Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna sakar Samtökin 22 um hatur gegn transfólki: „Virðast vera með það eitt á stefnuskránni“

Anna sakar Samtökin 22 um hatur gegn transfólki: „Virðast vera með það eitt á stefnuskránni“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir vekur máls á tveimur hópum „hat­urs­fólks“ í dag­bók­ar­færslu gær­dags­ins á Facebook.

Anna, sem sjálf er trans kona, skrif­aði dag­bók­ar­færslu á Facebook í gær undir nafn­inu Trans­fóbía. Þar vekur hún athygli á tveimur hópum „hat­urs­fólks gegn trans­fólki“ sem hafa verið stofn­aðir hér á landi. Um er að ræða hópana Barátta XX-kvenna fyrir öryggi og Samtökin 22. Segir Anna að fyrri hóp­ur­inn séu konur með trans­fó­bíu og sá seinni vera homma sem hat­ast út í trans­fólk.

„Ekki veit ég hvað þessum hópum gengur til, en dettur í hug að þeir séu svip­aðrar skoð­unar og ítr­ustu hægri­menn í Banda­ríkj­unum og Evrópu, en þeir mega alveg vita það að þessir skoð­ana­bræður þeirra vilja vissu­lega losna við trans­fólk af jörð­inni sem fyrst, en síðan kemur röðin að þeim sjálfum, sam­an­ber menn­ina með bleika þrí­hyrn­ing­inn í Þýska­landi nazismans,“ skrifar Anna meðal ann­ars í færsl­unni og segir í kjöl­farið að hún væri til í að hreinsa út af vina­lista sínum á Facebook, leyn­ist þar fylgj­endur hópanna. „Þetta er nákvæm­lega það sem Eldur DeVille eða hvað hann nú heitir og félagar hans í Sam­tök­unum 22 sem og XX-konur eru að boða, hatur, mis­rétti og fyr­ir­litn­ing,“ bætti Anna við.

Í lok­ins minn­ist hún á heim­sókn sína til frænku sinnar í smá­bænum Smit­hville í Norður-Carolinu í Banda­ríkj­unum árið 1976, sem þá var stjórnað a for­dóma­fullum bæj­ar­stjóra. Anna tók ljós­mynd af stærð­ar­innar skilti í bænum sem aug­lýsti hin alræmdu hat­urs­sam­tök Ku Klux Klan.

„Það leikur að sjálf­sögðu eng­inn vafi á því hvaða boð­skap þetta skilti boð­aði.

Hatur, mis­rétti og fyr­ir­litn­ingu.“

Hér má lesa færsl­una í heild sinni:

„Dagur 1455 – Trans­fóbía.

Ég hefi veitt því eft­ir­tekt að tveir hópar hat­urs­fólks gegn trans­fólki hafa verið stofn­aðir á Íslandi. Annars vegar eru það hópur sem kallar sig Barátta XX-Kvenna fyrir öryggi sem eru konur með trans­fó­bíu og svo eru það Samtökin 22 sem virð­ast vera með það eitt á stefnu­skránni að vera hommar sem hat­ast út í trans­fólk. Ég hefi reyndar heyrt það sagt að sami aðil­inn standi að stofnun beggja sam­taka, en það er óstað­fest. Í fyrri hópnum eru rúm­lega hund­rað konur sem virð­ast hafa áhuga á mál­efn­inu eins og nafnið gefur til kynna, en hinum hópnum eru um fjögur hund­ruð manns fylgj­andi þótt ein­hverjir þeirra séu vafa­laust þarna fyrir for­vitni sakir, til dæmis tveir þekktir gagn­kyn­hneigðir blaða­menn sem eru einnig vinir mínir á Facebook og úti í líf­inu. Ég efast um stuðn­ing þeirra við þennan furðu­fé­lags­skap.Ekki veit ég hvað þessum hópum gengur til, en dettur í hug að þeir séu svip­aðrar skoð­unar og ítr­ustu hægri­menn í Banda­ríkj­unum og Evrópu, en þeir mega alveg vita það að þessir skoð­ana­bræður þeirra vilja vissu­lega losna við trans­fólk af jörð­inni sem fyrst, en síðan kemur röðin að þeim sjálfum, sam­an­ber menn­ina með bleika þrí­hyrn­ing­inn í Þýska­landi nazismans.Því miður hefi ég ekki með­lima­skrár þess­ara hópa því ég þarf að taka til á vina­list­anum mínum og mér sýn­ist á orðum þeirra að þeir hati mig eins og pest­ina og eiga þarafleið­andi ekki að vera á mínum vina­lista.Þetta er nákvæm­lega það sem Eldur DeVille eða hvað hann nú heitir og félagar hans í Sam­tök­unum 22 sem og XX-konur eru að boða, hatur, mis­rétti og fyr­ir­litn­ing.Með þessum orðum bið ég þá aðila sem fylgja þessum tveimur hópum að málum, en eru um leið vinir mínir á Facebook, að yfir­gefa Facebookvináttuna við mig ef ein­hver þeirra skyldu hafa álp­ast þangað inn, því að með stuðn­ingi sínum við þessa hópa eru þeir að lýsa yfir and­stöðu við mín bar­áttu­mál í gegnum lífið og við mig um leið.—–Sumarið 1976 kom ég reglu­lega til Banda­ríkj­anna sem oftar á honum Bakka­fossi (II) og þegar haft er í huga að við stopp­uðum venju­lega í allt að fjóra daga í höfn í Portsmouth VA, vorum við gjarnan með bíla­leigu­bíla til taks enda bíl­arnir ódýrir. Ég tók þátt í þessu og not­aði tæki­færið og fór iðu­lega og heim­sótti frænku mína sem bjó í litlum bæ í Norður-Carólínu. Næsti bær, samt aðeins stærri heitir Smit­hfi­eld og þar ríkti á þeim tíma hinn mjög svo hægri­s­inn­aði bæj­ar­stjóri Michael Gardner, bróðir kvik­mynda­leikkon­unnar Övu Gardner. Við bæj­ar­mörkin var skilti og ein­hverju sinni þegar ég fór með frænku minni til Smit­hfi­eld, bað ég hana um að stoppa við skiltið ill­ræmda svo ég næði góðri mynd af því. Hún harð­neit­aði, þorði því ekki af hræðslu við fas­istana, svo ég tók mynd af skilt­inu á ferð. Það leikur að sjálf­sögðu eng­inn vafi á því hvaða boð­skap þetta skilti boð­aði.Hatur, mis­rétti og fyr­ir­litn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina