Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íbúar langþreyttir á stórum og ljótum moldarhaugum: „Rétt á að fá skýr svör“

Íbúar langþreyttir á stórum og ljótum moldarhaugum: „Rétt á að fá skýr svör“
Kjartan vill fá svör um mold­ar­hauga. Athugið, myndin er sam­sett.

Íbúar Árskóga vilja mold­ar­hauga í burtu.

Risa­stórir mold­ar­haugar sem eru geymdir í Mjódd­inni valda íbúum Breið­holts áhyggjum og trufla þá. Nær­liggj­andi byggð verður fyrir sand­foki með til­heyr­andi tjóni og segja íbúar haug­arnir séu sjón­mengun. Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur reynt að fá skýr­ingar á haug­unum hjá Reykja­vík­ur­borg en að sögn hans svarar borgin ekki fyr­ir­spurnum hans um málið.

„Eftir því sem ég kemst næst eru þessir haugar á vegum Reykja­vík­ur­borgar og verk­taka, sem borgin hefur heim­ilað að nota þetta svæði sem „milli­tipp“ eða tíma­bund­inn los­un­ar­stað. Um þetta hef ég þó ekki fengið skýr svör í borg­ar­kerf­inu þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir,“ sagði Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við Mannlíf um málið.

Kjartan telur að einn mold­ar­haug­ur­inn hafi verið þarna í nokkur ár en hinir komið seinna til sög­unnar. „Um er að ræða nokkra hauga. Eftir því sem ég kemst næst hefur einn verið þar frá árinu 2019 en hinir mun skemur. Íbúar við Árskóga hafa tjáð mér að þeir haugar, sem hafi valdið þeim hvað mestum ama, hafi verið þar í um tvö ár en upp­haf­lega hafi íbú­unum verið sagt að haug­arnir yrðu þar aðeins í þrjá mán­uði. Auk malar- og sand­hauga virð­ist svæðið einnig vera notað til geymslu á tækjum og ýmsu efni, jafn­vel drasli, sem engan veg­inn á við svo nærri íbúa­byggð.“

„Mér finnst óvið­un­andi að svæði, sem er nálægt svo fjöl­mennri íbúa­byggð, sé notað lang­tímum saman í þessu skyni. Ég fæ ekki séð að til þess sé heim­ild sam­kvæmt skipu­lagi. Haug­arnir valda íbúum í Árskógum og nágrenni ama og óþrifn­aði enda fýkur efni úr þeim yfir byggð­ina. Haugunum fylgir líka sjón­mengun enda eru sumir þeirra á stærð við fjöl­býl­is­hús,“ sagði Kjartan um að þetta svæði sé notað sem ein­hvers­konar geymsla og bætti við að honum þætti óásætt­an­legt að Reykja­vík­ur­borg hafi ekki svarað fyr­ir­spurnum Sjálf­stæð­is­flokknum um þetta mál. Þetta sé þess eðlis að borgin skuldi íbúum skýr svör og það eigi ekki að taka langan tíma.

„Mér finnst auð­vitað óvið­un­andi að hafa ekki fengið skýr svör frá borg­inni um málið þrátt fyrir að hafa leitað eftir þeim mán­uðum saman. 13. júlí sl. lagði ég fram skrif­lega fyr­ir­spurn um málið í borg­ar­ráði eftir að hafa áður fengið óljós svör þegar ég spurði óform­lega um málið innan borg­ar­kerf­is­ins. Meiri­hlut­inn vís­aði fyr­ir­spurn­inni til umhverfis- og skipu­lags­ráðs þar sem hún var lögð fram 16. ágúst en hefur síðan dagað uppi. Slík upp­lýs­ingatregða er með ólík­indum því auð­vitað eiga íbúar, sem og kjörnir full­trúar og fjöl­miðlar, rétt á að fá skýr svör um slík mál án und­an­dráttar.“

Kjartan vill meina að rót vand­ans sé lík­lega borgin sé ekki lengur með los­un­ar­svæði fyrir jarð­efni og það þurfi að finna nýtt svæði fyrir slíkt því að núver­andi ástand sé óvið­un­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina