Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Deilurnar um umboð Agnesar harðna: „Biskup Íslands er ekki starfsmaður kirkjuþings“

Deilurnar um umboð Agnesar harðna: „Biskup Íslands er ekki starfsmaður kirkjuþings“
Myndin er sam­sett

„Í frétta­flutn­ingi hefur verið gert tor­tryggi­legt að fram­kvæmda­stjóri bisk­ups­stofu hafi ritað undir ráðn­ing­ar­samn­ing við biskup fyrir hönd þjóð­kirkj­unnar þar sem fram­kvæmda­stjór­inn sé und­ir­maður bisk­ups. Í þeirri gagn­rýni felst ákveðin mis­skiln­ingur á stjórn­skipan kirkju­stjórn­ar­innar. Stað­reyndin er sú að ekki var öðrum til að dreifa innan stjórn­sýslu kirkj­unnar til að standa að umræddri samn­ings­gerð,“ segir í yfir­lýs­ingu Péturs Markan bisk­ups­rit­ara og Einars Huga Bjarna­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns vegna fregna um að Agnes Sig­urð­ar­dóttir sé umboðs­laus í emb­ætti og str­arfs­samn­ingur við hana hafi verið gerður á af und­ir­manni og á svig við stofn­anir Þjóð­kirkj­unnar. Þetta segja þeir félagar vera rang­túlkun.

„Í því sam­bandi er til þess að líta að biskup Íslands er ekki starfs­maður kirkju­þings né rekst­ar­stofu þjóð­kirkj­unnar, sem heyrir undir kirkju­þing, og því kom ekki til álita að kirkju­þing eða fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­stofu hefðu aðkomu að samn­ings­gerð­inni“.

Þeir segja að til samn­ings­ins hafi verið stofnað á grund­velli 2. mgr. 4. gr. starfs­reglna kirkju­þings nr. 56/2021-2022 þar sem fram komi að biskup Íslands ann­ist ráðn­ing­ar­mál starfs­fólks þjóð­kirkj­unnar. Líkt og tíðkast hafi um langa hríð í ráðn­ing­ar­málum innan þjóð­kirkj­unnar hafi fram­kvæmda­stjóri bisk­ups­stofu ritað undir samn­ing­inn fyrir hönd þjóð­kirkj­unnar.

„Samkvæmt fram­an­sögðu er engin réttaró­vissa um stöðu bisk­ups. Þvert á móti hefur biskup Íslands fullt umboð til að sinna þeim verk­efnum sem henni eru falin með lögum og jafn­framt ákvörð­un­ar­vald um ein­stök mál á grund­velli laga eða kirkju­hefðar, enda hefur annar biskup yfir Íslandi ekki verið kos­inn,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Biskup mun ekki tjá sig um málið fyrr en nið­ur­staða fæst í málið hjá úrskurð­ar­nefnd Þjóð­kirkj­unnar.

Yfir­lýs­ingin í heild sinni: Með lögum nr. 153/2019 sem tóku gildi 1. jan­úar 2020, voru gerðar laga­breyt­ingar sem m.a. fólu í sér að kirkjan tók við öllum starfs­mönnum sínum og starfs­manna­málum. Í þessu fólst m.a. sú grund­vall­ar­breyt­ing að biskup Íslands tald­ist frá 1. jan­úar 2020 ekki lengur emb­ætt­is­maður rík­is­ins heldur starfs­maður þjóð­kirkj­unnar. Þetta hefur gengið eftir í fram­kvæmd og hefur biskup Íslands frá nefndu tíma­marki verið starfs­maður kirkj­unnar og þegið þaðan laun.

Á grund­velli 10. gr. laga um þjóð­kirkj­una nr. 77/2021, setti kirkju­þing nýjar starfs­reglur um kosn­ingu bisk­ups Íslands og vígslu­bisk­upa nr. 9/2021-2022 sem tóku gildi hinn 1. jan­úar 2022. Í þeim reglum kemur fram að ákvörðun um það hvenær bisk­ups­kjör skuli fara fram er í höndum kjör­stjórnar og er sú ákvörðun háð sam­þykki for­sætis­nefndar kirkju­þings. Fyrir liggur að kjör­stjórn þjóð­kirkj­unnar hefur nýlega boðað ti bisk­ups­kosn­inga, eftir að biskup Íslands til­kynnti um starfs­lok sín árið 2024 í
nýár­spredikun sinni, sem munu fara fram fyrri hluta næsta árs. Þar til nið­ur­staða fæst úr þeim kosn­ingum og form­leg bisk­ups­skipti hafa farið fram hefur biskup Ísland fullt umboð. Í lög­skýr­ing­ar­gögnum með áður­nefndum lögum nr. 153/2019 er tekið sér­stak­lega fram að því starfs­fólki kirkj­unnar sem skipað var tíma­bundið yrði boð­inn ráðn­ing­ar­samn­ingur að skip­un­ar­tíma loknum. Sökum þess að biskup Íslands fellur undir þessa skil­grein­ingu var gerður ráðn­ing­ar­samn­ingur við biskup, líkt og við aðra í sam­bæri­legri stöðu, eða 1. júlí 2022. Aðrir kostir voru vita­skuld ekki tækir, enda hafði kjör­stjórn ekki boðað til bisk­ups­kjörs fyrir lok skip­un­ar­tím­ans.

Í frétta­flutn­ingi hefur verið gert tor­tryggi­legt að fram­kvæmda­stjóri bisk­ups­stofu hafi ritað undir ráðn­ing­ar­samn­ing við biskup fyrir hönd þjóð­kirkj­unnar þar sem fram­kvæmda­stjór­inn sé und­ir­maður bisk­ups. Í þeirri gagn­rýni felst ákveðin mis­skiln­ingur á stjórn­skipan kirkju­stjórn­ar­innar. Stað­reyndin er sú að ekki var öðrum til að dreifa innan stjórn­sýslu kirkj­unnar til að standa að umræddri samn­ings­gerð. Í því sam­bandi er til þess að líta að biskup Íslands er ekki starfs­maður kirkju­þings né rekst­ar­stofu þjóð­kirkj­unnar, sem heyrir undir kirkju­þing, og því kom ekki til álita að kirkju­þing eða fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­stofu hefðu aðkomu að samn­ings­gerð­inni. Til samn­ings­ins var því stofnað á grund­velli 2. mgr. 4. gr. starfs­reglna kirkju­þings nr. 56/2021-2022 þar sem fram kemur að biskup Íslands ann­ist ráðn­ing­ar­mál starfs­fólks þjóð­kirkj­unnar. Líkt og tíðkast hefur um langa hríð í ráðn­ing­ar­málum innan þjóð­kirkj­unnar rit­aði fram­kvæmda­stjóri bisk­ups­stofu undir samn­ing­inn fyrir hönd þjóð­kirkj­unnar.

Samkvæmt fram­an­sögðu er engin réttaró­vissa um stöðu bisk­ups. Þvert á móti hefur biskup Íslands fullt umboð til að sinna þeim verk­efnum sem henni eru falin með lögum og jafn­framt ákvörð­un­ar­vald um ein­stök mál á grund­velli laga eða kirkju­hefðar, enda hefur annar biskup yfir Íslandi ekki verið kos­inn.

Að öðru leyti mun biskup Íslands ekki frekar tjá sig efn­is­lega um málið við fjöl­miðla meðan málið er til með­ferðar hjá úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar.

virð­ing­ar­fyllst,
f.h. bisk­ups Íslands
Einar Hugi Bjarna­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður
Pétur G. Markan, bisk­ups­rit­ari

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina