Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyrsta alvarlega lestarslys Íslandssögunnar – Guðlaug var aðeins fimm ára

Fyrsta alvarlega lestarslys Íslandssögunnar – Guðlaug var aðeins fimm ára

Þann 22. ágúst, 1916, varð fyrsta lest­ar­slys Íslands­sög­unnar, sem olli dauða. Þar lét fimm ára stúlka lífið.

Guðlaug Eiríks­dóttir var aðeins fimm ára þegar hún varð fyrir því hrylli­lega óhappi að lenda fyrir lest. Slysið átti sér stað á Skúla­götu er lest flutti efni úr Öskju­hlíð­inni í hafn­ar­mann­virkin í Reykja­vík.

Morg­un­blaðið lýsti hinum skelfi­lega atburði með nokkuð graf­ískum hætti líkt og tíðk­að­ist á þeim tíma:

„Hryggi­legt slys varð við höfn­ina í gær síð­degis. Járn­braut­ar­lestin rendi á litla telpu fyrir framan Slát­ur­fé­lags­húsin og varð hún undir gufu­vagn­inum. Sneiddi hann af henni annan fót­inn fyrir ofan ökkla og skemdi hinn fót­inn mikið. Var barnið borið með­vit­und­ar­laust upp á spít­ala og Sæmundur Bjarn­héð­ins­son læknir feng­inn til þess að reyna að bjarga lífi þess. Fyrir framan Slát­ur­húsin eru skúrar og hús; er þar svo þröngt að eigi sér til lest­ar­innar fyr en hún kemur, enda verður þar hlykkur á braut­inni. Full­orðnum mönnum stendur þó engin hætta af þessu, því að bæði er að langar leiðir heyr­ist skröltið i lest­inni og svo gæta öku­menn þess jafnan að gefa við­vör­un­ar­merki með gufu­píp­unni. Og það gerðu þeir að þessu sinni. En óvita börn hafa eigi rænu á því að gæta sín, og því fór svo að þetta sorg­lega slys bar að höndum. Ætti þetta enn að vera mönnum alver­leg áminn­ing um það að líta betur eftir börnum sínum og láta þau eigi vera ein úti. — En þetta ætti einnig að verða til þess að vekja athygli manna á því, hvort eigi muni hægt að koma í veg fyrir fleiri slys hér við höfn­ina. Slysin eru nú farin að verða þar all­tíð og með ýmsum hætti. Getur verið að mik­illar var­kárni sé gætt, en sjaldan er þó of var­lega farið. Litla stúlkan átti heima í Bjarna­borg. Fjöldi fólks safn­að­ist þegar að þangað sem slysið varð og máttu margir eigi tára bind­ast, því að svo var þetta hryggi­leg sjón. Hún lá þar í öngviti hjá braut­inni, milli hjóla eim­reið­ar­innar. En hinum megin við braut­ar­tein­inn lágu tveir ofur­litlir islenzkir skór og fótur i öðrum. Var sem hann hefði verið kliptur af leggnum.“

Daginn eftir birti Morg­un­blaðið þær hryggi­legu fréttir að Guðlaug hafi lát­ist af áverkum sínum, sem voru alvar­legri en grunur lék á í fyrstu:

„Stúlku­barnið, sem varð undir járn­braut­inni í fyrra­dag fyrir framan Slát­ur­fé­lags­húsin, and­að­ist á spital­anum snemma í gær­morgun. — Hafði barnið orðið fyrir miklu meiri áverka, en menn hugðu í fyrstu. Það misti ekki að eins annan fót­inn, heldur urðu lækn­arnir að taka þá báða af, annan skamt fyrir neðan knéð en hinn um miðjan fót­legg. — Þar að auki lær­brotn­aði barnið á tveim stöðum og hkut ýms önnur meiðsl. Það var nær óhugs­andi, að það gæti lifað, enda and­að­ist það nokkru eftir að lækn­arnir höfðu bundið um það. Slys þetta er eitt­hvert hrylli­leg­asta og sorg­leg­asta, sem hér hefir borið við um langt skeið. Það hlýtur að fylla menn með­aumkun við for­eld­rana, sem mist hafa barnið sitt svo svip­lega. — En það hlýtur líka að vekja menn til umhugs­unar um hvort hér sé farið nm of óvar­lega t. d. við hafn­ar­gerð­ina. Því verður ekki neitað, að slysin þar eru farin að verða nokkuð tíð, hverju sem um er að kenna. Það hafa oft heyrst raddir um það, að t. d. járn­brautin fari nokkuð hratt með­fram höfn­inni, þar sem umferð er mikil. Er það alveg ótækt ef svo er, ekki sízt þegar svo stendur á, að sjálf eim­reiðin rekur marga vagna á undan sér. Þá er erf­ið­ara fyrir for­mann­inn að stöðva lest­ina í skyndi, ef eitt­hvað ber út af, og þá er ekki víst, að allir hafi gefið nægi­legan gaum að gufu­píp­unni og merk­inu, sem gefið er. Slys geta ætíð borið að, og þau bera ætíð að, en það verður ekki nóg­sam­lega brýnt fyrir mönnum að gæta sem mestrar var­úðar, bæði þeim sem fara eiga með verk­færin og eins hinum, sem af ein­hverri til­viljun eru þar í nánd. Engum mun hægt að kenna þetta sorg­lega slys, sem leiddi barnið til bana. — En það má til að verða hvatn­ing öllum að gera sitt ítrasta til þess að fyr­ir­byggja að slíkt komi fyrir aftur“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina