Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskur dómari opnar sig um Arnars-málið og KSÍ: „Sverta ímynd knattspyrnunnar“

Íslenskur dómari opnar sig um Arnars-málið og KSÍ: „Sverta ímynd knattspyrnunnar“
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, og Arnar Gunn­laugs­son, þjálf­ari Víkings – myndin er sam­sett

Íslenskir knatt­spyrnu­dóm­arar eru gríð­ar­lega óánægir með störf KSÍ.

Eins og Mannlíf hefur fjallað um ríkir mikið ósætti í dóm­ara­stétt­inni í fót­bolta og bein­ist það ósætti að sýnd­ar­mennsku KSÍ þegar kemur að hvernig komið er fram við dóm­ara. Sam­bandið setti af stað her­ferð sem not­ast við myllu­merkið #Takk­Dóm­arar en hegðun þjálf­ara og leik­manna í garð dóm­ara hefur lík­lega aldrei verið verri en á þessu tíma­bili. Her­ferð­inni var ætlað að minna fólk á að sýna dóm­urum þakk­læti og virð­ingu fyrir störf þeirra í þágu fót­bolta. 

Nokkrum dögum eftir að her­ferðin hófst missti Arnar Gunn­laugs­son, þjálf­ari Víkings, algjör­lega stjórn á skapi sínu í við­tölum eftir tap­leik þar sem hann tal­aði í tæpar tíu mín­útur um dóm­ara leiks­ins og dóm­ara­stétt­ina sem heild með hætti sem ekki hafði sést áður hér­lendis. KSÍ gerði hins vegar enga athug­semd við hegðun Arnars en hann var hvorki dæmdur í bann né gert að greiða sekt. Þetta kom mörgum á óvart því sumir bjugg­ust við því að Arnar yrði mögu­lega dæmdur í tveggja leikja bann.

Málið er for­dæm­is­gef­andi og virð­ist vera að þjálf­arar og leik­menn megi segja nán­ast hvað sem er um dóm­ara svo fram­ar­lega sem þeir ásaki þá ekki um vís­vit­andi svindl. Dómarar eru orðnir dauð­þreyttir og reiðir á aðgerð­ar­leysi KSÍ og sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs eru nokkrir reynslu­miklir dóm­arar að íhuga að hætta eftir tíma­bilið og hefur þetta mál spilað hlut­verk í því. 

Mannlíf tók við­tal við dóm­ara sem hafði ýmis­legt að segja um stöðu mála. Hann vildi ekki koma fram undir nafni enda málið við­kvæmt en dóm­ar­inn er starf­andi og reynslu­mik­ill.

„Ég veit svo sem ekki hvar þú hefur heyrt þetta en þetta er alveg rétt hjá þér. Það er frekar mikil óánægja með þetta innan hóps­ins,“ sagði dóm­ar­inn um umfjöllun Mannlífs um Arnars-málið og KSÍ. „Þessu var hent af stað ein­hverjum tveimur vikum fyrir leik­inn fræga í Kópavogi og búnir til ein­hverjir bolir og eitt­hvað dót sem allir áttu að hita upp í. Rosa fínt og flott. Svo er ekk­ert gert í þessu. Þjálf­ar­inn má alveg segja að dóm­ar­inn sé lélegur, það er allt í góðu. En að tala nokkur ár aftur í tím­ann og eyða tíu mín­útum í að sturta yfir dóm­gæslu eins og hún leggur sig í land­inu. Það er það sem allir eru brjál­aðir út í. Síðan þá hefur eng­inn farið í þennan bol.“

„Það sem við höfum rætt um okkar á milli er að það hefði nátt­úru­lega átt að vísa því til aga­nefndar og hefði átt að fara í far­veg þar,“ sagði dóm­ar­inn um hvað dóm­ara­stéttin telur að hefði átt að gera í mál­inu. „Því að þetta er eitt­hvað sem heitir van­virð­ing við knatt­spyrn­una í heild sinni. Sverta ímynd knatt­spyrn­unnar held ég að þeir kalli þetta. Menn eru mest fúlir yfir því.“

„Fyrst að ekk­ert var gert þarna þá er búið að opna ein­hverja orma­gryfju. Það er búið að segja „Þetta má.“. Það er búið að gefa ákveðið for­dæmi að þetta sé í lagi. Þarna hefði verið frá­bær punktur til þess að segja „Við vorum að starta her­ferð. Þetta er eitt­hvað sem við ætlum að taka á, við ætlum ekki að líða þetta.“. Það hefði verið svo frá­bær punktur á þessum tíma­punkti af því að þau fengu þetta upp í hend­urnar að geta gert eitt­hvað í mál­inu.“

„Allt eru þetta topp­menn og allir eru þeir að reyna vinna leik­inn og maður þarf að bera virð­ingu fyrir því að menn eru sinna sinni vinnu og partur af því er að láta heyra í sér,“ sagði dóm­ar­inn um hvort þjálf­arar og leik­menn séu erfðir í sam­skiptum. „Það er kannski erfitt að taka eina per­sónu út, það er kannski frekar heildin og heild­ar­brag­ur­inn á þessum ágæta bekk er svo­lítið erf­iður. Það er svo­lítið krefj­andi. Þeir sem eru að fjalla um þetta, þeir sjá þetta alveg þetta mynstur. Þetta er ekk­ert bara bundið við einn mann heldur eru þetta tveir til þrír í við­bót,“ og vísar dóm­ar­inn þar í vara­manna­bekk Víkings. „Svo fer hugsar maður þegar það fer svona mikið púður í að úthúða dóm­ar­anum í tíu mín­útur, hvar er þá fók­us­inn á leik­inn og leik­menn­ina? Ef þú eyðir 30-40% af púðr­inu í að öskra á dóm­ara þá skil­uru ekki eftir nema 60-70% fyrir leik­inn.“

„Hún gæti verið betri og það er alltaf verið að fjölga leikjum,“ sagði dóm­ar­inn þegar hann var spurður út í nýliðun í stétt­inni. „Því miður eru ekki að koma nógu margir inn. Því miður og það eru ekki að koma inn kvenn­dóm­arar, eins og margoft hefur komið fram. Við erum að sjá menn í efstu deild sem eru ein­hverjir komnir yfir fimm­tugt. „Gappið“ þarna á milli til að sækja menn niður í 1. deild er alltof stórt og þegar maður horfir á þessa ungu dóm­ara þá eru því miður ekki nógu margir sem eru að skila sér upp.“

Þá gagn­rýndi hann einnig knatt­spyrnu­fé­lög lands­ins.

„Það eru örfáir klúbbar á land­inu sem eru að standa sig í að búa til dóm­ara og kannski þeir sem heyr­ist mest í, það kemur minnst frá þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina