Í gærkveldi var sérsveitin á Akureyri kölluð úr vegna óðs karlmanns sem vopnaður var exi og hótaði að nota hana á fólk.
„Hann veitti ekki mikla mótspyrnu. Hann var í annarlegu ástandi og var þá ekki lengur með vopnið í höndunum,“ segir Aðalsteinn Júlíusson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. Þegar sérsveitin mætti á vettvang, var lögreglan búin að handtaka manninn. Mbl.is greindi fyrst frá.
„Hann var vistaður í fangaklefa. Það verður tekin skýrsla af honum í fyrramálið þegar hann er orðinn allsgáður.“ Aðalsteinn segir, í samtali við fréttamann RÚV, að lögreglan hafi áður þurft að hafa afskipti af sama manni.
Ítrekaðar tilkynningar hafa borist lögreglu vegna vopnaburðar á hátíðinni.
„Við erum á tánum og reynum eins og við getum að stöðva þetta í fæðingu,“ segir Aðalsteinn.
Lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á nokkur vopn, þar á meðal hnífa og exi.
Siðreglur hátíðarinnar
Siðareglur Bíladaga má finna á heimasíðu þeirra en þær eru:
- Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnframt gestir sem heimamenn.
- Virðum hámarkshraða í íbúðarhverfum sem og á vegum úti.
- Við spólum einungis á akustursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar.
- Gestir Bíladaga eru jákvæðir og þar af leiðandi þrælskemmtilegir.
- Við berum virðingu fyrir náunganum og tökum höndum saman um að gera bíladaga frábæra!
- Gestir bíladaga ganga snyrtilega um umhverfi sitt.































Athugasemdir