Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Samsærisþátturinn Álhatturinn mættur á svæðið: „Ég get alveg verið vel geðveikur varðandi sumt.“

Samsærisþátturinn Álhatturinn mættur á svæðið: „Ég get alveg verið vel geðveikur varðandi sumt.“
Hin heilaga þrenn­ing Mynd: Lubbi

Í gær hóf göngu sína hlað­varps­þátt­ur­inn Álhatt­ur­inn í umsjón þeirra Guðjóns Heiðars, Hauks Ísbjarnar og Ómars Þórs.

Merki þátt­ar­ins

Mannlíf sett­ist niður með tríó­inu og ræddi við þá um nýjasta þátt­inn í flóru hlað­varpanna.

Þú og félagar þínir eruð að byrja með glæ­nýjan hlað­varps­þátt, um hvað er hann og hvað heitið þið allir?

„Það er hlað­varps­þátt­ur­inn “Álhatt­ur­inn” þar sem fjallað verður um sam­sær­is­kenn­ingar á lauf­léttum nótum. Ég heiti Guðjón Heiðar. Ég heiti Haukur Ísbjörn! Og ég heiti Ómar Þór!“

Hvernig er þátt­ur­inn byggður upp?

Ómar: „Við tökum fyrir eina kenn­ingu í hverjum þætti. Í upp­hafi ferl­is­ins setjum við upp full­yrð­ingu og gefum svo ein­kunn frá 1-10 byggt á því hversu sam­mála við erum henni. Svo í lok þátt­ar­ins þá gefum við aftur ein­kunn og sjáum þá hversu mikið afstaða okkar hefur breyst.“

Guðjón: „Þá getum við séð svona, hver er þrjóskastur, hvaða kenn­ingar okkur finnst senni­leg­astar, hver er mesti álhatt­ur­inn og þar fram eftir göt­unum.“

Sam­sær­is­kenn­ingar… get­urðu nefnt dæmi? Erum við að tala um eðlu­fólk og nas­ista á tungl­inu og þess háttar?

Haukur: „Nasistar á tungl­inu? Þetta er nú meira bullið í þér. Það er eðlu­fólkið sem býr á tungl­inu! Þær útrýmdu nas­ist­unum eftir grimmi­lega tungl­styrj­öld seint á sjö­unda ára­tugnum. Þetta ættir þú að vita!“

Guðjón: „Haha, já, eða sko, við værum alveg vísir til að fjalla um kenn­ing­una um eðlu­fólkið til dæmis. Þetta þarf ekki endi­lega að vera eitt­hvað sem við trúum á sjálfir en bara eitt­hvað sem gæti verið áhuga­vert að skoða.“

Ómar: „Við munum bara fara yfir allar þessar helstu kenn­ingar, svona á ein­hverjum tíma­punkti alla­vega. Ellefti sept­em­ber, JFK, Illu­minati, geim­verur, global warming, covid og svo fram­vegis. En svo munum við líka taka fyrir aðeins minna þekkt­ari kenn­ingar og rann­saka þær. Svo þetta verður bara ákveðið svona jafn­óðum eftir því hvað við erum spennt­astir fyrir.“

Og hver er mark­hóp­ur­inn?

Haukur Ísbjörn: „Mark­miðið er í raun að allir geti haft gaman af að hlusta á þetta. Þetta er ekki svona sam­sær­is­hlað­varp sem er í ein­hverju stríði að reyna að sann­færa þig um eitt­hvað. Þarna erum við bara að rök­ræða hlut­ina og sjá hvaða kenn­ingar okkur finnst meika mest sens, en svo höfum við líka mjög gaman að kenn­ingum sem meika lítið sens.“

Guðjón: „Algjör­lega, mark­hóp­ur­inn er í raun bara hver sem er. Við erum svona dottnir mis­djúpt ofan í kan­ínu­hol­una og þætt­irnir munu bera þess merki. Ég er senni­lega klikk­að­astur en það er samt aldrei að vita nema Haukur og Ómar komi á óvart hvað það varðar.“

Ómar (hlær): „Ég get alveg verið vel geð­veikur varð­andi sumt.“

Haukur: „Jájá ég líka. Það fer alveg eftir umræðu­efn­inu. Svo fer það líka eftir því hvernig þú spyrð auð­vitað.“

Hvað verða þetta margir þættir á mán­uði? Er þetta áskrift­ar­þættir?

Ómar: „Við munum gefa út í annarri hverri viku, nema þáttur tvö kemur í næstu viku! Engin áskrift­ar­gjöld! Núll krónur á borðið, svo núll krónur á mán­uði í eitt ár.“

Guðjón: „Já svo bæt­ast auð­vitað við það vextir upp á núll kr. fyrir hvern þátt.“

Fyrsti þátt­ur­inn, um hvað er hann?

Guðjón: „Í þessum fyrsta þætti fjöllum við bara um sam­sær­is­kenn­ingar almennt og svona okkar reynslu af þeim. Kynnum líka konseptið aðeins til sög­unnar og svona okkur sjálfa.“

Haukur: „Við förum aðeins yfir það hvernig við komumst fyrst í tæri við sam­sær­is­kenn­ingar og hvenær við fórum svona að taka að minnsta kosti ein­hverjar þeirra aðeins alvar­legar. Það kom til dæmis í ljós í þessum þætti sem við höfðum ekki áttað okkur á að Guðjón hafði smá þátt í þeirri sögu hjá okkur báðum, en hann lét okkur báða hafa dvd disk sem fjall­aði um árás­irnar 11.sept­em­ber. Sú mynd átti svona eftir að hafa spila ákveðna rullu í ferl­inu hjá okkur báðum.“

Ómar: „Já þarna erum við svona að kynna þetta allt saman og fara svona yfir víðan völl í þessu sam­hengi. Þess vegna líka komum við með næsta þátt strax eftir viku, demba okkur í kenn­ingu, svo verða þetta tvær vikur sem líði á milli eftir það.“

Takk kær­lega fyrir kom­una strákar og gangi ykkur vel! Eitthvað sem þið viljið bæta við?

Guðjón: „Já bara endi­lega finnið okkur á Facebook, þar er kom­inn mjög líf­legur umræðu­hópur með rúm­lega 500 manns. Þar er hægt að taka þátt í könn­unum og umræðum um umfjöll­un­ar­efni þátt­anna ásamt því sem þú getur komið með upp­á­stungur og bent okkur á áhuga­verðar kenn­ingar sem er svo aldrei að vita nema rati í þátt­inn. Svo erum við á Twitter, TikTok og Instagram. Þátt­ur­inn er kom­inn á Spotify núna en mun svo lenda hjá Apple og YouTube þegar við erum búnir að finna út úr nokkrum tækni­legum atriðum þar!“

Ómar: „Akkurat, þetta verður á öllum helstu streym­isveitum og sam­fé­lags­miðlum! Við vonum bara að þið munið hafa gaman af að hlusta og fylgj­ast með Álhatt­inum!“

Hér er hægt að hlusta á Álhatt­inn:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu