Stefán Máni Sigurþórsson, sem er 53 ára rithöfundur og þjóðinni þekktur fyrir glæpasögur sínar, kastaði nýverið fram spurningu á Twitter þar sem hann virðist hafa fundið samnefnara fyrir allar fertugar konur, sem hann kallar Backstreet Boys-áhrifin.
„Backstreet Boys áhrifin. Eru fleiri að verða varir/vör við að ca fertugar konur séu í tannhvíttun, ljósum og hættar að borða? Fyrir utan að vera dálítið annars hugar og hyper.“
Backstreet Boys mun halda tónleika þann 28. apríl næstkomandi í Laugardalshöll, sem liður í tónleikaferðalagi vegna þrjátíu ára afmæli sveitarinnar í apríl næstkomandi.
Ekki er vitað hvort vangaveltur Stefáns Mána og alhæfingar séu sprottnar upp vegna persónusköpunar í nýrri skáldsögu eða persónulegrar reynslu. En virðist honum mjög í mun að fá svar við uppljómun sinni. Ef marka má viðbrögðin sem færslan hefur fengið viðist naglinn ekki hafa hitt höfuð þar sem fáir hafa tekið undir.































Athugasemdir