Mannlífi barst nafnlaus ábending um flugdólg um borð vélar Play. Vélin sem þéttsetin var á leið frá Barcelona til Íslands og lenti í nótt. Ábending barst frá farþega sem var um borð í sömu vél. Hann segist hafa sofnað skömmu eftir flugtak og eftir um það bil klukkustundarblund að hann hafi hrokkið upp úr svefninum við öskur frá íslenskri konu:
„HALTU KJAFTI!!!“
„HALTU KJAFTI!!!“
Viðmælandi Mannlífs átti sæti fremur aftarlega í vélinni nokkrum sætaröðum frá flugdólginum. Í forundran leit hann við og sá að aðrir farþegar vélarinnar litu við í forundran.
Flugdólgurinn, kona á fimmtugsaldri, var á ferðalagi með manninum sínum og beindust orðin að honum. Fúkyrðin og öskrin héldu áfram að dynja yfir manninum og virtist ekkert lát á:
„Haltu kjafti og ÞEGIÐU!“
Flugfreyjur Play þurftu að hafa síendurtekin afskipti af hjónunum og reyna að róa konuna. Í eitt skiptið var viðmældandi Mannlífs vitni að því að flugfreyjan hafi spurt flugdólginn hvort hún hafi verið að veipa í vélinni. Ekki heyrðist hverju hún svaraði en álykta mátti af orðum flugfreyjunar að svo hafi verið raunin.
Öskrin héldu áfram frá konunni við manninn á sama háttinn:
„ÞEGIÐU, ÉG GET EKKI BORIÐ VIRÐINGU FYRIR ÞÉR!“
Engin orðaskil heyrðust frá manni flugdólgsins en í eitt skiptið mátti flugfreyja um borð hóta að parinu yrði stíað í sundur ef ekki fengist friður í vélinni. Fékkst þá loksins friður en öskrin og lætin frá konunni vörðu viðstöðulaust í tæpan hálfan tíma.
Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli í nótt útskýrir viðmælandi:
„Vélin var bara nýlent á brautinni að þá stendur hún bara upp. Þó svo að vélin sé enn þá að fara frekar hratt. Hún bara stóð upp og maðurinn reyndi að toga hana aftur niður í sætið sitt.“
Viðmælandi útskýrir hvernig vélin hafi siglt að flugstöðinni og tengiraninn tengdur við flugvélina og beltisljósin slokknuðu og allt kraðakið og kösin sem fylgir þegar allir fara að standa upp og bíða eftir að dyr vélarinnar séu opnaðar. Þá hafi konan misst sig enn eina ferðina og farið að öskra:
„AF HVERJU OPNAR ENGINN HURÐINA???“
„LANGAR YKKUR AÐ VERA HÉRNA INNI???“
Aðrir farþegar göptu undrandi á konuna.
Eins og áður hefur komið fram átti konan sæti aftarlega í vélinni og þrátt fyrir að dyrnar hefðu verið opnaðar og vélin orðin hálftóm tók konan upp á því að halda öskrinu áfram:
„AF HVERJU OPNAR ENGINN HURÐINA???“
Þegar annar farþegi hafði góðlátlega bent henni á að búið væri að opna tók hún að þræta fyrir og neita að svo væri:
„NEI, ÞAÐ ER EKKI BÚIÐ AÐ OPNA!“
Konan var stöðvuð við útgang vélarinnar og rætt við hana en hún var ekki handtekin á staðnum. Viðmælandi Mannlífs vill koma því á framfæri að flugfreyjur og flugliðar Play hafi staðið sig með stakri prýði og gert allt sitt til að stilla til friðar.































Athugasemdir