað eitt sem ég fæ mér yfir mán­uð­inn, til dæmis orku­kúlur https://lifdutilfulls.is/sukkuladikulur-a-innan-vid-4-min-thu-verdur-ad-profa/ )eða granola (https://lifdutilfulls.is/granola-med-kokosflogum-hindberjum-og-blaberjum/ ). Þetta tekur alls ekki langan tíma þegar maður er komin upp á lagið með það.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já ég geri það. Ég flokka plast og pappír og þetta sem flest okkar gera.

Ég nota til dæmis mikið end­ur­nýt­an­lega sili­kon­poka í stað plast­poka. Ég á nokkra svo­leiðis og frysti pott­rétti, súpur og fleira í því. Svo nota ég krukkur mikið í stað þess að kaupa plast­box.

Sniðugt að end­ur­nýta þessar krukkur, sem maður fær til dæmis utan um kókosol­íur, fyrir alls­konar fræ.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Mér finnst gaman að velja og gefa íslenskt og reyni það ef ég mögu­lega get.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Allt sem teng­ist bæti­efnum og heilsu­vörum.  Mér finnst það ofboðs­lega freist­andi að bæta við og ég elska að eiga úrval og rótera á milli.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, hvernig við skiljum jörð­ina eftir fyrir kom­andi kyn­slóð er mér mjög mik­il­vægt. Ég geri mitt fremsta að end­ur­vinna og minnka mengun/sóun. Næsta skrefið hjá mér er að kaupa raf­magns­bíl, en ég er núna á hybrid sem er bæði raf­magns og bensín.

Að lokum deilir Júlía með okkur heilsu­sam­legum upp­skriftum sem má sjá hér:

https://lifdutilfulls.is/
https://www.facebook.com/LifduTilFulls/
https://www.instagram.com/lifdutilfulls/

Ókeypis raf­bók með upp­skritum af sekt­ar­lausum sæt­indum, meðal ann­ars upp­skrift af brownie, osta­köku og fleira sem ein­stak­lingar getað sótt: https://lifdutilfulls.is/sektarlaus-saetindi/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina