Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússar sprengdu upp minningarathöfn: „Allir þorpsbúarnir eru dánir“

Rússar sprengdu upp minningarathöfn: „Allir þorpsbúarnir eru dánir“
Aðkoman var hrotta­leg Mynd: Trausti Hafsteinsson

Heilt þorp var þurrkað út í eld­flauga­árás rúss­neska hers­ins.

Þann fimmta októ­ber síð­ast­lið­inn gerði rúss­neski her­inn eld­flauga­árás á verslun og kaffi­hús í þorp­inu Hroza í Kharkiv-hér­aði í Úkraínu. Þorps­búar voru við­staddir minn­ing­ar­at­höfn fyrir úkra­ínska her­mann­inn Andriy Kozyr, sem lést fyrr í stríð­inu. Hafði hann verið graf­inn í Dnipopetr­ovsk-hér­aði en sonur hans ákvað að láta jarða hann aftur í heima­þorpi sínu. Í árásinni drápu Rússar 52 þorps­búa og er því um að ræða eina mann­skæð­ustu árás­ina frá því að stríðið hófst. Blaða­menn frá Ukra­inska Pravda og Babel heim­sóttu Hroza og ræddu við nokkra nágranna og skyld­menni fórn­ar­lambanna.

Samkvæmt blaða­manni frá Babel, sem heim­sótti þorpið tveimur dögum eftir árás­ina, voru alls þrjár götur í þorp­inu og um 100 hús en kaffi­húsið og versl­unin, sem urðu fyrir árásinni, var í miðju þorp­inu. Næstum því ekk­ert er eftir af hús­unum. Þeir fáu þorps­búar sem lifðu af voru fljótir að koma blómum og minn­ing­ar­ljós­kerum fyrir á leik­velli í þorp­inu. Loftið lyktaði af dauða, sam­kvæmt Babel.

Lítill kirkju­garður er um fjögur hund­ruð metrum frá miðju þorps­ins en yfir­völd hyggj­ast stækka garð­inn um 50 pró­sent til að koma öllum lík­unum fyrir.

Yevhen, 43 ára íbúi Hroza missti báða for­eldra sína í árásinni. Sagði hann blaða­mönnum að hann hafði viljað mæta í minn­ing­ar­at­höfn Kozyrs en hafi ekki kom­ist og hafi verið heima við þegar eld­flaugin sprakk. For­eldrar hans höfðu hins vegar ekki í hyggju að vera við­stödd athöfn­ina. „En þið vitið hvernig þetta er í þorp­inu. Þau sam­þykktu að mæta en ætl­uðu bara að vera í hálf­tíma. Þegar uppi er staðið, reynd­ist þetta þeirra síð­asta ferða­lag.“

Samkvæmt Yevhen fatt­aði hann um leið og eld­flaugin sprakk, að hún hefði hitt versl­un­ina. „Ég greip frænda minn og bróður og sagði þeim að nú yrðum við að fara. Við komum þangað og allir lágu í einu horni. Það voru engir veggir, allt hafði hrunið og aðeins voru rammar bygg­ing­ar­innar eftir. Ég vissi hvernig for­eldrar mínir voru klæddir og sagði við bróður minn „Leitum“. Ég sá kunn­ug­legan jakka. Ég gekk upp að honum, færði hellu og þarna lágu þau. Mamma og pabbi með hand­legg­inn yfir henni.“

Olha, íbúi Hroza, sem missti tvær tengda­dætur, sagði að eina ástæðan fyrir því að hún fór ekki á vök­una hafi verið sú að hún þurfti að sjá um barna­börnin en bæði eru þau yngri en sjö ára. Þegar árásin var gerð sat hún á bekk nærri heim­ili sínu, ekki langt frá versl­un­inni.

„Það heyrð­ist ekki flaut, ekk­ert. Veistu hvernig þetta er venju­lega? Flug­skeyti flýgur yfir þér og heyrir í því, vegna þess að það hvinur í því eins og í flug­vél. Í þetta skipti, bara spreng­ing. Ég greip börnin og fór með þau niður í kjall­ara. Og allir guð­for­eldrar barn­anna, allir vinir okkar, allir þeirra voru þarna,“ sagði Olha.

„Allir þorps­bú­arnir eru dánir, eins og eng­inn þeirra hafi nokkru sinni verið til. Heilu fjöl­skyld­urnar dóu. Fjöl­skylda Andiy [Kozyr] var meðal þeirra. Enginn þeirra er eftir,“ sagði Alla, fyrrum nágranni her­manns­ins sem var verið að minn­ast. Þegar árásin var gerð, var hún stödd í sjúkra­húsi í Kharkiv en tengda­dóttir hennar var í athöfn­inni. Þegar Alla fréttir af árásinni reyndi hún að hringja í hana en eng­inn svar­aði.

Hægt er að lesa meira um þessa hrotta­legu árás hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina