Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Assange óheimilt að áfrýja framsalsúrskurði: „Það er búið að ákveða að murka lífið úr Julian“

Assange óheimilt að áfrýja framsalsúrskurði: „Það er búið að ákveða að murka lífið úr Julian“
Julian Assange

Nýlega úrskurð­aði dóm­ari í Bret­landi að Julian Assange blaða­manni væri óheim­ilt að áfrýja fram­sals­úr­skurði und­ir­éttar. Kristinn Hrafns­son, vinur Assange og rit­stjóri Wikileaks er ævar­eiður vegna þessa enda er verið að refsa blaða­manni fyrir að vinna vinn­una sína.

„Hann heitir Jonathan Swift, dóm­ar­inn sem ákvað eftir 8 ½ mán­aða yfir­legu að úrskurða á dög­unum að Julian Assange væri óheim­ilt að áfrýja fram­sals­úr­skurði und­ir­réttar,“ skrif­aði Kristinn í magn­aðri færslu á Facebook sem hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Og hann hélt áfram:
„Hinn æru­verð­ugi Swift dóm­ari (eins og hann er titl­aður) var ekki að verja mörgum orðum í rök­stuðn­ing­inn. Ekkert um þau nýju gögn sem lögð voru fram sem sýna glöggt að Julian á ekki mögu­leika á rétt­látri máls­með­ferð í Banda­ríkj­unum. Ekki orð um að verið er að fram­selja hann í hendur leyni­þjón­ustu sem hafði uppi áform um að taka hann af lífi. Aðeins snöggsoðin og fýlu­leg aðfinnsla um að yfir­höfuð væri verið að ónáða rétt­inn með þessu erindi. HANN teldi Julian hafa fengið fyr­ir­taks máls­með­ferð í und­ir­rétti og því þarf­laust að ónáða áfrýj­un­ar­rétt með því að fá að leggja mat und­ir­rétt­ar­dóm­ara undir High Court.“

Kristinn segir að Assange hafi aðeins einn mögu­leika eftir í stöð­unni.

„Það er fáheyrt í svo mik­ils­verðu máli að hafna áfrýjun. Julian hefur þann eina mögu­leika núna að biðja tvo aðra dóm­ara eftir helgi um end­ur­skoðun á þessum úrskurði Swifts. Það gæti verið skjót­afgreitt erindi. Gæti þess vegna verið afgreitt fyrir rétt­ar­hlé á miðju sumri. Þá eru öll sund lokuð fyrir Julian í Bret­landi.“

Því næst snéri Kristinn sér að stjórn­völdum í Bret­landi sem hann segir að sé ævareið Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evrópu fyrir afskipta­semi.

„Þó svo að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) ákveði að skoða málið og fari fram á frestun fram­sals­ins (á grund­velli reglu 39 sem Bretland er enn bundið af) er ekk­ert víst að Breska stjórnin hlýti því. Íhalds­stjórnin vill losna undan þessum dóm­stól og kvartar undan inn­gripum í full­veldi. Sunak for­sæt­is­ráð­herra og Suella Braverman, inn­an­rík­is­ráð­herra, eru ævareið yfir því að MDE skuli hafa stöðvað með inn­gripum áform um að nauð­ung­ar­flytja hæl­is­leit­endur í Bret­landi til Rúanda. Það var einmitt Swift dóm­ari sem ákvað að það mál skyldi ekki stöðvast í áfrýj­un­ar­rétti í London og er efa­laust líka ævar­eiður MDE. Eins og allt ger­spillta valdið.Eina erindið sem Sunak átti á leið­toga­fund­inn í Reykja­vík var einmitt að að kvarta yfir Evr­ópskum mann­rétt­inda­inn­gripum í mál­efni Bret­lands í gegnum MDE. Hann flutti umkvörun sína, bað Evrópu að vera ekki að skipta sér af afgreiðslu þeirra á eigin hæl­is­leit­endum og flaug heim sam­dæg­urs.Það er eins víst að Sunak stjórnin gefi skít í MDE og setji Julian beint í fanga­flug til Banda­ríkj­anna. Samn­ingar skipta engu máli lengur. Mann­rétt­indi skipta heldur engu máli.Íhalds­stjórnin vill fá að byggja upp sitt fas­ista­ríki í friði.

Þið á Íslandi vitið vel að innan áskrift­ar­flokks dóms­mála­ráðu­neytis hafa verið öfl sem munu horfa öfund­ar­augum til slíkrar rögg­semi Breta. Lík­leg­ast fylgja á eftir. Losna við mann­rétt­inda­kvabbið frá MDE.“

Ef Assange verður fram­seldur til Banda­ríkj­anna, líkt og verður að telj­ast ansi lík­legt úr þessu, bíður hans allt að 175 ára fang­els­is­dómur.

„Í Banda­ríkj­unum bíður ákæra upp á mest 175 ára fang­els­is­vist. Það tekur að minnsta kosti tvö ár að und­ir­búa rétt­ar­höld. CIA getur kraf­ist þess að Julian verði þann tíma í algerri ein­angrun. Ef Julian tórir fram að rétt­ar­höld­unum verða þau fyrir kvið­dómi í aust­ur­hluta Virginíu, stein­snar frá öllum helstu valda­stofn­unum lands­ins. Rík­is­valdið fer yfir­leitt þangað með ákærur á grund­velli njósn­a­laga. Af því að kvið­dóm­ur­inn er yfr­leitt skip­aður fólki með beina eða óbeina hags­muni tengdum nálægum stjórn­ar­stofn­unum. Þessi dóm­stóll er kall­aður Spy Court, af því þangað fara njósn­a­lög­gjaf­ar­málin. Á þeim bæ er hlut­fall sak­fell­inga í slíkum málum giska hag­fellt ákæru­vald­inu.

100%.“

Segir Kristinn að búið sé að „ákveða að murka lífið úr Julian“.

„Það er búið að ákveða að murka lífið úr Julian. Með hæg­fara sál­rænum pynt­ingum sem hann hefur verið beittur (og um það úrskurðað af full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna í þeim mála­flokki). Það skiptir engu þó að öll helstu mann­rétt­inda­sam­tök heims­ins leggi pressu á Banda­ríkin. Það skiptir engu máli þó að for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu fari fram á það við Biden for­seta að láta af þess­ari geð­veiki. Það skiptir engu máli þó að þeir for­setar sem ég hef hitt geri opin­ber­lega kröfu um hans lausn, Obrador í Mexikó, Pedró í Kólumbíu, Lula í Brasilíu, Fernandez í Argent­ínu og Arce í Bólivíu. Það skiptir heldur engu máli hvað þið segið á Íslandi.“

Lokaorð Kristins eru sterk:

„Ykkar stjórn­völd stein­þegja líka í skömm. Sem og stjórn­völd um alla Evrópu. Ærandi skammar­leg þögn ríkir um mál Julians meðal ráða­manna þar á meðan lífið er murkað úr marg­verð­laun­uðum blaða­manni fyrir framan nefið á þeim.Hern­að­ar­stór­veldið hefur ákveðið að það þurfi að refsa þeim sem framdi þann glæp að stunda alvöru blaða­mennsku og opin­bera um stríðs­glæpi þess. Það þarf að setja for­dæmi.Hæfileg refs­ing er dauði.

Fas­ism­inn vill ekk­ert ónæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife