Gunnlaugur Helgason – sem allir þekkja sem Gulla Helga – hefur nú sagt upp sínu starfi í morgunútvarpi Bylgjunnar – Bítinu, en þetta kemur fram á eirikurjonsson.is.

Gulli Helga.
Kemur fram að Gulli ætli að snúa og hlúa sér meira að fjölskyldu sinni; einnig sjónvarpsvinnu er hann hefur unnið samhliða starfinu í Bítinu; þar hefur kappinn verið í um áratug með öðrum reynslubolta, Heimi Karlssyni.

Lilja Katrín þykir með skemmtilegri konum Íslands. Lilja Katrín er án hliðstæðu. Eins og sést.
Eiríkur segir að talið sé að Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri Sýnar, sé kominn með arftaka; Þórhalli mun hugnast mjög vel að fá leikkonuna og fjölmiðlamanneskjuna fjölhæfu, Lilju Katrínu Gunnarsdóttur; en hún hefur staðið sig með miklum sóma í þættinum Reykjavík síðdegis.































Athugasemdir