Í gærkveldi var karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. júní í Héraðsdómi vegna gruns um aðild að manndrápi í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. Maðurinn er um fertugt.
Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við fréttastofu RÚV. Tveir karlmenn voru handteknir vegna málsins í gær. Hinn er laus úr haldi lögreglu.































Athugasemdir