Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brynjar í Berlín: „Miðaldra karlmenn eru nákvæmlega eins og þeir voru fyrir 40 árum“

Brynjar í Berlín: „Miðaldra karlmenn eru nákvæmlega eins og þeir voru fyrir 40 árum“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, fyrrum aðstoða­maður dóms­mála­ráð­herra, situr ekki auðum höndum eftir að hann missti vinn­una í sumar. Eða það er að segja, hann situr ekki auðum höndum heima hjá sér, hann er á ferða­lagi.

Brynjar skrif­aði skondna færslu á Facebook þar sem hann segir frá fimmta degi sínum og eig­in­konu hans, Soffíu, í þýsku höf­uð­borg­inni, Berlín. Eins og vana­lega notar Brynjar tæki­færið og skýtur á vinstri menn og fleiri en það gerir hann með lúmskum húmor, sem hann er löngu orð­inn þekktur fyrir. Helsta nið­ur­staða Brynjars á Berlín­ar­búum er sú að þeir hafi lítið breyst síð­ustu 40 árin, þó ekki fari mikið fyrir yfir­vara­skeggjum.

Færsluna skemmti­legu má lesa hér að neðan:

„Dagur 5 í Berlín. Ég er að verða eins og gamli vél­stjór­inn á Tene og sendi dag­lega fróð­leik heim. Kann að vera að það sé meiri sann­leikur í dag­bók vél­stjór­ans.

Ég fór í morgun að stytt­unum af Marx og Engels. Þeir voru miklir félags­vís­inda­menn og ekki síðri en þeir bestu í dag. Helsta vís­inda­afrek þeirra var hinn vís­inda­legi sann­leikur sós­í­al­ism­ans. Mér skilst að þeirra afrek í þessum fræðum séu enn í hávegum höfð, meira að segja á Íslandi. Hér í Berlín nýtur Die Linke, sem eru leyfar af gamla austur þýska komm­ún­ista­flokknum, tals­verðs fylgis ásamt græn­ingjum og ein­hvers konar píra­ta­flokki.Sumir segja að Berlín sé mikil fjöl­menn­ing­ar­borg. Ég verð ekki var við það. Miðaldra karl­menn eru nákvæm­lega eins og þeir voru fyrir 40 árum, með sítt að aftan og gull­keðju um háls­ins og úln­lið­inn. Yfir­vara­skeggið að vísu ekki eins áber­andi. Unga fólkið ekki heldur mikið breyst. Ráfar um á milli kaffi­húsa, vefja sér jónu, húð­flúrað um allan lík­amann og halda að þau séu lista­menn.En það sem hefur breyst er að Berlín­ar­búar, eins og Þjóð­verjar almennt, eru mikið til hættir að eign­ast börn. Held að ég hafi séð eina barna­kerru alla ferð­ina og það voru senni­lega túristar. Hins vegar eiga þeir nóg af hundum. Hér er á hverju horni boðið upp á hunda­nám­skeið og hunda­þjálfun. Soffía velti fyrir sér af hverju ein­hverjum hug­mynda­ríkum bis­ness­manni hafi ekki dottið í hug að koma á svona nám­skeiðum og þjálfun fyrir eig­in­menn.Ég hef kom­ist að því í þess­ari ferð að Þjóð­verjar eru ekki eins praktískir og ég hélt. Þeir eru með fjöld­ann allan af starfs­mönnum í óþarfa. Í öllum stofn­unum og söfnum eru starfs­menn að ráfa um í reiði­leysi og þarna eru meira að segja lyftu­verðir, sem ég hélt að væri útdauð stétt. Mér fannst eins og væri kom­inn 60 ár aftur í tím­ann þegar pikkoló­strák­arnir voru á Hótel Borg. Raf­magns­verk­fræð­ing­arnir, sem eru með í för, eru búnir að reikna það út að þetta séu brota­menn í sam­fé­lags­þjón­ustu.Þetta er Brynjar Níelsson, sem talar frá Berlín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu