Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skyri slett á forsetahjónin og biskupinn: „Grípið manninn, grípið manninn!“

Skyri slett á forsetahjónin og biskupinn: „Grípið manninn, grípið manninn!“
Lög­reglu­þjón­arnir taka við sér. Mynd: Tíminn – Gunnar

Þann 11. októ­ber gengu ráða­menn lands­ins, þing­menn, ráð­herrar, biskup og for­seta­hjónin fylktu liði frá Dóm­kirkj­unni í sínu fín­asta pússi en verið var að setja þingið. Virðu­legir lög­reglu­þjónar stóðu heið­ursvörð við Alþingi. Allt í einu birt­ist eldri karl­maður í gæru­úlpu og með sér­saum­aða gúmmí­hanska og fötu í hendi. Í föt­unni var skyr. Hljóp hann sem harð­ast í átt að ráða­mönnum þjóð­ar­innar og tók að jósa úr föt­unni yfir mann­skap­inn. Áður en yfir var staðið höfðu alls um 20 manns fengið yfir sig skyr­skvettu, þar með talin for­seta­hjónin og bisk­upinn. Árið var 1972 og mað­ur­inn sem átti skyrið og skvetti, hét Helgi Hóse­as­son.

Tíminn skrif­aði frétt um atburð­inn á sínum tíma en hér fyrir neðan má lesa þá frétt og sjá ljós­myndir af atgang­inum:

„Grípið mann­inn, grípið mann­inn!“

var hrópað, þegar her­fjöt­ur­inn rakn­aði af stjörfum heioursverðinum

Þeir sletta skyr­inu, sem eiga — það sann­að­ist við þing­setn­ing­una í gær. Þegar ráð­herrar og þing­menn með for­seta­hjónin og biskup lands­ins, í brjósti fylk­ingar, voru á leið milli kirkju og þings­ins að lok­inni þing­messu, hljóp fram maður með fötu í hendi og jós úr henni skyr­blöndu, að menn ætla, yfir þá sem fremstir fóru. Þannig hélt hann síðan áfram aftur með fylk­ing­unni, unz hann hafði náð að skvetta á tutt­ugu menn, eða þar yfir. Aldrei hefur neitt þessu líkt gerzt fyrr við þing­setn­ingu. Aftur á móti minnir þetta mjög á það atvik, er stúlkan skvetti bleki á Heath, for­sæt­isrá&herra Breta, í Brussel fyrr á þessu ári. Maður sá, sem þarna var að verki, var Helgi Hóse­as­son húsa­smiða­meist­ari, sem oft­sinnis hefur brugðið fyrir sig ýmsu harla óvenju­legu sökum þess, að hann hefur ekki fengið ógiltan skírn­ar­sátt­mála sinn á lög­form­legan hátt.

Helgi og skyrið

Viðhöfn, sem rauk út i veður og vind

Eins og áður segir var þing­messa úti. Forseti og biskup gengu fremstir, eins og venja er
til við slíka athöfn, og voru komnir nokkur skref upp á gang­stétt­ina við horn þing­húss­ins. Næstir á eftir þeim gengu for­seta­frúin og prest­ur­inn, sem predik­aði við þing­setn­ingu, séra Guð­mundur Þor­steins­son, þá for­sæt­is­ráð­herra og for­seti Sam­ein­aðs þings, síðan ráð­herrar tveir og tveir og loks þing­menn hver af öðrum, einnig tveir og tveir hlið við hlið. Tólf manna heið­ursvörður lög­reglu­þjóna hafði skipað sér i röð á miðju Kirkju­stræti með fingur hægri handar til húfu­skyggni og var vest­astur fána­beri, en beint fyrir framan hann stóð fyr­ir­liði
heið­ur­svarð­ar­ins, Sigurður M. Þor­steins­son, hinn þrett­ándi í sveit­inni, sem á næst á gang­braut­inni, er þarna er yfir Kirkju­stræti. Tveir lög­reglu­þjónar stóðu við þing­hús­dyr og
tveir við kirkju­dyr, og auk þess voru nokkrir fleiri fjær við umferð­ar­stjórn og eft­ir­lit.

Illa farið með gott skyr?

Óvænt atlaga aðvíf­andi manns

Skyndi­lega kom Helgi Hóse­as­son aðvíf­andi utan af Aust­ur­velli með dall i hendi. Hann var í gæru­úlpu og með gúm­vett­ling­ana, og hafði hann saumað pjötlu i lófa hægri handar, svo að hann gæti notað hana eins og ausu. Hann hljóp undir fán­ann, sem fána­ber­inn hélt hátt á loft, fram fyrir fyr­ir­lið­ann og upp að gang­stétt­inni. Jós hann umsvifa­laust úr dalli sínum á for­seta og biskup og síðan á hvern af öðrum aftur eftir fylk­ing­unni. Þetta gerð­ist allt mjög óvænt, og brugð­ust menn við á ýmsa vegu. Riðl­að­ist tals­vert gangan, þvi að sumir, sem ráð­rúm fengu til þess, reyndu að vikja sér undan, en aðrir héldu ótrauðir áfram, og varð ekki séð, að þeim brygði að ráði eða fatað­ist. Á sumum brá jafn­vel fyrir brosi. Þeir, sem ekki voru komnir út á göt­una, stað­næmd­ust i kirkju­dyrum, og biðu þar átekta.

Allt í einu átt­uðu þeir sig

Heið­ursvörð­ur­inn stóð í fyrstu sem stjarfur með hönd á húfu meðan Helgi hljóp með fylk­ing­unni og jós á hana. Loks var eins og hnútur rakn­aði, og einn lög­reglu­þjón­anna, Þórir Þor­steins­son, kunnur íþrótta­maður, hljóp fram, og á eftir fylgdu fleiri. Í næstu andrá hróp­aði fyr­ir­lið­inn: „Gripið mann­inn! Gripið mann­inn!“ Og aðrir tóku undir. „Þeir, sem aust­astir stóðu, stukku á hann aftan frá“, sagði Guð­mundur Her­manns­son aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, er Tíminn ræddi við hann eftir atburð­inn. „Við það bylt­ist hann á
grúfu á göt­una“. Þá hellt­ust leif­arnar úr dall­inum á göt­una.

Laganna verðir hand­taka Helga

Varð fyrst fyrir að verka sig

Föt margra þing­manna voru illa leikin, er þeir komu inn i þing­húsið, því að allir þeir, sem
fremstir fóru, höfðu eitt­hvað fengið á sig úr dalli Helga. Gilti það jafnt um for­seta­hjónin, biskup, og prest, ráð­herra og þing­for­seta. Meðal þing­manna, sem glöggt mátti sjá, að fyrir þessu urðu, voru Gunnar Thorodd­sen, Magnús Jónsson, Björn Jónsson, Jón Skafta­son, Þórarinn Þór­ar­ins­son, Matthias Matthiesen, Gils Guð­munds­son, Oddur Ólafsson og Matthias Bjarna­son. Varð nokkur töf á þing­setn­ingu, því að öllum varð fyrst fyrir að verka sig til bráða­birgða. Engin tök voru þó á að afmá slett­urnar í skyndi, og varð við svo búið að sitja. Ald­urs­for­seti þings­ins, Hannibal Valdi­mars­son, var meðal þeirra, sem verst höfðu orðið úti, og hvar hann næsta illa til reika, er hann tók við fund­ar­stjórn að lok­inni setn­ing­ar­ræðu
for­set­ans. En sumir, sem í salnum sátu, höfðu litlu betur sloppið.

„Virðist vera das­aður“

Helgi Hóse­as­son var fluttur í fanga­klefa i nýju lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu. „Hann er mjög miður sin, virð­ist vera das­aður“, sagði Guð­mundur Her­manns­son. Hann sagði, að mál­inu yrði visað til rann­sókn­ar­lög­regl­unnar. Magnús Egg­erts­son, yfir­lög­reglu­þjónn í rann­sókn­ar­lög­regl­unni, sagði blað­inu i gær­kvöldi að yfir­heyrslur færu ekki fram fyrr
en í dag. Búizt er við að Helgi verði lát­inn sæta geð­rann­sókn.

Helgi Hóse­as­son var í kjöl­farið nauð­ung­ar­vi­staður á Kleppi en geð­læknir hans sagði í skýrslu sinni um hann að hann teldi Helga ekki geð­veikan en mögu­lega hald­inn kver­úlant-para­noju, byggi við sér­visku­lega heims­mynd og not­aði sér­kenni­legt orð­færi. Skýrlan átti að vera trún­að­ar­mál en Helgi stal henni, fjöl­rit­aði og seldi gegn vægu verði á Lækj­ar­götu. Aðspurður um það á Útvarpi Sögu árið 2007, af hverju hann hafi slett skyri en ekki ein­hverju öðru, kvaðst hann ekki hafa viljað skaða augu ráða­manna með því að sletta sýru eða ein­hverju álíka yfir þá.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst þann 25 mars, 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina