Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta eru átta skemmtilegustu fjöll á Íslandi

Þetta eru átta skemmtilegustu fjöll á Íslandi
Glissa er tign­ar­legt V-laga fjall. Göngu­leið upp er vinstra megin á mynd­inni. Mynd: Guðrún Gunnsteinsdóttir

Íslensk fjöll búa yfir fjöl­breyti­leika. Það er ekki til einn mæli­kvarði á það hvert þeirra sé feg­urst eða búi yfir mestu aðdrátt­ar­afli. Þetta ræðst af sjón­ar­miðum og upp­lifun hvers og eins. Hér verða talin upp 8 áhrifa­mestu fjöll að mati grein­ar­höf­undar ásamt stuttum rök­stuðn­ingi.
Glissa í Árnes­hreppi er upp­á­halds­fjallið. Fjallið er á Tré­kyll­is­heiði, fyrir botni Reykja­fjarðar. Almennt var ekki gengið á fjallið fyrr en fyrir nokkrum árum þegar frænkur úr Árnes­hreppi gerð­ust frum­kvöðlar.

Á Glissu. Frum­kvöðl­arnir og frænkurnar Unnur Pálína Guð­munds­dóttir og Guðrún Gunn­steins­dóttir.

Nokkur áskorun er að fara þá leið sem þær fundu og liggur yfir bratt gil og svo um skarð í kletta­belt­inu sem í dag nefn­ist Unn­ar­skarð, annarri þeirra til heið­urs. Ferða­fé­lag Íslands lét stika leið­ina frá Smala­vegi og upp á topp. Margir hafa síðan farið á fjallið. Nafnið Glissa er talið vísa til gleiðrar skessu en fjallið er V-laga. Dulúð fjalls­ins og sá kraftur sem það býr yfir hefur heillað marga. Ganga þarf 11 kíló­metra frá Mela­hálsi til að ná toppnum. Hækkun er um 500 metrar. Gangan er full­kom­lega þess virði.

Úlf­ars­fell. Þetta fjall er á mörkum Reykja­víkur og Mos­fells­bæjar, sann­kölluð perla í hjarta höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fjórar aðal­leiðir eru upp fjallið. Fólk getur valið um skóg­ar­stíg frá Skóg­rækt­inni í Mos­fellsbæ eða vel hann­aðan stíg upp frá Skar­hóla­braut. Flestir fara upp Reykja­vík­ur­megin þar sem fylgja má veg­slóðum.

Með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands, á Úlf­ars­felli.

Einn ein leiðin er fyrir fjalla­hjól. Sá stígur er einnig í landi Reykja­víkur. Úlf­ars­fell hentar jafnt ungum sem öldnum. Þægilegt fjall með mörg and­lit. Hækkun á göngu er rúm­lega 200 metrar. Vega­lengd er allt að fjórum kíló­metrum. Ferða­fé­lag Íslands hefur haldið úti opnum göngum á fjallið á fimmtu­dögum um ára­bil.

Búrfell í Hálsa­sveit er í þriðja sæti á list­anum. Hugs­an­lega er það vegna þess að þetta er fjall bernsku minnar og trónir yfir sam­nefndum bæ. Þeir sem ganga á Búrfell mega ekki láta hjá líða að ganga með fram Rauðs­gili og skoða und­urfagra fossa gils­ins. Tilvalið er að hefja göng­una á Búrfell við bæinn Rauðsgil. Eftir að fjallið, sem er 400 metra hátt, hefur verið toppað er snið­ugt að fara yfir Fellafló­ann, beint að Trölla­fossi og njóta þeirrar hrika­legu feg­urðar sem þar er að finna. Gilinu er svo fylgt áleiðis niður þar sem foss­arnir standa í röðum. Eini­berja­foss, Laxfoss, Ólafs­fossar og Bæj­ar­foss verða á vegi göngu­manns. Gangan er alls um 9 kíló­metrar.

Eiríks­jök­ull er í fjórða sæti list­ans. Það er ekki ein­falt að kom­ast á upp­göngu­stað í Torfa­bæli. Þangað liggur veg­slóði sem er þó aðeins fær öfl­ugum jeppum. Eiríks­jök­ull er hæsta fjallið á vest­an­verðu Íslandi, 1.672 metrar. Hækkun á göngu er um 1.000 metrar. Fjallið talið vera með þeim elstu á land­inu. Eiríks­jök­ull er gríð­ar­lega áber­andi frá upp­sveitum Borg­ar­fjarðar og frá Miðfirði í Húna­vatns­sýslu.

Efst á Eiríksjökli. Strútur í bak­sýn.

Af toppi hans er gríð­ar­lega víð­sýnt. Botns­súlur, Lang­jök­ull, Þór­is­jök­ull, Geitlands­jök­ull og Ok blasa við göngu­fólki. Snæ­fells­jök­ull rís í vestri. Stranda­fjöllin og fjöllin í Húna­vatns­sýslu birt­ast í fjar­lægð. Það tók nokkurn tíma fyrir göngu­hóp­inn að finna hæsta punkt á fjall­inu. En með þrjú leið­sögu­tæki til hjálpar tókst að finna hæsta punkt.

Esjan. Það verður ekki undan því vik­ist að nefna bæj­ar­fjall Reyk­vík­inga. Þessi fjalla­bálkur er með ótal and­lit og það er lang­tíma­verk­efni að ganga allar þær leiðir sem eru í boði. Algeng­ast er að ganga upp að Steini sem er tæp­lega 600 metra hækkun og sjö kíló­metra ganga. Þetta er ein vin­sælasta göngu­leið á Íslandi og lík­lega aðeins göngu­leiðin um Reykja­dal við Hvera­gerði sem nýtur álíka vin­sælda. Að vest­an­verðu er gjarnan gengið upp Smáþúfur og þaðan á Ker­hóla­kamb. Sumir fara svo­nefndan Blik­dals­hring og koma niður frá Dýja­dals­hnúk. Að aust­an­verðu eru mörk Esjunnar við svo­nefnd Lauf­skörð sem tengja Esjuna við Móskarða­hnúka. Tilvalið er að ganga á Hátind og þaðan um Lauf­skörð. Sú göngu­leið er vin­sæl og það er jafnan nokkur þol­raun fyrir loft­hrædda að fara um Skörðin. Auk þessa er vin­sælt að ganga upp frá Kjósinni þaðan sem um nokkrar leiðir er að velja. Lengi vel var talið að Hátindur væri hæsti punktur Esjunnar en seinna kom í ljós að Hábunga er hæst, um 914 metrar.

Víf­ils­fell. Þetta fjall er eitt það fjöl­breyti­leg­asta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Víf­ils­fell er afar fjöl­breytt og fag­urt. Hermt er að Vífill, leys­ingi Ingólfs Arn­ars­sonar, sem bjó á Víf­ils­stöðum hafi gjarnan skott­ast á fjallið, alla leið úr Garða­bænum núver­andi, til að athuga með sjó­veður.

Göngu­hópur við sein­asta hjall­ann upp Víf­ils­fell.

Víf­ils­fell er 655 metra hátt. Hækkun á göngu er um 305 metrar. Gangan er sjö kíló­metrar á flat­lendi, um skriður og móbergsklappir. Gangan upp fjallið getur verið erfið þegar aðstæður eru þannig. Eftir að komið er upp brattan stíg tekur við sand­steinn þar sem fólki getur auð­veld­lega skrikað fótur. Til að kom­ast upp á efsta tind þarf fólk að klöngr­ast upp í gegnum kletta­belti. Flestir skilja göngustafi sína eftir og nota hendur til stuðn­ings upp klettana. Þegar nálg­ast blátopp­inn er reipi til að fikra sig upp sein­asta hjall­ann. Víf­ils­fell er í seinni tíð þekkt sem sviðs­mynd í Stuð­manna­mynd­inni Hvítir mávar. Egill Ólafsson stendur með upp­stopp­aðan fugl á kletta­brún. Flogið var með hann í þyrlu upp. Af toppnum er frá­bært útsýni um höf­uð­borg­ar­svæðið.

Kirkju­fell. Ein af stærri áskor­unum venju­legs fjall­göngu­fólks er Kirkju­fell í Grund­ar­firði, 463 metrar. Þetta snar­bratta, form­fagra og lífs­hættu­lega fjall virkar sem seg­ull á marga. Ganga á fjallið er öll á fót­inn. Göngu­fólk þarf að klöngr­ast upp kletta­belti og eftir ein­stigi með fram klettum. Á nokkrum stöðum eru reipi til að fikra sig upp fjallið. Þar á meðal við sein­asta áfang­ann. Fjallið er alls ekki fyrir loft­hrædda. Af efsta tindi er frá­bært útsýni. Við göngu­fólki blasa Hel­grindur, ofan Grund­ar­fjarðar. Þá er af fjall­inu útsýni yfir Kvía­bryggju þar sem fyr­ir­mynd­ar­fangar eru í lausa­göngu. Hækkun á göngu er um 440 metrar. Reikna má með 5 tímum í það verk­efni að klífa Kirkju­fell.

Esjan. Við klettana á Þver­fells­horni.
Rauðsgil. Búrfell í bak­sýn.
Á Esjunni með fjöl­miðla­fólki.

Kald­bakur. Þetta hæsta fjall Vest­fjarða er 998 metra hátt þar sem það rís hæst í hinum svoköll­uðu vest­firsku Ölpum. Hægt er að aka upp í allt að 400 metrum um Kirkju­bóls­dal í Dýra­firði og hefja göng­una þaðan.

Á toppi Kaldbaks. Grein­ar­höf­undur ásamt Sigurði Hafberg.
Kirkju­fell. Göngu­hópur að leggja á fjallið.

Önnur áhuga­verð fjöll sem vert er að nefna eru Fjallið eina, Hrafna­björg, Skán­eyj­ar­bunga, Krákur, Helga­fell í Hafn­ar­firði, Þor­finnur við Önund­ar­fjörð, Keilir, Vörðu­skeggi á Hengli og Þorbjörn í Grinda­vík. Hér er að finna grein­ina í Ferða­lag­inu, tíma­riti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina