Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjórnarmeðlimir Strætó neita að upplýsa um eigin strætóferðir

Stjórnarmeðlimir Strætó neita að upplýsa um eigin strætóferðir
Stjórn Strætó og strætó – myndin er sam­sett

Stjórn­ar­með­limir Strætó vilja ekki ræða eigin notkun á strætó.

Und­an­farin ár hafa strætó­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mátt þola mikla gagn­rýni og telja margir að þær hafi aldrei verið verri en í dag þrátt fyrir sýni­lega meiri áhuga almenn­ings til að nota almenn­ings­sam­göngur. Þá hefur stjórn Strætó verið harð­lega gagn­rýnd fyrir meint áhuga­leysi hennar á að bjóða upp á góðar og skil­virkar almenn­inga­sam­göngur. Mannlíf hafði sam­band við stjórn­ar­með­limi Strætó og lagði fyrir þá nokkrar ein­faldar spurn­ingar.

Meðlimir stjórn­ar­innar eru:

Magnús Örn Guð­munds­son – Formaður stjórnar – Situr fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Sel­tjarn­ar­nesi

Alex­andra Briem – Vara­for­maður stjórnar – Situr fyrir hönd Pírata í Reykja­vík

Andri Steinn Hilm­ars­son – Stjórn­ar­maður – Situr fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi

Kristín Thorodd­sen – Stjórn­ar­maður – Situr fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Hafn­ar­firði

Hrannar Bragi Eyj­ólfs­son – Stjórn­ar­maður – Situr fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ

Lovísa Jóns­dóttir – Stjórn­ar­maður – Situr fyrir hönd Við­reisnar í Mos­fellsbæ

Spurn­ing­arnar voru ein­faldar. Stjórn­ar­með­limir voru spurðir hversu oft þau hefðu tekið strætó á þessu ári, hvað þeim þætti um þjón­ustu strætó miðað við verð og hver væri þeirra fram­tíð­ar­sýn á strætó­sam­göngur í náinni fram­tíð. Aðeins einn stjórn­ar­með­limur svar­aði Mannlífi og verður það að telj­ast frekar lélegt af kjörnum full­trúum, sér­stak­lega í ljósi þess að spurn­ingar voru frekar auð­veldar.

Eini stjórn­ar­mað­ur­inn sem svar­aði var Alex­andra Briem.

„Ég hef ekki alveg tölu á því, ansi oft, en ekki eins oft og ég hefði viljað,“ sagði hún um hversu oft hún tekur strætó. „Ég á ekki bíl, suma daga tek ég leigu­bíl í vinn­una og svo strætó heim, ein­hverja daga fæ ég lán­aðan bíl hjá fjöl­skyldu­með­limum ef ég þarf að vera á miklu flakki, svo þetta er bara mjög mis­jafnt. En ég nota Strætó það oft að ég hef ekki töl­una í hausnum, þetta eru ein­hverjir tugir ferða.“

„Það þyrfti auð­vitað að bæta þjón­ust­una og það er til­gangur okkar áætl­ana um upp­bygg­ingu borg­ar­línu og inn­leið­ingu nýs leiða­kerfis, en akkúrat núna er fjár­hags­staða Strætó því miður þannig að við höfum ekki getað veitt eins góða þjón­ustu og við viljum gera,“ sagði Alex­andra um þjón­ustu strætó. „Fyrir því eru ýmsar ástæður, fyrst og fremst að rekst­ur­inn fór mjög illa í heims­far­aldr­inum. Þá átti strætó um 600 millj­ónir í sjóð sem átti að fara í end­ur­nýjun og raf­væð­ingu vagna. Þegar algjört tekju­fall verður í far­aldr­inum fær Strætó þau skila­boð að fyr­ir­tæki í far­þega­þjón­ustu geti átt von á stuðn­ingi rík­is­ins. Þegar Strætó fal­ast eftir slíkum stuðn­ingi er svarið að vegna góðrar eig­in­fjár­stöðu fái fyr­ir­tækið ekki nema mjög lít­inn stuðn­ing, og fyr­ir­tækið í raun skikkað til að nota sjóð­inn sem átti að fara í vagna­kaup bara til þess að halda vatni í gegnum ástandið. Þá var ekki hægt að fara í vagna­skipti og þegar olíu­verð hækkar vegna m.a. inn­rásar í Úkraínu, þá hækkar rekst­ar­kostn­að­ur­inn mjög mikið. Það er þó þannig að þjón­usta Strætó hlýtur að telj­ast ágæt miðað við verð.“


„Í allri nán­ustu fram­tíð sé ég fyrir mér að við inn­leiðum nýja skanna sem gera okkur kleift að taka við snerti­lausum greiðslum og í kjöl­farið inn­leiða betra far­gjalda­kerfi með virkum afsláttum, t.d. þar sem hægt er að gefa fríar ferðir eftir ákveð­inn fjölda ferða á dag, eða í viku. En það sem þarf að ger­ast til að ná raun­veru­legum umbótum á almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er inn­leið­ing á sér­rýmum og aukn­ing á ferða­tíðni, það er það sem Borg­ar­línan snýst um, og nýtt leiða­kerfi sem verður inn­leitt fljót­lega er liður í þeirri breyt­ingu. Þetta þarf að hald­ast í hendur við betra skipu­lag á hverfum, þar sem fólk geti farið stærri hluta ferða gang­andi eða hjólandi innan hverfis, en þétt­ing  byggðar er lyk­il­at­riði í að búa til grund­völl í hverfum fyrir rekstri og þjón­ustu í göngu­færi,” sagði Píratinn um hennar fram­tíð­ar­sýn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina