Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Árni hvarf á dularfullan hátt eftir heimsókn á Akureyri – Hattur hans fannst á Strandgötu 13

Árni hvarf á dularfullan hátt eftir heimsókn á Akureyri – Hattur hans fannst á Strandgötu 13

Fimmtu­dag­inn 19. des­em­ber árið 1946 fór Árni Ólafsson, skrif­stofu­maður hjá Raf­veit­unni á Akureyri, að heim­sækja kunn­ingja­fólk sitt að Strand­götu 13 á Akureyri. Síðan hefur ekki til hans spurst. Hattur hans, sem hann gekk ávalt með á höfði, fannst á Strand­götu 13 og gátu íbúar þar ekki gefið skýr­ingu á því. Þrátt fyrir það virð­ist lög­reglan ekki hafa skoðað málið ítar­legra og er því hvarf Árna eitt það dul­ar­fyllsta í sorg­legri sögu manns­hvarfa á Íslandi.

Árni Ólafsson átti konu og fjögur börn er hann hvarf en hann starf­aði sem skrif­stofu­maður hjá Raf­veit­unni á Akureyri. Þá var hann virkur í Leik­fé­lagi Akur­eyrar, auk þess sem hann spil­aði á fiðlu. Til stóð að hann færi með 12 ára dóttur sína til læknis til Reykja­víkur eftir ára­mótin en svo varð aldrei.

Hvarfið

Í bók Bjarka H. Hall, Saknað – íslensk manns­hvörf, segir að Árni hafi seinnipart fimmtu­dags­ins 19. des­em­ber 1946, ætlað í heim­sókn til kunn­ingja­fólks síns að Strand­götu 13 en ekki er vitað hvort hann hafi farið þangað ein­sam­all en um það fer víst tvennar sögur. Ekki er vitað hvað gerð­ist eftir heim­sókn­ina en Árni skil­aði sér aldrei heim.

Talsverð leit var gerð að Árna dag­ana á eftir en hún skil­aði engum árangri. Þegar ljóst var að hann fynd­ist ekki fyrir jól var ákveðið að gera hlé á leit­inni. Snjó­þungt var á Akureyri um þetta leyti og von­uðu menn að eitt­hvað kæmi í ljós þegar snjóa leysti. Vinir og ætt­ingjar Árna leit­uðu þó áfram, gengu meðal ann­ars fjörur en án árang­urs. Það sem gerði hvarf Árna enn dul­ar­fyllra var sú stað­reynd að hattur hans fannst skömmu eftir hvarfið í hús­inu að Strand­götu 13. Gátu hús­ráð­endur enga skýr­ingu gefið á því en fjöl­skylda Árna sagði að hann færi nán­ast aldrei út úr húsi án þess að setja á sig hatt­inn, sama hvert til­efnið væri.

Ekkjan missti næstum íbúðina

Sagt var frá því í blöðum að annar maður hafi týnst um sama leyti og Árni en það var Aðal­steinn Guð­munds­son hér­aðs­dóms­lög­maður. Fannst hann skömmu eftir hvarfið við Odd­eyr­ar­tanga á Akureyri, en hann hafði drukknað. Lét Aðal­steinn eftir sig konu og eitt barn. Árni fannst hins vegar aldrei.

Í kjöl­far hvarfs Árna var tíðin afar erfið hjá fjöl­skyldu hans. Ofan á það að þurfa að glíma við óviss­una um örlög fjöl­skyldu­föð­urs­ins, mun­aði litlu að ekkja Árna missti húsið sem þau höfðu keypt sér stuttu fyrir hvarfið. Segir í bók Bjarka H. Hall að með hjálp fjöl­skyldu, vina og vegna eigin dugn­aðar, hafi kon­unni tek­ist að halda íbúð­inni. Þar kemur einnig fram að barna­börn og aðrir afkom­endur Árna hafi ekki vitað um örlög hans fyrr en þau voru orðin full­orðin. Grennsl­uð­ust þau þá fyrir um málið hjá lög­reglu og komust þá að því að engar skýrslur var að finna hjá lög­regl­unni en þeim var bent á að ræða við Þjóð­skjala­safnið. Það bar hins vegar engar árangur heldur. Enn þann dag­inn í dag hefur ekk­ert fund­ist eða frést, sem gæti gefið til kynna hvað varð um Árna þessa örlaga­ríka kvöld árið 1946, né af hverju hattur hans fannst í hús­inu við Stand­götu 13.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina