Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sema Erla hjólar í Guðmund Inga: „Það er ekkert annað en aumingjaskapur“

Sema Erla hjólar í Guðmund Inga: „Það er ekkert annað en aumingjaskapur“
Sema Erla.

Sema Erla Serdaroglu gagn­rýnir Guðmund Inga Guð­brands­son harð­lega í nýrri færslu á Facebook.

„“Ég hef líka sagt að við ætlum ekki að hafa fólk hér á göt­unni!“ var svar Guð­mundar Inga, félags­mála­ráð­herra, þegar hann var spurður út í stöðu flótta­fólks sem hefur verið svipt allri nauð­syn­legri grunn­þjón­ustu og sett á göt­una án nokk­urra bjarga til að lifa af.“ Þannig hefst Facebook-færsla Semu Erlu Serdaroglu, for­manns Solaris hjálp­ar­sam­tak­anna. Og hún heldur áfram: „Það er ákveðin firr­ing sem felst í þessu inni­stæðu­lausa og ömur­lega svari ráð­herra sem hann hefur nú end­ur­tekið eins og rispuð plata frá því varað var við því snemma á árinu hvaða afleið­ingar það myndi hafa að svipta flótta­fólk þaki yfir höf­uðið, stuðn­ingi fyrir mat og heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Sema Erla segir enn­fremur að „firr­ingin“ sé sér­lega mikil í ljósi þess að minnsta kosti ríf­lega 60 stað­festir ein­stak­lingar á flótta sem hingað komu í leit að vernd og skjóli, hafi verið sviptir allri þjón­ustu frá rík­inu síð­ustu vikur en hún tekur fram að „sumir þeirra verið á göt­unni mán­uðum saman, sofið undir berum himni, borðað upp úr rusla­tunnum og sum eru hrein­lega á mörkum þess að lifa af, þar sem fólk fær ekki nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu, til dæmis geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Þá segir Sema Erla að félags­mála­ráð­herra hafi ítrekað á þing­inu í gær, að sveita­fé­lögin eigi að hjálpa ein­stak­lingum í þess­ari stöðu, „án þess þó að geta sagt frá því hvernig það á nákvæm­lega að ganga fyrir sig.“ Hún heldur áfram: „Hann bætti því síðan við að hann per­sónu­lega kann­ist bara ekki við að neinn í þess­ari stöðu hafi „bankað upp á hjá félags­þjón­ust­unni!“

Segir hún ekki vita hvar Guð­mundur fái sínar upp­lýs­ingar en það sé að minnsta kosti ekki frá þeim sem hafa „verið að reyna að halda lífi í þolendum þessa rík­is­of­beldis síð­ustu fimm vik­urnar, því hann svarar hvorki tölvu­póstum né sím­tölum frá okkur (og virð­ist ekki kunna að hringja til baka)!“ Segir Sema að ef ráð­herr­ann myndi svara, þá mynd hún minna hann á að full­trúar sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi þver­neitað fyrir að þau eigi að aðstoða fólk í þess­ari stöðu og að þau myndu ekki gera það. „Ég gæti líka sagt honum að vissu­lega hafa ein­stak­lingar í þess­ari stöðu farið til sveit­ar­fé­lag­anna og óskað eftir aðstoð, án árang­urs.“ Segir hún að vegna þessa hafi sam­tökin hafi óskað fyrst eftir skýrum fyr­ir­mælum frá Guðmundi Inga um hvert flótta­fólk sem lifði á göt­unni ætti að fara í leit sinni að þeirri grunn­þjón­ustu sem það þarf til að lifa af.

„Í dag, eftir að ráð­herra sagð­ist ekki kann­ast við ósvar­aða tölvu­pósta en „það mætti bara senda aftur“ gerðum við einmitt það og ítrek­uðum beiðni okkar um skýr svör við því hvert nákvæm­lega fólk a að fara til þess að sækja þessa nauð­syn­legu grunn­þjón­ustu sem ráð­herra tók þátt í að svipta fólkið,“ skrifar Sema Erla og bætir enn við: „Þögnin er ærandi frá mann­inum sem fyrir mán­uði sagði að „sér sviði yfir því að þetta hafi gerst!“ Aðgerð­ar­leysið er algjört hjá mann­inum sem fyrir mán­uði sagði að það væri „ekki gott að horfa upp á að fólk sofi í gjótu!“,“

Lokaorð Semu Erlu eru hvöss enda málið henni hjart­ans­mál.„“Þetta átti ekki að ger­ast“ hjálpar ekki þeim tugum ein­stak­linga sem eru án alls bak­lands, án stuðn­ings­nets, án allra bjarga, á göt­unni í landi sem ekki er þeirra fæð­ing­ar­land. Þetta er þeim örugg­lega „þung­bærra en ráð­herra segir þetta vera fyrir sig og flokk sinn!“Það er ekk­ert annað en aum­ingja­skapur að ráð­herra hunsi þá fáu ein­stak­linga sem dag og nótt eru að reyna að koma fólk­inu til aðstoðar svo það deyji ekki úr hungri eða kulda og er í leit að svörum frá ráð­herra sem seg­ist vera að „vinna að lausn.“Á flokks­fundi vinstri grænna í lok ágúst sagði félags­mála­ráð­herra að „þessi fram­kvæmd væri ekki á ábyrgð Félags- og vinnu­mála­ráðu­neyt­is­ins“ (sem vissu­lega ber ábyrgð á þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd) og bætti við að „það þýðir hins vegar ekki að maður sitji hjá og horfi á húsið brenna.“

Hvað annað en nákvæm­lega það er ráð­herra og öll rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur að gera?“

Færsluna má lesa hér í heild sinni og um leið skoða tölvu­póstana sem Guð­mundur Ingi hefur ekki enn haft fyrir að svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina