Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fannst elsta mynd Íslandssögunnar á Stöðvarfirði í morgun?

Fannst elsta mynd Íslandssögunnar á Stöðvarfirði í morgun?
Hin glæsi­lega mynd. Athugið, þessir nettu fingur sem halda á stein­inum er í eigu Björg­vins Vals Guð­munds­sonar.

Rissuð mynd af vík­inga­skipi fannst í steini inni í vegg eldri skál­ans á Stöð í Stöðv­ar­firði í morgun. Er hugs­an­lega um að ræða elstu mynd Íslands­sög­unnar.

Dr. Bjarni Faust Ein­ars­son hefur und­an­farin ár stjórnað forn­leifa­upp­greftri á Stöð í Stöðv­ar­firði fyrir austan en þar er að finna mann­vist­ar­leyfar en Bjarni telur eldri skál­ann vera eitt elsta hús sem fund­ist hefur á Íslandi, það hafi verið uppi fyrir árið 870. Í morgun fannst mynd af vík­inga­skipi, rissuð í rauðan sand­stein. En er þá um að ræða elstu mynd Íslands­sög­unnar?

„Já, ef ég hef eitt­hvað fyrir mér í því að eldri skál­inn sé eitt af elstu húsum á Íslandi, fyrir 870, þá er þetta elsta mynd sem þekkt er á Íslandi. Og eina myndin sem ég þekki til hér. Þetta eru svona rissur af vík­inga­skipum undir fullum seglum, þetta er bara vel þekkt fyr­ir­bæri á norð­ur­löndum. Þetta er á skipum, í kirkjum, í tré og þetta er á steinum, á beinum og svo fram­vegis,“ sagði Bjarni aug­ljós­lega spenntur og bætti við: „Og note bene, hann fannst inni í veggnum. Hvorki á gólfi eða fyrir utan húsið, heldur inni í veggnum.“

En hvernig stendur á því?

„Það er af því að það er þriðji fasi á svæð­inu, sem við höfum ekki alveg náð utan um. Það er eitt­hvað að ger­ast á svæð­inu áður en stóri skál­inn er byggður.“

En ertu með ein­hverja kenn­ingu um hvað það gæti verið?

„Ekki eitt­hvað sem ég þori að láta frá mér. Að sjálf­sögðu, ég þarf að grafa meira en það eru að koma í ljós ýmsar vís­bend­ingar um þriðja fasa.“

En hvað sést nákvæm­lega á mynd­inni?

„Þú sérð stefn­inn á skip­inu og seglin með taumunum niður úr, alveg eins og það á að vera. Meira að segja stýrið á hlið­inni ef þú vilt.“

Aðspurður að því hvernig hafi gengið í sumar að grafa svar­aði Bjarni: „Mjög vel. Enda blíðan því­lík. Ég hef aldrei lent í öðru eins. En ég kvarta ekki, haf­andi fengið snjó og frost og regn. Þetta er æðis­legt en þetta er full heitt fyrir minn smekk en öðrum finnst þetta mjög ljúft.“

Bjarni áætlar að ljúka greftri þetta sum­arið þann 30. júní en ekki hafa feng­ist hærri styrkir til að grafa á svæð­inu en dugar fyrir einum mán­uði á ári. Finnst Bjarna það ekki súrt?

„No comment.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina