Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjarðarkaupsmálið: „Börn eiga ekki að sæta einangrun, hún er vitni í málinu, ekki gerandi“

Fjarðarkaupsmálið: „Börn eiga ekki að sæta einangrun, hún er vitni í málinu, ekki gerandi“
Pilt­arnir voru fundnir sekir um mann­dráp

Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, lög­maður sautján ára stúlku er var hand­tekin í tengslum við mann­dráp á tæp­lega þrí­tugum karl­manni við Fjarð­ar­kaup í Hafn­ar­firði í síð­ustu viku, segir óeðli­legt að stúlkan, sem sé lyk­il­vitni, og upp­lýsti málið í raun og veru, sæti gæslu­varð­haldi.

Vil­hjálmur hefur kært gæslu­varð­halds­úr­skurð yfir stúlkunni til Lands­réttar.

Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son Mynd / Facebook

Fjögur ung­menni eru nú laus úr ein­angrun; sæta gæslu­varð­haldi í tengslum við rann­sókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á and­láti 27 ára karl­manns á bíla­stæði við Fjarð­ar­kaup í Hafn­ar­firði fimmtu­dags­kvöldið 20. apríl.

Stúlkan sem Vil­hjálmur ver var ásamt þremur ungum drengjum úrskurðuð í gæslu­varð­hald sem og ein­angrun á föstu­dags­kvöld; hún er nú laus úr ein­angrun; sætir enn gæslu­varð­haldi.

„Kærandi er barn. Hún er vitni í mál­inu, ekki ger­andi, eins og fram­burður hennar og sýni­leg sönn­un­ar­gögn sanna. Hún snerti aldrei brota­þola. Hún kom aldrei nær hinni hörmu­legu atburða­rás en 5-8 metra. Hún veitti ekki lið­sinni með hvatn­ingu,“ segir áður­nefndur Vil­hjálmur í kæru sinni.

„Hún tók atvikið upp á mynd­band af því að for­eldrar hennar höfðu sagt henni að gera það við ótryggar aðstæður. Hún upp­lýsti lög­reglu strax um mynd­bandið, fram­vís­aði því og heim­il­aði lög­reglu að skoða sím­ann sinn. Hún hefur í einu og öllu sagt satt og rétt frá hjá lög­reglu og dregið ekk­ert undan og leit­ast þannig við að hjálpa lög­reglu að upp­lýsa málið.“

Vil­hjálmur segir að lög­regla hafi rætt við stúlk­una á vett­vangi glæps­ins í Hafn­ar­firði; svo skutlað henni heim til sín.

„Það var ekki fyrr en að það kom í ljós að brota­þoli var lát­inn sem kær­andi var hand­tek­inn vegna alvar­leika máls­ins. Það er skilj­an­legt til þess að tryggja fyrsta fram­burð og svo lög­reglan gæti náð yfir­sýn yfir atvik máls­ins. Nú hefur það verið gert. Lög­reglan veit að brota­þoli er sak­laus og ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð á and­láti brota­þola.“

Vil­hjálmur hvetur lög­reglu til að láta stúlk­una lausa úr varð­haldi.

„Hún var rangt barn, á röngum stað á röngum tíma. Það er ekki glæpur. Kærandi er þol­andi í þessu máli en ekki ger­andi því börn eiga ekki að þurfa að upp­lifa hluti sem brota­þoli hefur þurft að upp­lifa síð­ustu 3 sól­ar­hringa. Börn eiga ekki að sæta gæslu­varð­haldi og ein­angrun án þess að það sé algjör­lega nauð­syn­legt og skipti sköpum fyrir rann­sókn lög­reglu. Svo er ekki í til­viki kær­anda enda sanna sýni­leg sönn­un­ar­gögn sem lög­reglan er með undir höndum sak­leysi hennar. Því ber að fella hinn kærða úrskurð úr gildi, láta kær­anda lausa og leyfa henni að fara heim til for­eldra sinna þar sem hún á heima.“

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu er var send út klukkan fimm síð­degis í dag segir að rann­sókn máls­ins miði vel áfram; að yfir­heyrslur hafi staðið yfir síð­ustu daga og að ein­angrun fjór­menn­ing­anna hafi verið aflétt.

Telur lög­reglan sig hafa nokkuð góða mynd af atburða­rásinni en tekur fram að vegna umfjöll­unar og umræðu um and­látið vilji lög­reglan taka fram að hingað til hafi ekk­ert komið fram við rann­sókn hennar sem bendir til að þjóð­erni hins látna hafi haft eitt­hvað með málið að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina