Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Martröð í Miðhúsaskógi

Martröð í Miðhúsaskógi
Einn af bústöðum VR. Mynd: YouTube-skjáskot

Árið 2011 ákvað ég og þáver­andi unnusta mín að fara með eins árs gamla dóttur okkar í sum­ar­bú­stað­ar­ferð í Mið­húsa­skóg. Það var vetur og snjó­þungt, en þar sem ég er frá Fellabæ fyrir austan, þar sem snjóar stundum í júní, hafði það engin áhrif á helg­arplönin. En þetta voru helg­arplön, sem áttu eftir að vera okkur minn­is­stæð langa, langa lengi.

Við komum nokkuð seint á föstu­dags­kvöldi að bústaðnum, en þegar ég ætl­aði að keyra niður að bíla­stæð­inu sem fylgdi honum var það ekki hægt því þar var haugur af snjó, jafn­vel of stór haugur fyrir mitt aust­firska egó. Þá var ekki annað í stöð­unni en að bakka til baka upp brekk­una og leggja fyrir framan bústað­inn. En það gekk ekki betur en svo en að ég festi bíl­inn á ein­hverju furðu­legu. Ég fór út og sá þá mér til skelf­ingar að grjót­hnull­ungur lá undir bílnum og á honum sat bíll­inn fastur. Þá hafði víst ein­hverjum snill­ingnum dottið í hug um sumar að raða stein­hnull­ungum með fram veg­inum, sem skraut en datt ekki í hug að um vet­ur­inn myndi snjóa yfir grjótið og það virka sem gildra fyrir sak­lausa öku­menn. Ég fór út úr bílnum og valdi nokkur vel valin blóts­yrði en fór svo niður á hnén og ákvað að nýta forn­leifa­fræði­nám mitt loks­ins og byrja að grafa í snjónum til að reyna að losa bíl­inn. Það gerði ég með berum höndum, af því að ég er það mikið karl­menni. Já og af því að ég átti ekki skóflu í bílnum. Allt kom fyrir ekki og ég varð að játa mig sigr­aðan í bili. Mitt aust­firska egó beið hnekki, ég við­ur­kenni það. Við fórum inn með far­ang­ur­inn og dóttur okkar og komum okkur fyrir. Ég sótti barna­rúmið sem fylgdi þessum VR-bústað enda kom­inn svefn­tími hjá dótt­ur­inni, en viti menn, auð­vitað gat svo auð­velt verk­efni ekki verið án vand­kvæða. Það reynd­ist brotið og því alger­lega ónot­hæft. Og hvað gera bændur þá? Ég sá að það voru kveikt ljós í næsta bústað og ákvað því að banka upp á og athuga hvort gest­irnir væru með barna­rúm sem þeir mættu missa um helg­ina. Til dyra kom for­maður VR, sem mikið hafði verið í fjöl­miðlum á þessu ári og með honum var kærasta hans sem einnig var í sömu fréttum. Ég hafði málað í huga mér ljóta mynd af mann­inum, en hann gat ekki verið almenni­legri. Rétti mér barna­rúmið með bros á vör og ég skamm­að­ist mín niður í rass­gat yfir að hafa málað þessa ljótu mynd af honum, hann var sjálf­sagt hinn ágæt­asti náungi. Þegar ég var kom­inn aftur með barna­rúmið upp­götv­aði ég mér til skelf­ingar að ég var hvorki með sím­ann á mér né korta­veskið, en ég hafði geymt báða hluti í brjóst­vas­anum á úlpu minni. Eftir að hafa leitað eins og brjál­æð­ingur um allan bústað og inni í bílnum, kvikn­aði pera í koll­inum, loks­ins. Ég hlaut að hafa misst korta­veskið og sím­ann út úr vas­anum þegar ég reyndi að grafa upp bíl­inn, (ber­hentur, nota bene). Ég ákvað þá að beita forn­leifa­fræði­kunn­áttu minni aftur og eftir að hafa grafið nokkra sentí­metra niður í snjó­inn fann ég bæði korta­veski og síma og eftir að hafa gert C-14 ald­urs­grein­ingu, fékk ég stað­fest að um mitt dót væri að ræða.

Jæja. Þarna var dóttir mín sofnuð og við hjóna­leysin gerðum okkur til­búin að hafa það kósí fyrir framan sjón­varpið. Við höfðum keypt helg­ar­á­skrift að Stöð 2 og ætl­uðum að njóta okkar í Stöð 2 og „chill“ eins og unga fólkið kall­aði þetta á þessu tíma en þetta var áður en Netflix gerði inn­rás sína inn á íslensk heim­ili. Maður hefði haldið að eftir að hafa greitt fyrir heila helgi af sjón­varps­efni frá Stöð 2, þá gæti maður horft á sjón­varps­efni frá stöð­inni. Ekki við. Það bara virk­aði engan veg­inn, sama á hvaða takka við ýttum eða börðum á sjón­varpið. Og ann­að­hvort var lokað í síma­ver­inu um helgar á þessum árum eða það svar­aði bara eng­inn. Jæja, við höfðum þó tekið með okkur nokkrar DVD-myndir og þarna var að sjá DVD-tæki svo við áttum að vera góð. Auðvitað vorum við ekki góð, því DVD-spil­ar­inn var ekki í sam­bandi og hel­vítis sjón­varpss­kenk­ur­inn, sem var risa­stór og náði yfir sjón­varpið líka, var rígnegldur við vegg­inn og engin leið að stinga hel­vítis tæk­inu í sam­band. Unnusta mín fyrr­ver­andi hafði tekið ofur­þunnu far­tölv­una sína með, sem var það þunn að ekki var einu sinni geisla­spil­ari í henni. En hún var með eina kvik­mynd vistaða í henni. Og hvaða mynd var það? Nú, auð­vitað Willy Wonka and the Chocolate Factory með snill­ingnum Gene Wilder í aðal­hlut­verki. Stór­kost­leg mynd, en svo út úr kú súr(real­ísk) að maður þyrfti helst að vera helskakkur til að ná henni alveg.

Þegar þarna var komið við sögu var unnustan þáver­andi á því að allt sem hefði gengið úrskeiðis, væri fyr­ir­boði ein­hvers miklu stærra og verra sem ætti eftir að koma fyrir okkur í ferð­inni. Bull og vit­leysa hélt ég, en annað kom á dag­inn, þannig séð. Daginn eftir kom über-fúli hús­vörð­ur­inn í Mið­húsa­skógi til að hjálpa mér að ná bílnum af fárán­lega grjót­skraut­inu. Hann sagði eitt­hvað í ætt við „Hvernig tókst þér að festa bíl­inn hérna?“ og með aug­unum bætti hann við „naut­heimski Reyk­vík­ingur.“ Eftir að ég og Frans fúli náðum að losa bíl­inn með hjálp trjáplanka og aust­firskum öku­töktum, þakk­aði ég mann­inum fyrir hjálp­ina og hélt aftur inn í bústað.

Laug­ar­dag­ur­inn gekk án skakka­falla, en þegar við vorum að gera okkur klár í að fara aftur heim, kom þetta sem unnustan hafði fundið á sér. Dóttir okkar var komin inn í bíl­inn, sem ég hafði í gangi til að hita hann upp. Mamma hennar var að skúra gólfið og ég var að taka allan far­ang­ur­inn og setja hann í bíl­inn. Þegar ég hafði sett síð­ustu tösk­una í skottið, sem var litla íþrótta­taska unnust­unnar, gerð­ist nokkuð sem átti eftir að verða hund­leið­in­legt vanda­mál í hvert sinn sem kóln­aði í veðri. Bíllinn læst­ist. Með lyk­il­inn í start­ar­anum. Enda var bíll­inn í gangi, munið þið. Og litla dóttir mín í bílnum. Ég keypti bíl­inn sum­arið áður óaf­vit­andi að í honum leynd­ist sá galli að á vet­urna átti hann það til að læsa sér í tíma og ótíma. Mér brá nú ekk­ert svo því unnustan fyrr­ver­andi var alltaf, og þá meina ég alltaf, með auka­lykil að bílnum. Þannig að ég gekk í hægðum mínum til hennar þar sem hún skúraði af miklum móð. Ég bað hana vin­sam­leg­ast um lyklana því bíll­inn hefði læst sér að gamni sínu. Viti menn, hún hafði sett lyklana í litlu íþrótta­tösk­una sem ég var nýbú­inn að setja í skottið. Við for­eldr­arnir hlupum út en reyndum að leika okkur svöl þegar við gengum að rúð­unni þar sem dóttir okkar sat í barna­bíl­stólnum í bíl­belt­inu fyrir innan (auð­vitað). „Pabbi, koma!“ sagði sú stutta. „Já, ég kem eftir smá­stund,“ svar­aði ég sveittur en rólegur á að líta. „Valería taka í pinn­ann og toga upp!“ sagði ég í veikri von um að hún fatt­aði hvað í ósköp­unum ég væri að meina, með til­heyr­andi lát­bragði. Hún fatt­aði auð­vitað ekk­ert hvað pabbi hennar var að reyna að segja og furð­aði sig bara á því að við værum ekki að koma í bíl­inn. Við heyrðum aftur í Frans fúla og báðum hann um hjálp. And­varpið sagði allt. „Hvað núna, nefa­p­arnir ykkar?“ Hann kom með lög­reglu­græjur, eða glæpa­græjur, fer eftir því hvernig á það er litið, svona græju til að opna bíla án lykla. Ég aðstoð­aði hann, en við þurftum að spenna upp hurð­ina far­þega­megin til að koma tól­inu með­fram glugg­anum inn­an­verðum og beið hurðin þess aldrei bætur, var alltaf svo­lítið belgd og minna ein­angruð, en við komumst þó í bíl­inn og gátum haldið heim á leið. Við ákváðum að minn­ast á það við Frans fúla að Stöð 2 hefði ekki virkað og þá sagði hann af mik­illi vand­læt­ingu „Af hverju hringduð þið ekki í mig, ég sé um Stöð 2 hér á svæð­inu.“ Mér datt í hug til­vitnun í Adam Sandler, en þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja hana upp­hátt: „Þessar upp­lýs­ingar hefðu komið sér vel Í FYRRADAG!“.

Við komum heim á sunnu­dags­eft­ir­mið­degi, úttauguð með særð egó eftir helg­ina, en eftir á hyggja var þetta skemmti­leg ferð, þannig séð. Og alveg efni í fína ferða­hryll­ings­sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu