Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rakel skipstjóri er sinn eigin herra: „Ég leit alltaf upp til þeirra sem gátu verið og voru á sjó“

Rakel skipstjóri er sinn eigin herra: „Ég leit alltaf upp til þeirra sem gátu verið og voru á sjó“
Rakel Jóhanns­dóttir

Rakel Jóhanns­dóttir er sjálf­stætt starf­andi bók­ari og hefur und­an­farin sumur róið á bátnum sínum, Boggu, og veitt þorsk. „Þeir segja að það sé greini­legt að kona eigi þennan bát. Hann er svo þrifa­legur. Það sést alveg; ég þríf vel.“

Rakel er skip­stjóra­dóttir. „Allir bræður mínir voru sjó­menn á ein­hverjum tíma­punkti og þetta hefur alltaf verið nálægt mér,“ segir Rakel sem vann skrif­stofu­störf áður  en hún fór á sjó tæp­lega fimm­tug.

Hvaða augum leit hún sjó­inn áður en hún fór svo sjálf á sjó­inn? Hann var svo­lítið „hetju-eitt­hvað“ en mér finnst það ekki í dag af því að ég get þetta.“ Hún hlær. „Ég leit alltaf upp til þeirra sem gátu verið og voru á sjó.“

Hún hætti árið 2014 í krefj­andi skrif­stofu­starfi og þá bað bróðir hennar og sjó­mað­ur­inn Gunnar Jóhanns­son hana um að vera í kokkur í einn túr í rækju­leið­angri. Hún fór með viku fyr­ir­vara og eld­aði ofan í 15 manns og naut þess. Fann fyrir frels­is­til­finn­ingu. „Gunnar vissi að ég væri að hætta í vinn­unni og hann vissi að ég gat eldað mat, hann man­aði mig í þetta og það var ekki aftur snúið. Þetta var ótrú­lega skemmti­legt. Það var fólk frá Haf­rann­sókn­ar­stofnun um borð og það tóku mér allir mjög vel og það var bara frelsi að kom­ast út á sjó. Þetta var æði.“

Þessi túr vatt upp á sig. Boltinn var far­inn að rúlla. Og hann rúll­aði beint út í sjó.

Rakel fór svo að vinna á báti Gunnars og var með honum meðal ann­ars á rækju til ára­móta 2015.

„Í byrjun árs 2016 vant­aði háseta á rann­sókn­ar­skipið Árna Frið­riks­son, Gunnar benti þeim á mig og úr varð að ég fór með þeim sem háseti. Ég varð fimm­tug um borð og hélt áhöfnin veislu fyrir mig.“

Hún varð í fram­hald­inu aðstoð­ar­kokkur um borð og var þar í eitt ár. En hvernig var að vera háseti á Árna Frið­riks­syni áður en hún fór að vinna í eld­hús­inu? „Ég hafði nátt­úr­lega verið hjá Gunnari en aldrei á svona stóru skipi en þeir sýndu mér, hjálp­uðu og örugg­lega hlífðu. Ég held að það hafi gengið ágæt­lega.“

Síðasti móhíkaninn

Rakel var aðstoð­arokkur um borð í Árna Frið­riks­syni þar til annar bróðir hennar seldi henni bát­inn sinn, Boggu, og tók hún punga­próf í kjöl­farið. Hún seg­ist hafa keypt bát­inn án þess að hugsa málið þegar henni bauðst að kaupa hann og tal­aði ekki um það við fjöl­skyldu sína.

„Það er búið að ganga á ýmsu. Fyrsta árið fór sjó­kælir í vél­inni þannig að það sumar var þess vegna að mestu ónýtt af því að þessi vél var eig­in­lega orðin síð­asti móhík­an­inn. Það var erfitt að fá vara­hluti í hana en svo bjarg­að­ist það og var hægt að redda þessu. Vélin hrundi svo alveg sum­arið á eftir. Ég keypti þá upp­gerða vél sem var sett um borð.“

Frelsið og kyrrðin

Rakel seg­ist oft hafa orðið hrædd. „Manni er ekk­ert sama. Það er mikið af hval í kringum bát­ana og mér er ekk­ert sama um það. Ekki það að þeir geri manni nokkurn skap­aðan hlut en ef þeir stökkva upp úr sjónum eins og hnúfu­bak­ur­inn gerir mjög mikið þá er ekk­ert snið­ugt að vera nálægt þeim þegar þeir lenda aftur. Þá ryðja þeir miklu magni af sjó frá sér. Ég hef séð það en ekki verið nálægt.“

Hún segir að veiðin hafi verið ágæt. „Ég geri bara eins og ég get í hvert sinn. Ég hætti þegar ég er orðin þreytt og ég fer ekki ef ég treysti mér ekki til þess. Ég er ekki föst í að fara hvern ein­asta dag. Ég fer bara þegar mér sýn­ist. Það má róa í 12 daga á mán­uði og ég má veiða 770 kíló á dag fjóra daga vik­unnar.“

Og hún veiðir þorsk.

Hvernig er að vera ein á sjó?

„Það er bara dásam­legt.“

Hvað upp­lifir hún? „

Kyrrð. Ró. Fegurð. Þetta er bara mik­il­feng­legt. Eða mér finnst það.“

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina